Vikan


Vikan - 26.11.1987, Page 9

Vikan - 26.11.1987, Page 9
Meðan við ræddum við fangann teiknaði vinkona hans þessa mynd af Litla-Hrauni. lætur þess getið að þótt „hall- æri“ sé í borginni sé alltaf eitt- hvað sem slæðist inn á Hraun- ið... „ég man eftir því að í eitt skipti, þegar verkfallið var 1984, var algjör þurrð á hassi í bænum og þá kom fólk á Hraunið að kaupa sér hass.“ í máli fangans kemur fram að hann þekki fullt af mönnum sem kynntust hassi í fyrsta sinn á Litla-Hrauni, þekktu ekkert til þess áður en þeim var stungið inn. „Þeim flnnst að neysla þess hjálpi sér við að þola vistina bet- ur og þá er kannski komið að því atriði sem er orsökin að allri þessari dópneyslu meðai fang- anna og það er aðbúnaðurinn innan íangelsisins. Sem dæmi um slæman aðbúnað get ég nefht að þegar ég kom þangað inn var ein sturta til fyrir 46 fanga og hún var þar að auki svo þétt þakin sveppagróðri að allir fangarnir voru á inniskónum í baði. Nú er að vísu búið að breyta þessu aðeins til betri vegar en miklu meira þarf til að gera staðinn að betnmarhúsi. Eins og er virkar þetta sem geymsluhús fyrir óæskilegar persónur og býður ekki uppá neina raunhæfa möguleika til handa þeim sem vilja bæta sitt ráð,“ segir fanginn. Þingmaður í heimsókn Eins og við gátum um í upp- hafi hefúr Guðmundur Ágústs- son einn þingmanna Borgara- flokksins lagt ffam fyrirspurn á Alþingi um fangelsismál. Hann dvaldi nýlega daglangt á Hraun- inu til að kynna sér aðstæður og ræddi bæði við fangelsisyfirvöld og fangana sjálfa. Við spurðum hann um þessa heimsókn og hvers hann hefði orðið vísari. „Þetta kom mér fyrir sjónir þannig að fangelsisyfirvöldin vilja ekki kannast við neitt fíkni- efnavandamál á þessum stað eða gera neitt í málinu þótt þeir geri sér grein fyrir að það er til staðar," segir Guðmundur Ágústsson. „Eina leiðin að mínu mati til að stemma stigu við vandamál- inu er að þeir sem áhuga hafa á að halda sig frá fíkniefnum inn- an veggja fangelsisins verði gert það kleyft með því að hafa fang- elsið deildarskipt." í heimsókn sinni ræddi Guð- mundur við eina 20 fanga og segir hann að þeir hafi ekki fremur en yfirvöldin viljað kannast við fíkniefnaneyslu utan einstaka menn... „einn þeirra spurði mig raunar að því hvort ég hefði ekki tekið eftir hve menn væru almennt trekktir eða taugaóstyrkir og sagði hann ástæðuna þá að svo langt væri liðið á vikuna öll efni væru búin.“ En hefúr þessi deildarskipting eitthvað verið til umræðu? „Sá forstjóri sem nú er á Litla- Hrauni hefúr reynt að ýta við dómsmálaráðuneytinu en án árangurs. Ég vil benda á í þessu sambandi að reynslan í Svíþjóð af svona deildarskiptingu er mjög góð. Þeir sem vilja komast í „betri deild" verða að undirrita yfirlýsingu þess efhis að þeir neyti ekki fikniefna og hagi sér skikkanlega og á móti njóta þeir ýmissa fríðinda sem aðrir fangar hafa ekki.“ Guðmundur nefnir einnig að til að bæta vistina og gera hana bærilegri telji hann algjöra nauðsyn að vinnuskylda fang- anna sé aukin, í dag sé hún 3 tímar á dag en verði að fara í 8 tíma á dag. —FRI Út og inn sama dag í viðtalinu við fangann kemur fram að pilluæturnar séu yfir- leitt menn sem enga möguleika hafi í lífinu og séu þeir yfirleitt heimagangar á Hrauninu. Hér er ein lítil dæmisaga af tveimur þeirra. Þeim var hleypt út úr fangelsinu kl. 8 um morguninn. Þeir voru komnir niður á Um- ferðarmiðstöð með pokana sína kl. 10 og klukkan 3 sama dag var búið að stinga þeim inn í gæslu- varðhald vegna afbrota. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.