Vikan - 21.05.1987, Qupperneq 34
Viðtal:
Jóhanna Margrét
Einarsdóttir
Þórður Ásgeirsson hefur
ekki verið við eina fjölina
felldur um dagana. Hann
er lögfræðingur að mennt
og hefur unnið sem fulltrúi
bæjarfógeta í Kópavogi,
starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna, skrifstofustjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu,
formaður Alþjóða hval-
veiðiráðsins og loks forstjón
Olíuverslunar fslands hf. í
dag vinnur hann við að
koma nýju fyrirtæki, Baulu
hf., á fætuma.
„Að hafa lítið að gera í fjörutiu stiga hita og glampandi sól gerir mann helvíti værukæran."
Ferill Þórðar hófst í Skeijafirðinum fyrir 45
árum, þar sem hann ólst upp. Líkt og önnur böm
í Skeijafirðinum gekk hann í Melaskólann, síðan
í Menntaskólann í Reykjavík. Þar kynntist Þórð-
ur raunar konunni sinni, Guðriði Margréti
Thorarensen, kallaðri Systu. Því næst lá leið Þórð-
ar í lagadeild Háskóla Islands. Hann var formaður
Órators, félags laganema, og bryddaði þar ásamt
öðmm upp á athyglisverðri nýjung er félagið hófst
handa við gerð þáttanna Réttur er settur, sem
tuttugu árum síðar em árlegur viðburður í ríkis-
sjónvarpinu.
Þórður er viðfelldinn maður í viðkynningu,
hreinn og beinn, brosir ekki mjög oft en þegar
hann brosir nær brosið til augnanna. Drengur
góður, sagði einhver. Maður sem hefur gaman
af að breyta til og óttast mest af öllu stöðnun.
Sjálfur segir hann: „Ég er með þeim ósköpum
gerður að ef ég kasta mér út í eitthvað þá sting
ég mér á kaf.“
Að loknu embættisprófi í lögfræði gerði Þórður
stuttan stans hjá bæjarfógetaembættinu í Kópa-
vogi. En hann langaði að víkka sjóndeildarhring-
inn og fara utan. Hann sótti um stöðu hjá
Sameinuðu þjóðunum sem hann fékk og hélt
ásamt Systu og syninum Ásgeiri á vit New York-
borgar. Til að byija með vann hann í lögfræði-
deildinni en var síðan sendur til Kýpur og gerðist
lögfræðingur gæsluliðsins þar. Starfsvettvangurinn
á Kýpur var gjörólíkur því sem Þórður hafði
áður fengist við. Þeir sem störfuðu hjá gæsluliðinu
höfðu það sem kallað var úrlendisréttur, það þýddi
að ekki var hægt að draga þá fyrir almenna dóm-
stóla heldur varð að leysa málin utan réttar. Áður
en Þórður hóf störf á Kýpur hafði ekki verið starf-
andi lögfræðingur gæsluliðsins þar. Hann tók því
við miklum tjölda óleystra mála, mismunandi stór-
um, allt frá umferðarlagabrotum til ráns og
morðmála. Þegar hann hafði unnið sleitulaust í
hálft ár hafði gengið verulega á bunkann og starf-
ið varð þægilega rólegt. Enda segir hann þegar
hér er komið sögu: „Undir lokin var þetta orðið
mjög rólegt. Að hafa lítið að gera í fjörutíu stiga
hita og glampandi sól gerir mann helvíti værukær-
34 VI KAN 21. TBL