Vikan - 21.05.1987, Qupperneq 56
Maðurinn sem kunni vel við hunda
með afsagaða tvíhleypu í hendinni. Hann
beindi henni að mér.
- Hæ, þú! Hentu þessum hólki! sagði
hann reiðilega. Ég hreyfði kjálkana til
að reyna að segja eitthvað. Maðurinn
herti takið á gikknum. Skot hljóp úr
byssunni minni án þess ég hefði mikið
með það að gera. Skotið hæfði byssuna
hans og keyrði hana bókstaflega úr
höndunum á honum. Hún lenti á gólfinu
og hundurinn hófst þrefalda hæð sína í
loft upp og lenti því næst i hnipri aftur.
Maðurinn rétti upp hendur með ólýs-
anlegum svip. Ég átti ekki að geta tapað
þessu. Ég sagði: - Niður með þína líka,
frú.
Hún sleikti varirnar, lét byssuna síga
og gekk áleiðis frá skrokknum á gólfínu.
Maðurinn sagði: - Fjandakornið,
skjpttu ekki á hann, ég skal sjá um hann.
Ég bliknaði, svo fékk ég hugmynd.
Hann hafði verið hræddur um að ég
myndi skjóta hundinn, hann hafði ekki
verið hræddur um sjálfan sig.
Ég beindi Lúgernum örlítið meira nið-
ur á við. - Hvað gerðist?
- Þetta reyndi að svæfa hann með
klóróformi - hann, bardagahundinn!
Ég sagði: - Jamm. Ef þú þarft að
hringja er best að þú kallir á sjúkrabíl.
Sharp endist ekki lengi með þennan leka
úr hálsinum.
Konan sagði hljómlausri röddu: Ég
hélt að þú-værir löggan.
Ég sagði ekkert. Hún fór meðfram
veggnum, að gluggakistu sem var full af
krumpuðum dagblöðum, teygði sig eftir
símanum sem var þar öðrum megin.
Ég leit niður á litla dýralækninn. Blóð-
straumurinn úr hálsinum á honum hafði
stöðvast. Hann var með hvitasta andlit
sem ég hafði nokkru sinni séð.
- Hafðu ekki áhyggjur af sjúkrabíln-
um, sagði ég við konuna. - Hafðu bara
samband við lögregluna.
Maðurinn í samfestingnum lét hend-
urnar síga, kraup á annað hnéð og fór
að klappa í gólfið og tala sefandi við
hundinn.
Rólegur, gamli, rólegur. Við erum
öllvinirnúna- allirvinir. Rólegur, Voss.
Hundurinn ýlfraði og dillaði afturend-
anum aðeins. Maðurinn hélt áfram að
tala við hann. Þá hætti hundurinn að
ýlfra og úfið hárið á bakinu á honum
jafnaðist. Maðurinn í samfestingnum
hélt áfram að tala við hann.
Konan á sólbekknum lagði símann frá
sér og sagði:
- A leiðinni. Heldurðu að þú ráðir við
þetta, Jerry?
- Öruggt mál! sagði maðurinn án þess
að hafa augun af hundinum. Hundurinn
lagðist á kviðinn á gólfið, opnaði kjaftinn
og lét tunguna lafa. Það vessaði úr tung-
unni, bleikur vökvi með blóði í. Hárið í
öðru munnvikinu á hundinum var blóð-
ugt.
3
Maðurinn, sem var kallaður Jerry,
sagði: - Hæ, Voss, hæ, Voss, gamli vin-
ur. Þú ert finn núna. Þú ert finn!
Hundurinn másaði en hreyfði sig ekki.
Maðurinn rétti úr sér, þokaði sér nær
hundinum og togaði í annað eyrað á
honum. Hundurinn sneri sér til hliðar
og lét sér það vel líka. Maðurinn strauk
honum um höfuðið og losaði sundurnag-
aðan múlinn af honum.
Hann stóð upp með endann af slitinni
keðju og hundurinn kom sér hlýðinn á
fætur og gekk með manninum út um
vendidyrnar og bakatil í húsið.
Ég hreyfði mig úr stað, úr sjónlínu frá
hverfidyrunum. Jerry gæti átt fleiri byss-
ur. Það var eitthvað við andlitið á Jerry
sem ég hafði áhyggjur af - eins og ég
hefði séð hann áður en ekki nýlega eða
þá á mynd í dagblaði.
Ég leit á konuna. Hún var myndarleg,
dökkhærð og liðiega þrítug. Mynstraði
morgunkjóllinn virðist ekki eiga vel við
fallega bogadregnar augabrýnnar og
grannar, mjúkar hendurnar.
Hvernig gerðist þetta? spurði ég
kæruleysislega, eins og það skipti ekki
miklu máli.
Hún svaraði hvellum rómi, eins og hún
væri komin á fremsta hlunn með að
öskra. Við höfum verið hérna í húsinu
í um það bil viku, tókum það á leigu
með húsmunum. Ég var inni í eldhúsi
og Jerry í garðinum. Bíllinn nam staðar
fyrir framan húsið og sá litli þrammaði
inn eins og hann ætti heima hérna. Dyrn-
ar voru af lilviljun ólæstar, geri ég ráð
fyrir. Ég opnaði vendidyrnar örlítið og
sá hann ýta hundinum inn í skáp. Síðan
fann ég klóróformlyktina. Svo gerðist
allt í sömu andrá, ég fór eftir byssu og
kallaði á Jerry út um gluggann. Ég kom
hingað að i þann mund sem þú braust
inn. Hver ert þú?
Það var allt afstaðið þá? sagði ég.
Var hann búinn að ganga frá Sharp í
gólfið?
Já ef hann heitir Sharp.
Þekkið þið Jerry hann ekki?
Höfum hvorki séð hann áður né
hundinn. Jerry clskar hunda.
Þú þarft að endurskoða þetta, sagði
ég. Jerry vissi hvað hundurinn heitir,
Voss.
Hún varð þrjóskuleg til augnanna og
munnsvipurinn þvermóðskulegur.
- Ég held að þú hljótir að vera á villi-
götum, herra minn, sagði hún önug. - Ég
var að spyrja hver þú værir, herra minn.
Það heyrðist ekki múkk í þeim, hvor-
ugu þeirra. Þau störðu bara á mig.
Ókei, sagði ég og fór út í horn á
herberginu! Eg held að þið séuð svika-
hrappar. Ef sá sem er að koma er ekki
löggan byrja ég strax að skjóta. Látið
ykkur ekki detta í hug að ég geri það ekki.
Konan sagði sallaróleg: Hafðu það
eins og þú vilt, slettireka.
Bíll kom á harðaspani og nam staðar
á punktinum fyrir framan húsið. Ég leit
í fiýti út um gluggann og sá í blikkljós
og lögregluskilti á dyrunum. Tveir stóri
rumar í venjulegum fötum hentust út,
hentu hliðinu upp og trömpuðu upp
stéttina og síðan upp stigann.
Hnefi barði á dyrnar. Það er opið,
hrópaði ég.
Hurðinni var hrint upp á gátt og tveir
lögregluþjónar komu inn með byssurnar
í skotstöðu.
Þeir snarstönsuðu og störðu á það sem
lá á gólfinu, beindu byssunum að Jerry
og mér. Sá sem sá um mig var stór ná-
ungi, rjóður í framan og í allt of stórum,
gráum búningi.
Upp með hendur, hrópaði hann,
og leggið frá ykkur vopn. Ég rétti upp
hendur en hélt cnn á Lúgarnum mínum.
Rólegir, sagði ég. Hundur drap
hann, ekki byssan. Ég er einkaleynilög-
reglumaður frá San Angeló. Ég er með
þetta mál hérna.
Jæja? Hann nálgaðist mig allhrika-
lega og boraði byssunni i magann á mér.
Kannski það, vinur. Við komumst að
því öllu scinna.
Hann tcygði sig upp og losaöi byssuna
úr hendinni á mcr, þcfaði af henni, alltaf
með byssuna á mér.
Búið að skjóta, ha? Indælt! Snúðu
þér við.
Heyrðu.. .
Snúðu þér við, vinur.
Ég sneri mér hægt. A meðan ég sncri
mér slakk hann byssunni í slíðrið og var
kominn mcð hönd á mjöðm. Það hefði
átt að vara mig við en gcrði það ekki.
Ég hcf kannski hcyrt þylinn í kylfunni,
allavega fundið fyrir henni. Svo varð allt
í einu allt svart. Ég stakk mcr niður í
myrkrið og fcll.. .og féll.. .og féll. . .
Framhald i mi'sla blaði.
56 VIKAN 21. TBL