Vikan - 26.11.1987, Side 7
að ritstjórar Vikunnar verði
látnir sæta refsingu fyrir um-
mæli sem blaðið hefur eftir lög-
manni í Reykjavík, sem segir að
hann viti til að Pétur eigi „lang-
an fjársvikaferil að baki og að
margir eigi um sárt að binda eft-
ir að hafa glapist til að eiga við-
skipti við eitthvert af fyrirtækj-
unum hans Péturs.“ Stefnandi
telur þessi ummæli hina versu
fjarstæðu og alvarlegar aðdrótt-
anir.
Fyrir ummæli annars lög-
manns krefst stefhandi refsing-
ar, en sá sagði við blaðið að
hann teldi það „gloppu í kerfinu
að menn geti haldið áffam í við-
skiptalífinu eftir að búið er að
dæma þá fyrir glæpsamlegt at-
hæfi í viðskiptum."
í stefnunni segir m.a. að það
sé „fjarstæða að stefnandi hafi
nokkurn tíma fengið slíkan
dóm.“ Stefhandi getur þess þó
ekki hvort hann hafi þá verið
dæmdur í fangelsisdóm af
Hæstarétti fyrir eitthvað annað
athæfi sem ekki hefur þá verið
talið glæpsamlegt. - MG
verið hnepptur í fjögurra vikna
gæsluvarðhald, þar sem hann
hefúr reynst mjög ósamvinnu-
þýður við norsk lögregluyfir-
völd, sem hafa enn enga hug-
mynd um örlög Piu Jespersen.
Norska lögreglan hafði lítið
sinnt kröfum íslenska dóms-
málaráðuneytisins síðan í
sumar, um rannsókn á hvarfi
stúlkunnar, fyrr en grein um
málið birtist í Vikunni í síðasta
mánuði og fyrirspurnir blaðsins
leiddu til að lögregluyfirvöld í
Noregi notuðu myndir úr grein-
inni til að lýsa eftir Peter og Piu
Jespersen.
Móðir Piu, Ingelisejespersen,
segir að hún óttist um líf dóttur
sinnar í höndum Peters Jesper-
sen, þar sem hann hafi illræmd-
an afbrotaferil að baki.
Zappa Islands
tekinn tali
Flestir hafa einhvemtíma
á lífsleiðinni haldið sérstak-
lega upp á einhverja hljóm-
sveit eða tónlistarmann. Val-
ið á átrúnaðargoðum breyt-
ist með tímanum og nú em
böm þeirra sem betrekktu
veggi með Bítlunum með
plaköt af Madonnu upp um
alla veggi.
Þessi dýrkun á tónlistarmönn-
um er yfirleitt bundin við ung-
lingsárin en þó eru alltaf ein-
hverjir sérvitringar sem halda
tryggð við átrúnaðargoðin þó
að fullorðinsárunum sé náð.
Einn þessara manna er Zappa
„fríkið" Sverrir Tynes sem ætti
að vera óhætt að titla mesta að-
dáanda Frank Zappa á íslandi,
enda hefur hann gengið undir
nafhinu Zappa íslands.
Á allt með
meistaranum
.Auðvitað eru þetta trúar-
brögð," segir Sverrir um þessa
dýrkun sína. „Meistarinn er í
sérflokki og það nálgast hann
enginn.“ Þegar undirritaður
spyr hvað sé svona sérstakt við
Zappa stendur ekki á svari:
„Meistarinn sagði sjálfur I’m
fantastic, honest and wonderful.
Ég er honum algerlega sam-
mála.“
Sverrir hefúr verið aðdáandi
Zappa frá því hann var þrettán
ára og hefur á þeim tíma safnað
öllu sem meistaranum viðkem-
ur. Hann á 130 plötur með goð-
inu, þar af um 80 svokallaðar
„bootleg" plötur (það er ólög-
legar hljómleikaupptökur). Að
auki eru í safninu á áttunda tug
kassettna með hljómleikaupp-
tökum, tólf klukkustunda efni á
myndböndum, allir tuttugu
geisladiskarnir sem hafa verið
gefhir út og heilu möppurnar af
úrklippum og viðtölum. Þess
má geta að einn „bootlegginn"
hans var gefinn út í 200 eintök-
um. Eintakið hans Sverris er
númer 42 og platan var komin á
fóninn hjá honum innan við
mánuð eftir að tónleikarnir fóru
fram.
Svaf á flugvellinum
Hefúr Sverrir þá ekki séð goð-
in á sviði? „Fjórum sinnum.
Fyrst ’78 í London. Ég átti að
fara heim á laugardegi, en frest-
aði heimforinni fram á mánudag
til að ná tónleikunum. Ég var
allslaus fyrir utan flugmiðann
heim og svo miðann á tónleik-
ana og svaf bara á flugvellinum í
tvær nætur. Hef aldrei sofið bet-
ur enda ennþá í vímu eftir
hljómleikana. Svo fór ég í píla-
grímsferð árið ’82. Þá fór ég út á
föstudegi og kom aftur á sunnu-
degi. I millitíðinni náði ég
þremur tónleikum."
Ráðstefna í desember
Sverrir hefur haldið sambandi
við nokkra aðra Zappa aðdáend-
ur hér á landi og síðastliðið vor
var haldið skrautlegt Zappa
kvöld. Nú stendur til að stofna
formlega aðdáendaklúbb hér á
landi og undirbúningurinn er í
fúllum gangi. „Við stefnum á
fúnd um miðjan desember og
við vonum að sem flestir mæti á
þennan stofnfúnd. Ég er viss um
að það er hellingur af Zappa að-
dáendum í felum út um land
allt. Ég hvet þá alla til að vera
vakandi fýrir auglýsingum um
fúndinn á næstunni, en hann
verður rækilega auglýstur. Svo
er bara að mæta og vera með í
gamninu." -AE.
Sverrir hetúr safnað öllum plötum meistara Zappa, 130 talsins. Þar á meðal eru einnig ólöglegar
upptökur á hljómlist hans.
VIKAN 7