Vikan


Vikan - 26.11.1987, Síða 5

Vikan - 26.11.1987, Síða 5
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON Bubbi með gullplötuna sem hann fékk fyrirfram fyrir nýj- ustu plötu sína, Dögun. Einnig heldur hann á platínuplötu sem hann fékk fyrir „Frelsi til sölu“, sem nú hefúr selst í tæplega tuttugu þúsund ein- tökum. lega tuttugu þúsund eintökum, sem er aö sjálfsögöu íslandsmet. Þegar Bubbi var beðinn um að segja álit sitt á því aö markið fyrir gullplötur heföi verið lækkað úr fimm þúsund seldum plötum nið- ur í þrjú þúsund sagði hann: „Ég er mjög ósáttur við þetta. Nú er alls ekki jafn mikið metnaðarmál að seljast í gulli. En ætli plötu- innflytjendur hafi ekki viljað senda Whitney Houston og U2 gullplötur frá íslandi?" - AE Myndbönd: Starfsmannahópur frá Steypu- stöðinni brá sér í skemmtiferð til Skotlands fyrir ekki svo löngu síðan. Þar kynntust þeir ákaflega hressum Skotum, sem gerðu sér lítið fyrir og endur- guldu heimsóknina um síð- ustu helgi. Komu þeir í fúllum skrúða með sekkjapípur I £ar- teskinu. Léku þeir nokkur vel valin lög á árshátíð Steypu- stöðvarmanna og einnig létu þeir til sín heyra í Kringlunni á laugardaginn viðstöddum til óblandinnar ánægju . „Svarti markaðurinn í sókn á íslandi" — rætt við Elizabeth Greenspan frá MPA „Eftir velheppnaðar að- gerðir lögregluyfirvalda í desember á síðasta ári er svarti markaðurinn á mynd- böndum á íslandi aftur í sókn og ég tel að frekari að- gerða af hendi stjómvalda sé þörf, áður en dómar hafa gengið í þeim málum sem nú em til meðferðar því það tekur ávallt nokkurn tíma að fa niðurstöður í þeim,“ segir Elizabeth Greenspan en hún er yfirmaður þeirrar Evrópu- deildar MPA sem berst gegn „sjóræningjastarfsemi“ á myndbandamarkaðinum. Greenspan var nýlega stödd hér á íslandi, á vegum Samtaka rétthafa myndbanda, og kynnti Að áliti Elizabeth Greenspan er íslenski myndbandamarkaður- inn mjög áhugaverður vegna þess hversu íslendingar nota myndbönd meira en almennt gerist erlendis. hún sér þá stöðu mála hér en MPA eða Motion Picture Export Association of America, mun leggja fram fjarmagn til starf- semi SRM til að styðja við bar- áttu SRM gegn ólöglegu mynd- bandaefni á markaði hérlendis. „Miðað við önnur Evrópu- lönd er ísland í hærri kantinum hvað varðar ólöglegt mynd- bandaefhi á markaðinum og telj- um við að það sé allt að 35% af því efni sem faanlegt er,“ segir Greenspan. í máli Greenspan kemur fram að íslenski myndbandamarkað- urinn er mjög áhugaverður í þeirra augum, hér sé mun meiri notkun á þessu afþreyingarefrii en almennt gerist erlendis og því vilja MPA leggja fram sinn skerf í að halda markaðinum sem mest innan löglegra marka. Aðspurð um umfang „sjó- ræningjastarfeeminnar" í heim- inum segir Greenspan að ómögulegt sé að nefiia nokkrar tölur í því sambandi en ljóst er að veltan er gífúrleg. Hún nefriir sem dæmi myndina E.T. Sú mynd var fjölfölduð ólöglega í Hollandi skömmu eftir að hún kom á markaðinn og í það miklu magni að Universal sá ekki á- stæðu til að fjölfalda hana á lög- legan hátt þar sem markaðurinn hafði verið eyðilagður fyrir fyrirtækinu af „sjóræningjun- um“. Um starfeemi þeirrar deildar sem hún veitir forstöðu segir Greenspan að nú sé verið að auka hana mjög, bæði hvað mannafla varðar svo og fjármagn. í Evrópu vinni nú um 300 rannsóknaraðilar, ásamt lögfræðingum og forsvarsmönn- um samtaka á borð við SRM, að því að berjast gegn hinu ólög- lega eða svarta markaði á þessu sviði og hefur árangurinn orðið töluverður. FRI. VIKAN 5 UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.