Vikan - 26.11.1987, Qupperneq 34
Þessu tekur hún fyrst
Vertu nú alveg
heiöarleg og
segöu frá því
hverju þú tekur
fyrst eftir í fari
karlmanna?
Við Lundúnarháskóla var
gerð rannsókn á þessu og
kom þá í ljós að svarið sem
flestar konur gáíú var:
„grönn læri“. Einnig kom í
ljós að hingað til hefur verið
haldlð að konur hrífist mjög
svo af karlmönnum með
breiða bringu og kraftalega
upphandleggi, en sam-
kvæmt könnuninni er svo
alls ekki.
Á listanum yflr það sem kon-
ur taka fyrst eftir í fari karl-
manns er atriði númer tvö að
hann sé vel klæddur: þrjú: að
hann hafi flatan maga. Fjögur:
augun. Fimm: sé fótleggjalang-
ur. Sjötta sæti skiptist á milli
hársins og líkamshæðar. Sem
maka vildu konur yfirleitt ekki
hafa manninn mjög mikið hærri
en þær sjálfar. Sjö: hálsinn. Átta:
kynfæri. Níu: Breiðar axlir og
bringa. Tíu: Kraftalegir upp-
handleggir.
Körlum er því óhætt að hætta
að stunda kraftlyftingar og æfa
armbeygjur ef tilgangurinn var
sá einn að ganga betur í augun á
kvenfólki. Almenn líkamsæfing,
sérstaklega magaæfingar og
heilsusamlegt líferni kemur þér
áreiðanlega betur til góða.
Rannsókn var gerð við Loyola
háskólann í Chicago þar sem
konur voru látnar segja álit sitt á
nokkrum karlmönnum, en það
eina sem þær sáu af þeim var
skuggamynd. Þá kom í ljós að sá
sem fékk bestu ummælin var
karlmaður sem hafði granna fót-
leggi, var grannur eða meðal-
grannur yfirum sig og hafði
fremur breiðar axlir, þ.e.a.s. eig-
inlega V-laga.
Lélegustu ummælin fékk
“perulaga“ karlmaðurinn, þ.e. sá
sem var grannur að ofan og mik-
ið breiðari að neðan. Fleiri
skemmtilegar niðurstöður komu
úr könnuninni.
Það virtist sem persónuleiki
kvennanna sjálfra kæmi sterkt í
ljós þegar hún mátti aðeins velja
einn af skuggamyndunum sjö.
Þá kom t.d. í Ijós að fastheldnar,
sportlegar konur sem ástund-
uðu heilsusamlegt líferni virtust
fremur kjósa vöðvagranna
menn. En hinar sem Iifðu lífinu
og fengu sér í glas við tækifæri
eða jafnvel notuðu eiturlyf við
og við, kusu fremur lítinn mann
sem var allur nokkuð þéttvax-
inn. Og svo virtist sem hlédræg-
ar, íhaldssamar konur kysu al-
mennt kraftalegasta manninn.
Hvað með andlitið?
Hvers vegna heldurðu að
konur um allan heim leggi á sig
að halda húðinni ungri og
mjúkri, plokki augabrýrnar og
máli sig eftir kúnstarinnar
reglum? Svar: Til þess að leggja
ríka áherslu á muninn sem er á
andlitum karla og kvenna. Sem
hlýtur að þýða að hún vill hafa
andlit mannsins karlmannlegt;
með sterklega höku, loðnar
augnabrýr og jafnvel yfirvara-
skegg.
Þú þarft þó ekki að örvænta,
Adam, þó þú sért perulaga, sért
með nokkur aukakíló og hafir
ekki þessi kynæsandi grönnu
læri. Tölur sýna að konur leggja
ekki eins mikið upp úr útlitinu
einu saman og margir vilja
halda. Margt annað er þar ofar á
lista, á meðan karlamir vilja
helst halda sig í nærveru fegurð-
ardrottninga með málin: brjóst
89 cm, mitti 61 cm, mjaðmir 89
cm...Og þar að auki vilja þeir að
konur hafi fallegt andlit og jafri-
vel það á að vera kynæsandi!
Konur með ólíkan persónuleika velja sinn „uppáhalds" mann
á
I ■? 1. Þennan velur kona
■ sem er taugastrekkt,
IV hugsar lítið um útlitið og
II er stórreykingamann-
11 eskja.
f2. Konan sem velur
þennan er mjög grönn,
reykir nokkuð mikið,
drekkur ekki áfengi,
finnst aftur á móti mjög
gaman að spila en íþrótt-
ir eru aðal áhugamál
hennar.
? Mm ^ er opinská og á gott með
WW að umgangast fólk.
Drekkur ekki né reykir
V V og er sportleg mann-
-I % gerð.
A
mm 6. Þennan velur kona
II sem er uppreisnargjörn,
VI drekkur töluvert og not-
II ar jafnvel eiturlyf.
4. Kona sem velur þenn-
an er nokkuð jarðbundin
og formföst, spilar, fer
töluvert í bíó, er lítið gef-
in fyrir íþróttir.
5. Þennan velur kona
sem er enginn táningur
lengur, en er “frelsuð“
og býr með manni.
34 VIKAN