Vikan - 26.11.1987, Blaðsíða 12
Okurlánaviðskiptin
Þeir sem oft leggja leið
sína niður Laugaveginn
taka eftir að í ár hefur
mikið verið um eigenda-
skipti á tískuvöruverslun-
um, það er, þær skipta ört
um nafn, ef undan eru
skildar þær þekktustu og
grónustu í götunni. Nú
berjast yfir 90 slíkar versl-
anir um kúnnana á Lauga-
veginum og eiga þar að
auki í harðri samkeppni
við hina nýju verlsunar-
miðstöð Kringluna.
Samkeppnin á þessum mark-
aði hefur stöðugt farið harðn-
andi á undanförnum árum og
beita menn ýmsum brögðum til
að klekkja á „andstæðingnum".
Dæmi eru um að menn reyni að
ræna þekktum merkjum ffá
hvor öðrum eða þá borga stórfé
til þess að fá umboðin fyrir þessi
merki.
En þótt harðandi samkeppni
kalli á aukið fjármagn hefur hið
undarlega gerst að okurlánavið-
skiptin eru nær alveg úr sögunni
á þessu sviði og er það einkum
vegna þess að breyttur fjár-
magnsmarkaður á íslandi hefur
gert það kleyft að útvega nauð-
synlegt fjármagn eftir löglegum
leiðum.
Víxlar í stað tékka
Áður en fjármagnsmarkaður-
inn breyttist var algengt að eig-
endur tískuvöruverslana, sem
skorti fjármagn til að leysa vör-
ur úr tolli, einkum fyrir jólaver-
tíðina, leituðu til okurlánara og
fengu reiðufé í skiptum fyrir
tékka dagsetta fram í tímann. Af-
föllin voru oft mikil og algengt
að fyrir 100 kr. ávísun fengjust
aðeins 70—80 kr. í reiðufé.
Nú horflr málið öðruvísi við.
Einn þeirra er Vikan ræddi við
og hefur töluverða reynslu í
þessum viðskiptum sagði að nú
gerðust kaupin á eyrinni á eftir-
farandi hátt:
Ef verslunareigandi þarf að
leysa út vöru sína en skortir til
þess fé hefur hann samband við
fjársterkan aðila og lætur hann
fá farmbréf og aðra nauðsynlega
pappíra. Hinn fjársterki útfyllir
síðan pappírana eins og hann sé
innflytjandi vörunnar og leggur
þá inn í tollinn, borgar vöruna í
banka og leysir hana út.
Síðan leggur hann 15% ofan á og getur hver sem er dundað
þá upphæð sem hann þurfti að við að reikna ársvextina af því
snara út auk kostnaðar sem yfir- dæmi en þeir eru fjögurra stafa
leitt er um 5% í viðbót. Síðan tala.
lánar hann verslunareigandan-
um þetta á 45 daga víxli.
Með þessum hætti fáest árs-
ávöxtun upp á 120% á meðan
ársvextir í landinu eru almennt
34% í dag.
Raunar má segja að ársvextir
þeir sem hinn fjársterki aðili fær
út úr þessu dæmi séu mun hærri
því hann selur yfirleitt víxilinn
strax í banka, eða innan 2ja til
3ja daga eftir að hann fær hann
12 n/IKAN