Vikan - 26.11.1987, Page 58
tur á skjáinn
V
Loksins fá körfuknattleiks-
unnendur að berja snillingana í
bandarísku körfunni augum á
ný. Laugardaginn 5. desember
verður fyrsti þátturinn á þess-
um vetri á dagskrá Stöðvar 2.
Eins og í fyrra verður Heimir
Karlsson umsjónarmaður þátt-
anna en honum til aðstoðar
verður Einar Bollason körfu-
knattleiksþjálfari sem er tví-
mælalaust einn af fróðustu
mönnum landsins um NBA
deildina.
Leikni leikmannanna og hrað-
inn í leiknum er með þeim hætti
að varla þarf að vera körfuknatt-
leiksáhugamaður til að hafa gam-
an af að horfa á þessa þætti. Fyrir
sanna áhugamenn hljóta þeir
hinsvegar að vera helgistund vik-
unnar ásamt ensku knattspyrn-
unni. Reyndar hefur sá sem þetta
skrifar frétt af þó nokkrum sem
keyptu myndlykil einungis til að
geta fylgst með körfunni, svo mik-
ill er áhuginn.
Útlit er fyrir að deildin verði ekki
síður skemmtileg í vetur en í fyrra
þó að eitt lið sé talið skara nokkuð
fram úr hinum. Það eru meistar-
arnir frá í fyrra, Los Angeles Lak-
ers sem taldir eru sterkasta liðið í
ár, og því er almennt spáð að þeir
verði fyrsta liðið til að verja titilinn
síðan Boston Celtics afrekuðu
það 1969, sama ár og Kareem
Abdul Jabbar hóf feril sinn í at-
vinnumennskunni.
Nú er Kareem fertugur og ætl-
aði að hætta síðastliðið ár en þar
sem hann var búinn að tapa 9
milljónum dollara með hæpnum
fjárfestingum gat hann ekki hafn-
að tilboði Lakers sem hljóðaði
uppá rúmar 5 milljónir dollara fyrir
tveggja ára spilamennsku. Þessi
ótrúlegi leikmaður sem á stiga-
metið í NBA deildinni á að halda
miðherjastöðunni þar til árið
1989, en þá er talið líklegt að
Lakers reyni að kaupa David Ro-
bertson sem gegnir herskyldu
þangað til.
Ekki er nein þurrð á hæfileika-
mönnum í öðrum stöðum hjá
Lakers. í framherjastöðunni eru
þeir með James Worthy sem er
óstöðvandi þegar hann er í stuði
og A C Green sem kom á óvart á
síðastatímabili. Bakverðir Lakers
eru tvímælalaust þeir bestu í
deildinni. Erwin „Magic" Johnson
58 VIKAN