Vikan - 26.11.1987, Page 8
Fíkniefnaneysla á Litla-Hrauni:
„Margir kynnast hassi
fyrst á Litla-Hrauni"
Fíkniefnaneysla á Litla-Hrauni heíur nú komið til kasta Alþingis.
— segir fyrrver-
andi fangi
„Dóp kemur alltaf inn
á Litla-Hraun. Magnið af
því fer eftir markaðinum
í Reykjavík. Ef lítið er til
af efnum í borginni kem-
ur lítið inn á Hraunið og
öfugt,“ segir fyrrum
fangi af Litla-Hrauni í
samtali við Vikuna en
hann vill ekki láta nafns
síns getið af skiljanleg-
um ástæðum.
Fíknieíhaneysla á Litla-Hrauni
hefur nú komið til kasta Alþing-
is því í fyrirspurn eins þing-
manna Borgaraflokksins, Guð-
mundar Ágústssonar til dóms-
málaráðherra um fangelsismál
er m.a. spurt hvort neysla fíkni-
efna hafi verið könnuð í fangels-
um landsins.
En grípum aftur niður í frá-
sögn fangans:
„Fangaverðirnir vita vel af
þessari fíkniefnaneyslu og um
helmingur þeirra leiðir hana hjá
sér ef neyslan er nett,“ segir
hann og bætir því við að á því
ári sem hann sat inni var leitað
fjórum sinnum að fíkniefnum.
Robbi og
Mebbi
Pillur þær sem hér er rætt um
er dóp sem smyglað er inn á
Litla Hraun en ekki gefið út á
lyfseðla frá lækni. Þessar pillur
ganga undir ýmsum gælunöfri-
um, dæmi: Moggi (Mogadon)
Robbi (Robinol) Mebbi (Metha-
don) og Dísur (Dizapan).
Fanginn sem við ræddum við
segir að föngunum sé bannað að
drekka kók þar sem slíkt er talið
geta aukið pilluvímuna. Hins-
vegar er ekkert amast við kaffl-
drykkju sem ku vera mun betri
til þessara hluta en kók.
„í einni af þessum leitum
fannst 0,3 grömm af hassi auk
þess að kertastjaki sem reykt
hafði verið úr og ein pípa voru
gerð upptæk. Ekkert fannst í
hinum þremur leitunum."
Ekkert er auðveldara en að
smygla fíkniefhum inn á Litla-
Hraun því bannað er að leita á
gestum sem koma til fanganna
nema um rökstuddan grun sé að
ræða um smygl.
„Ég man eftir því að aðeins
einu sinni fannst dóp í heim-
sókn þetta ár sem ég var þarna.
Komið var að einni stúlku sem
var að taka töluvert magn af pill-
um úr dömubindinu sínu,“ segir
fanginn.
„Það er ekkert mál að smygla
fíkniefhum inn á Litla-Hraun.
Fyrir utan heimsóknir til fanga á
sunnudögum eru aðrar leiðir
færar. Sem dæmi má nefna að
bílar koma stöðugt inn í fangels-
ið til að sækja hellur þær sem
fangarnir framleiða."
Vandamálin aukast ef
ekkert hass er til
Fanginn sem við ræddum við
telur að neysla á fíkniefnum,
sérstaklega hassi, innan fangels-
isveggjanna sé ekki vandamál
sem slíkt en vandamálin aukist
að mun ef ekkert hass er að fá.
„Ef hasslaust verður í bænum
og þar af leiðandi á Hrauninu,
aukast vandamálin innan veggja
þess til muna. Menn verða upp-
stökkir og trekktir og taka reiði
sína út á öðrum föngum, leita að
ástæðum til að gera uppsteit og
vera með læti,“ segir fanginn.
„Fíkniefhaneyslan skiptist í
klíkur innan fangelsisins. Raunar
má kalla þær 1. 2. og 3. deild,
eftir því hvort menn eru pillu-
ætur, hasshausar eða að reyna
að halda sér hreinum.
Þessar klíkur halda svo aftur
hópinn utan veggja fangelsisins.
1. deildin eru pilluæturnar og
eru þær um 20% af föngunum.
Þetta eru menn sem eiga ekki
minnstu möguleika í lífinu. Er
þeir losna út og koma með pok-
ann sinn á Umferðarmiðstöðina
byrja þeir á því að leita uppi
klíkuna. Um leið og þeir finna
hana eru þeir komnir aftur í
„ruglið“, pilluát, innbrot og ves-
en og yfirleitt eru þeir komnir
aftur inn á Hraunið eftir skamm-
an tíma. 2. deildin er hassreyk-
ingarmennirnir um 70% af
föngunum og 3. deildin, hinir
hreinu, eru svo um 10% afföng-
unum.“
Verða fyrir aðkasti
Hjá fanganum kemur ffarn að
þeir sem eru að reyna að halda
sér frá dópinu, 3. deildin, verða
oft fyrir miklu aðkasti af hálfu
hinna, sérstaklega 1. deildarinn-
ar.
„Hér er ekki um líkmalegt of-
beldi að ræða, heldur hitt að
búnar eru til um þá rógsögur
innan fangelsisins og sá sem
verður fyrir slíkum rógi verður
að afsanna hann eða vera út-
skúfaður ella,“ segir fanginn.
„Ég veit um dæmi þess að
menn biðji um flutning á ein-
angrunardeild vegna aðkastsins
frá pilluætunum en það er al-
gjört neyðarúrræði því einan-
grunardeildin er fyrir erfiðustu
fangana, þá sem geta á engan
hátt fallið inn í lífið á almennu
deildinni.“
Dópið kemur
á sunnudögum
Er við biðjum fangann að lýs'a
ferli fíkniefhaneyslunnar á Litla-
Hrauni segir hann:
„Yfirleitt kemur dópið á
Hraunið á sunnudögum, eða
heimsóknardögum, og yfirleitt
endist það föngunum fram á
miðvikudag enda er nýtnin á því
hreint ótrúleg. Síðan fer óróinn
vaxandi meðal fanganna ffarn á
laugardag en þá varpa allir önd-
inni léttar, það er sunnudagur á
morgun.
Ég man að fýrir síðustu ára-
mót, spöruðu allir sér smáhass-
mola fýrir gamlárskvöld og í
staðinn fyrir að skjóta upp flug-
eldum fengu allir sér í pípu.
Þetta urðu mjög róleg áramót
hjá okkur, svo róleg að fangels-
isyfirvöldin höfðu orð á því.“
Hass gengur kaupum og söl-
um innan Litla-Hrauns og er
verðið á því þar tvöfalt það verð
sem fest fyrir hass á götu-
markaðinum í borginni. Fanginn
8 VIKAN