Vikan - 26.11.1987, Síða 14
„Hætti ef ég festist
í ákveðinni persónu I Ladda
Þórhallur Sigurðsson, bet-
ur þekktur sem Laddi, hefur
að undanförnu skemmt
landsmönnum í íslensku
Óperunni og hafa faerri kom-
ist að en vilja enda er maður-
inn einn vinsælasti skemmti-
kraftur landsins. Við hittum
Ladda baksviðs eitt kvöldið
og ræddum við hann um
starfið og þær persónur sem
hann hefur skapað. Fyrst var
Laddi spurður hver væri
uppáhalds persóna hans eða
gervi.
„Ég held mest upp á Eirík
Fjalar, hann er alveg sérpersóna,
hefiir sitt eigið líf og er alls ekki
ég“
En hvemig varð hann til?
„Bara allt í einu, eiginlega
sem spuni. Ég var að prófa mig
áfram með persónu á hans nót-
um í samvinnu við Andrés Ind-
riðason í leikaraverkfallinu
1984 og þá þróaðist Eiríkur
Fjalar. Hann átti að verða klaufi,
svona eilífðarstúdent með sítt
hár og rúllukragapeysu, svona
bongó og gæru gæi eins og mað-
ur sá oft niður í miðbæ. Hann
þroskast ekkert og fer óvart út í
skemmtiiðnaðinn og verður þar
svona eilífðar skemmtikraftur,
maður sem alltaf er að reyna að
slá í gegn en tekst aldrei alveg,
en hann er alltaf við það að ná
því.“
Þegar þú segir að Eiríkur
Fjalar sé sérpersóna ertu þá
ekki hræddur um að verða
kleyfhugi með því að leika
hann of oft?
„Um leið og ég set mig í gervi
hans hugsa ég öðruvísi. Maður
gjörbreytist og á sviðinu verður
maður Éiríkur í stað Þórhalls en
ég hef ekki enn ruglast á þeim
og þegar það gerist þá er tími til
kominn að snúa sér að ein-
hverju öðru. Ég hætti ef ég fest-
ist í ákveðinni persónu og fer að
leita mér að annarri vinnu."
Ein vinsælasta persóna
sem þú hefúr skapað er
Skúli rafvirki. Hvemig varð
hann til?
„Skúli er sterkur karakter og
hann heíúr verið nokkurn tíma í
mótun. Hér áður fyrr bjó ég til
persónu sem ég kallaði bú-
ffæðinginn en sá breyttist síðan
í Skúla í fyrra er við voru með
dagskránna á Hótel Sögu. Þá
vildi Gísli Rúnar búa til tækni-
mann eða rafvirkja og Skúli varð
til en við notuðum sömu skalla-
kolluna á hann og var á búfræð-
ingnum þannig að þetta er að
verða þekkt kolla.“
Semurðu sjálfúr textann
sem þessar persónur segja?
,Já að miklu leyti en einnig
nýt ég aðstoðar fólks á borð við
Gísla Rúnar. Yfirleitt byggi ég
textann á daglega lífinu og oft er
maður svo djúpt sokkinn í ein-
hverjar pælingar að maður
breytist ósjálfrátt í þá persónu
sem maður er að hugsa um Ég
man einu sinni eftir því, er ég
var á gangi niður Laugaveginn,
þá var ég allt í einu farinn að
syngja hástöfum. Sem betur fór
voru fáir á ferli og enginn tók
eftir þessu. Og í vinahópi hefúr
stundum komið fyrir að ég fer
ósjálfrátt að geifla mig ef mér
dettur eitthvað sniðugt í hug og
þá er gjarnan spurt hver ég sé
núna.“
Taka áhorfendur mikinn
þátt í gríninu?
,Já alltaf eitthvað. í sýning-
unni sem ég var með á Sögu
voru margir sem vildu ræða við
persónurnar og stundum lenti
maður í því að röfla lengi við
einhverja gesti. Mér finnst þetta
ekkert vandamál og oft mjög
gaman ef það er gott fólk í saln-
um og allir í stuði. Svona hlutir
leiða oft til þess að atriði breyt-
ast, textinn er orðinn allt annar
að vori en hann var að hausti.
Maður heldur sumu inni sem
kemur upp í samskiptunum við
gestina en sleppir á móti öðru
sem maður hefúr samið sjálfúr
og það kemur mjög oft fyrir að
atriði eru endursamin."
Hefúr þér aldrei orðið
orðvant í samtölum við
gesti?
„Nei, ég sjálfúr mundi kannski
standa á gati en þessir karakter-
ar mínir geta alltaf röflað eitt-
hvað um hlutina. Þeim leyfist
líka í miklum mæli að stríða
fólki og ég get sagt eftir á að
þetta hafi ekki verið ég heldur
Eiríkur eða Skúli sem sögðu hitt
og þetta.“
Hverjir eru svo þínir upp-
áhaldsgrínistar?
„Það er Monty Python hópur-
inn. Þeir eru í miklu uppáhaldi
hjá mér eða sú tegund af gríni
sem þeir flytja.
Uppáhaldsgrínistinn minn er
John Cleese, mér finnst hann
hreint frábær.“
Hvað er það helsta sem er
framundan hjá þér?
„Fyrir utan óperuna er ég nú
að vinna að plötu sem koma á út
fyrir jólin. Hún heitir „Ertu bú-
inn að vera svona lengi?“ Þetta
er sjúkleg plata, allt á henni er
eitthvað sjúklegt, Saxi læknir á
þorrablóti, atriði byggð á
Heilsubælinu og Eiríkur Fjalar
verður einnig til staðar en ég
hef ekki gert upp við mig hvaða
sjúkdómi hann verður haldinn,
Feðgarnir
Eftir ítarlega rannsóknar-
blaðamennsku hefur Vikan
komist að því að þeir Skúli raf-
virki og Eiríkur Fjalar eru feðgar
og staðfesti guðfaðir Eiríks,
Laddi, það í samtali við okkur,
og sagði að þetta hefði komið al-
veg óvænt til er Skúli var feng-
inn til að skipta um ljósaperu
hjá konunni í næstu íbúð við
hans.
Af fjölskyldumálum þeirra er
svo annars að frétta að Eiríkur
Fjalar er kominn með kærustu
og mun það vera hjúkrunarkon-
an t Gervahverfi sem svo aftur
heldur við Saxa lækni sem lítur
hýru auga til Fjólu á gjörgæslu-
deildinni sem ber vonlausa ást
til Lilla sem er... o.s.frv.
14 VIKAN