Vikan


Vikan - 26.11.1987, Side 13

Vikan - 26.11.1987, Side 13
alveg úr sögunni enn meira glæfraspil en hitt því þekkt merki er oft nóg til að selja flík þótt hún sé kannski ekki beint í tísku þá stundina. Pegar keypt er á útsölumörkuð- um ytra er oft rennt blint í sjó- inn hvort þessi fatnaður hrífi ís- lendinga eða ekki. Stærsti markaðurinn fyrir tískufatnað er fyrir fólk á aldrin- um 14—30 ára og meira er að hafa upp úr yngri hluta þessa fólks því það er á breytinga- skeiðinu og skiptir því oft um fatastíl. Eldri hlutinn stílar meir inn á Idassískan fatnað sem endst. getur í mörg ár. Yngra fólkið á hinsvegar ekki eins mik- ið af fé milli handana og hið eldra og hafa margir farið flatt á því að vera með dýr föt fyrir þennan hóp og margir svo aftur á móti hagnast vel á því að vera með föt á hagstæðu verði fyrir unglingana. Eldra fólkið er svo mun stöðugri markaðshópur. En flestir vilja tolla í tískunni á einhvern hátt og meðan svo er verður að teljast ólíklegt að tískuverslunum við Laugaveg- inn eða annars staðar fekki úr þeim fjölda sem þær eru í dag. —FRI Þeir sem stunda þessi við- skipti láta sér oftast ekki nægja að taka aðeins við víxlinum sem greiðslutryggingu og vilja því fá aðrar tryggingar til að standa á bakvið „íjárfestingar" sínar og sögur eru um að einn aðili eigi í raun á milli 10 og 20 verslanir við Laugaveginn í gegnum veð- setningar eigenda þeirra honum til handa. Skussarnir síast út Margir telja að verslun með tískufatnað sé skjótfenginn gróði einkum vegna þeirra sagna sem verið hafa á kreiki um gífúrlega álagningu á þessari vöru. Þessir aðilar komast yfir- leitt að öðru er á hólminn er komið. Einn eigandi tískuvöruversl- unar sem verið hefúr í þessum viðskiptum um fjölda ára segir að skussarnir síist fljótlega út á þessum markaði.....þeir bestu hljóta að lifa af, þeir sterkustu halda velli..." í viðtölum Vikunnar við fólk á þessum markaði kom fram að hann getur verið nokkuð stórt lottó, það er tískan breytist ffá degi til dags, það sem er „heitt“ í dag er „frosið" á morgun. Þeir sem eru með umboð fyrir þekkt merki verða oftast að kaupa vör- ur sínar frá þeim sex mánuðum fram i tímann og verða því að geta séð út hvað verður í tísku þá. Síðan eru til verslanir sem notast mikið við varning keypt- an á útsölum erlendis, mest í London og Hollandi og það er VIKAN 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.