Vikan - 26.11.1987, Síða 25
Piparhnetur
100 gr heslihnetur,
2 egg,
250 gr sykur,
275 gr hveiti,
1A tsk. hjartarsalt,
1A tsk. af hvoru hvítum pipar
og kardimommum,
1 msk. múskat.
Hakkið heslihneturnar, egg og sykur þeytt
vel saman. Hveiti, hjartarsalti, kryddi og
hnetum blandað saman við. Búið til litlar
kúlur úr deiginu og setjið á vel smurða,
eða bökunarpappírs lagða, plötu. Bakað í
175° C heitum ofni í um 20 mínútur.
Núggat-kremkökur
250 gr hveiti,
125 gr smjör,
75 gr malaðir valhnetukjarnar,
100 gr sykur,
1 lítið egg.
Fylling: 150 gr mjúkt núggat
Glassúr: 100 grflórsykur, 1 msk. sjóðandi
vatn, um 3 msk. romm.
Blandið saman þurrefnum og myljið
smjörið í, vætt í með egginu og hnoðað
hratt. Geymt í kæliskáp yfir nótt. Deigið'
sett á hveitistráð borð (eða á bökunar-
pappír) og álpappír settur yfir. Deigið er
síðan rúllað út þar til það er um 2 mm
þykkt. Kringlóttar kökur skornar undan
glasi (um 6 cm) og setjið þær á plötu með
bökunarpappír á. í helminginn af kökun-
um er stungið út gat með fingurbjörg í
miðjuna á hverri köku (fínt verkefni fyrir
börnin) og kökurnar síðan bakaðar í 200°C
heitum ofni í 12-14 mínútur.
Bakið heilu kökurnar fyrst og látið þær
kólna á kökurist, áður en núggatinu er
smurt á þær, en það er mýkt aðeins í batns-
baði. Glassúrinn er hrærður saman og hon-
um smurt á hringina um leið og þeir koma
úr ofninum. Leggið kökurnar saman.
Húsgangar
300 gr hveiti,
200 gr smjör,
100 gr sykur,
100 gr malaðir heslihnetukjarnar,
2-3 eggjarauður.
Eggjarauður til að pensla með, rifs-
berjahlaup, bökunarpappír.
Hveiti og smjöri blandað saman, sykrinum
og hnetukjörnunum blandað í og bleytt í
með eggjarauðunum. Deigið hnoðað vel
saman og geymt síðan í kæliskáp þar til
næsta dag.
Pá eru hnoðaðar litlar kúlur, á stærð við
vínber, og þeim raðað á plötu með bökun-
arpappír á. I hverja þeirra er mótuð hola
með skaftinu á trésleif sem áður hefur ver-
ið dýft í hveiti. Kökurnar eru penslaðar
með eggjarauðunni og síðan bakaðar í
200°C heitum ofni í 15-17 mínútur. Kök-
urnar teknar út og holurnar fyllt^r með
sultunni og síðan eru þær settar inn í heitan
ofninn í 2 mínútur í viðbót. Látið kökurn-
ar kólna vel áður en þær eru settar í dós til
geymslu.