Vikan - 26.11.1987, Page 40
>**
Feitt
hár
og
meðferá
þess
Háriö fitnar vegna offram-
leiðslu fitukirtla á hársverð-
inum. Þegarfitan dreifistfrá
hársverðinum út í hárið,
verður það þungt og klesst,
en þetta er vandamál sem
hrjáir fjölda fólks. Feitt hár er
aldrei aðlaðandi og því er
nauðsynlegt að fólk sem á
við þetta vandamál að glíma
viti hvernig best er að
bregðast við hverju sinni.
Feitt hár er að vísu ekki heilsu
farslegt vandamál, þó margir
sjúkdómar virðast geta aukið
vandann. Hins vegar er offram-
leiðsla fitukirtla í hársverðinum,
oft langvarandi vandamál, sem
dregur venjulega ekki úr fyrr en
á fimmtugsaldrinum. Það hvim-
leiðasta við feitt hár er að það
útheimtir mikla vinnu að halda
því hreinu.
Þvoið oft
Lausnin á þessu óþægilega
vandamáli er að þvo hárið nógu
oft. Því hefúr oft verið haldið
fram að tíður hárþvottur örvi of-
framleiðslu fitukirtlanna en
þetta er rangt. Starfsemi fitu-
kirtlanna stýrist af hormónum
líkamans. Ef hárið fitnar jafiimik-
ið eða meira við tíðan hárþvott
er líklegt að notuð sé röng teg-
und af sjampói. Nauðsynlegt er
að nota sérsta^ar tegundir sem
hreinsa líka svitaholurnar í hárs-
verðinum þar sem fita safnast
oft saman og þá minnkar svita-
framleiðslan og hárið helst leng-
ur hreint.
Þvoið hárið fremur að morgni
en kvöldi, þar sem fitukirtlarnir
vinna jafint að nóttu sem degi og
sé hárið þvegið áður en gengið
er til náða, er það bara orðið
feitt aftur um morguninn.
Það er mikilvægt að þvo hárið
tvisvar í hvert skipti, þar sem
fyrri umferðin losar um fituna í
hársverðinum og í sjálfú hárinu
og sú seinni hreinsar hana burtu
með skolvatninu.
Nokkrar góðar
ábendingar
Notið sérstakar
hársápur
Við hárþvottinn er nauðsyn-
legt að nota góðar tegundir af
sjampói fyrir feitt hár sem leysa
algjörlega upp fituna og eru svo
öflug að þau geta leyst upp þá
tólgarkenndu fitu sem þrengir
sér út um hárslíðrið og sest svo
eins og tappi í svitaholurnar í
hársverðinum.
Eftir slíkan hárþvott er hárið
létt og lifandi og heldur sér
hreinu mun lengur en ella. Þeg-
ar svitaholurnar eru hreinar, er
svitaffamleiðslan í hársverðin-
um eðlileg, en þegar þær eru
stíflaðar af fitu verður offram-
leiðsla á svita.
Dæmi um sjampótegundir
sem sérstaklega eru ætlaðar fyr-
ir ofangreint vandamál eru:
L’OREAL El-Vital jurtasjampó,
WELLA Green Crisan og BIO-
THERM sjampó fyrir feitt hár.
Fitu- og svitaklístrað hár lykt-
ar oft óþægilega, en það dregur
einnig úrþessu vandamáli við
reglulegan hárþvott.
* Gel og blástursvökvi gera hár-
ið stíft niðri við rót svo það reis-
ir sig frá hársverðinum og fitnar
því ekki jafnfljótt.
* Hárúði fyrir feitt hár þurrkar
fituna í hárinu, svo hægt er að
bursta hana úr. Þetta er betri
lausn en þurrsjampó, ef maður
hefúr ekki tíma til að þvo hárið.
* Ef hárúði fyrir feitt hár notast
hvem dag, þarf ekki að þvo hár-
ið jaftioft og ella. Dæmi um slíka
hárúða er t.d. WELLA Hairspray
F62 SP, sem er yfirleitt ekki selt
annar staðar en á hárgreiðslu-
stofum.
* Forðist þéttar og hlýjar húfúr
sem þrýsta hárinu niður að hárs-
verðinum. Slíkt örvar svita-
framleiðsluna og klístrar hárið.
Feitt hár þarf að vera eins mikið
i fersku lofti og hægt er.
* Varist að bursta feitt hár, þar
sem burstinn dregur fituna frá
hársverðinum yfir hárið. Greið-
ið ykkur heldur með gróftenntri
greiðu.
* Permanent, hárlitun og strýp-
ur hafa áhrif á byggingu hársins
og lyfta því, þannig að það
klístrast síður.
40 VIKAN