Vikan - 21.05.1987, Page 61
Það hefur uppgötvað að hann er óvinurinn
en ekki dulan. Það kemur fyrir, en sjaldan
þó, að forseti neiti bón um að drepa naut og
skipar þá fyrir um áframhaldandi at. Slíkar
ákvarðanir hafa kostað líf nautabana. Forseti
ræður því líka hvaða verðlaun nautabanarnir
fár. Oft fá þeirekkert. Hafl þeir staðið sig
vel fá þeir annað eyra nautsins sem þeir drápu,
standi þeir sig mjög vel fá þeir bæði eyrum
en sé það álit forsetans að ekki verði betur
gert fær nautabaninn bæði eyrun og hala
nautsins. Slíkur heiður fellurjafnvel bestu
nautabönunum ekki oft í skaut.
Forsetinn gefur merki úr stúku sinni með
því að láta vasaklúta falla fram af brún henn-
ar. Þeir hafa tvo liti, hvítan og bláan. Hvítan
klút notar forsetinn til að gefa hljómsveitinni
merki um að hefja lúðrablástur í upphafi
nautaatsins og síðan eftir það þegar hann
gefur hljómsveitinni merki, en hljómsveitar-
leikurinn gegnir mikilvægu hlutverki í nauta-
atinu. Ef naut þykir standa sig vel ber því sú
virðingdauðu að vera dregið hægt einn hring
á vellinum, áður en það er dregið út af. For-
setinn lætur bláan vasaklút falla fram af
svalahandriðinu til merkis um þetta. Sem fyrr
segir ræður forsetinn því hvaða verðlaun
nautabaninn fær. Oft eru áhorfendur ósarn-
mála ákvörðun forsetans og láta óánægju sína
í ljós með kröftugu púi. Hljóti nautabani verð-
laun.einhveraf þessum þrennum, er hann
borinn á gullstól heiðurshring um völlinn af
aðstoðarmönnum sínum, „Los bandarillos“.
Kasta þá áhorfendur til hans blómum, höttum
eða öðru léttu og lauslegu, honum til heið-
urs. Aðstoðarmenn hans skila öllu aftur nema
klútum og blómum.
Hljómsveit
A hverju nautaati leikur hljómsveit. Hlut-
verk hennar er í raun að tímasetja hvert atriði
nautaatsins og hefur hver nautabani tuttugu
mínútur til að ljúka af öllu því sem hann á
að gera við hvert naut, en atriðin eru mörg.
Sumt framkvæmir hann undir leik hljómsveit-
arinnar en þegar hún stoppar er tíminn liðinn.
Önnur atriði framkvæmir hann án undirleiks
21. TBL VI K A N 61