Vikan - 21.05.1987, Síða 31
Ekki höfum við íslendingar heldur
alveg farið varhluta af Öllu því komið
hefur fyrir að plötur hennar hafi heyrst
hér á öldum ljósvakans. Hún syngur
mest á móðurmáli sínu, rússnesku, en
tónlistin sjálf er mjög keimlík venjulegu
Vesturlandapoppi.
Alla Pugatjova er aldeilis alsæl með
þá stefnu Gorbatsjovs að opna hið sov-
éska þjóðfélag og hún dáist að hugrekki
hans. Stefna Gorbatsjovs felur meðal
annars í sér að gera hinn almenna borg-
ara sjálfstæðari og að hann fái notið
frumkvæðis síns á ýmsum sviðum þjóð-
lífsins. Þess gætir nú þegar, segir Alla,
þvi í dag er auðveldara fyrir hvern sem
er að stofna lítið fyrirtæki, eins og
saumastofu, bifreiðaverkstæði eða kaffi-
hús. Áður þurfti langa bið eftir leyfum.
Hún segir einnig að þegar sé áberandi
meira frelsi í menningarmálum almennt
og til dæmis miklu auðveldara en áður
að koma tónleikum á laggirnar. Og
þetta er bara byrjunin, segir Alla. En
hún vonar að fólk hafi ekki óraunhæfar
væntingar því jafnviðamiklar breytingar
og fyrirhugaðar séu taki sinn tíma, það
sé ekki bara tímafrekt að gera breyting-
ar á kerfmu heldur líka að fá fólkið í
landinu til að skilja og meðtaka þær
breytingar.
Alla býr í stórri íbúð á Gorkígötu í
miðborg Moskvu. Og eins og margar
aðrar stjörnur vill hún halda einkalífinu
utan við sviðsljósið. Hún er fráskilin og
á fimmtán ára dóttur, Kristinu, sem
hefur leikið í þónokkrum sovéskum
kvikmyndum. En þó hin rússneska
Gróa sé búin að spyrða söngstjörnuna
saman við flesta samstarfsmenn hennar
í tónlistinni hefur henni tekist að halda
leyndu hver nýi kærastinn er. Þegar
Alla er á tónleikaferðum hefur hún
vinnukonu til að hugsa um dótturina
og halda reglu á heimilinu og ekki veit-
ir af því íjarlægðir eru miklar þó hún
ferðist bara innanlands.
Aðaltekjur Öllu Pugatjovu eru ekki
af plötusölu, eins og algengt er á Vest-
urlöndum, heldur af tónleikum og þó
þeir séu yfir eitt hundrað á ári þénar
hún engin ósköp. Til eru verkamenn sem
hafa hærri tekjur en Alla og það finnst
henni ekkert óeðlilegt. Hún segist ekki
þurfa að kvarta þvi hún hafi starf sem
hún elskar og nóg til að sjá sér og dótt-
ur sinni farborða. Þar að auki getur hún
látið eftir sér að vera svolítið pjöttuð,
keypt föt og annað glingur þegar hana
langar til. Uppáhaldið þessa stundina
er leðurfatnaður, grófir skartgripir og
fín, frönsk ilmvötn.