Vikan - 26.11.1987, Page 59
Þessi mynd er frá troðslukeppninni í hitteðfyrra, en þá sigraði Spudd Webb frá Atlanta Hawks. Webb er
aðeins 1.69 cm á hæð og eins og sjá má er stökkkrafturinn með ólíkindum.
arinnar síðasta keppnistímabil og
er að öllum líkindum besti leik-
stjórnandi heims fyrr og síðar auk
þess sem hann er farinn að skora
mun meira en hann gerði. Hinir
tveir bakverðirnir eru einnig frá-
bærir, Byron Scott sem er ein
besta skyttan í deildinni og Mic-
hael Cooper sem er talinn besti
varnarleikmaðurinn í deildinni. Að
auki eru Lakers taldir vera með
sterkasta varamannabekkinn af
öllum liðum.
Af þessari upptalningu má sjá
að liðið er firnasterkt og ekki sjá
menn að neitt lið ætti að koma í
veg fyrir að það komist í úrslita-
keppnina. Þó má ekki afskrifa lið
eins og Dallas Mavericks sem er
með geysilega sterka liðsheild
eða Houston Rockets sem teflir
fram „turnunum tveimur", þeim
Olajuwon og Ralph Sampson.
Á austurströndinni ættu Boston
Celtics að vinna og leika til úrslita
við Lakers. Að vísu eru flestir leik-
menn í byrjunarliðinu þeirra farnir
að eldast, en liðsheildin er samt
sem áður geysilega sterk. Lið
sem hefur Larry Bird innanborðs
verður aldrei auðveld bráð. Auk
hans eru frábærir leikmenn í öll-
um stöðum. Robert „Chief“ Par-
ish er meðal sterkustu miöherja
deildarinnar. I stöðu framherja er
Kevin McHale ásamt Bird.
McHale er Kklega sá leikmaður f
deildinni sem erfiðast er að
stöðva þegar hann er búinn að fá
boltann og á síðasta keppnis-
tímabili spilaði hann jafnvel betur
en Bird. Bakverðir eru hinn trausti
Dennis Johnson og Danny Ainge,
morðinginn með barnsandlitið.
Báðir eru í hópi allra bestu bak-
varða deildarinnar.
Celtics fá þó líklega mun harð-
ari keppni um sæti í úrslitunum
en Lakers. Austurdeildin er sterk-
ari og lið eins og Washington
Bullets með Moses Malone
ásamt stærsta og minnsta leik-
manni deildarinnar, (Manute Bol
og Tyrone Bogues sem er sá
minnsti sem sögur fara af, tæp-
lega 1,60 á hæð) gætu orðið Celt-
ics skeinuhættir. Önnur lið sem
gætu sett strik í reikninginn eru
Detroit Pistons, Atlanta Hawks og
Chicago Bulls. Hjá Bulls er hinn
ótrúlegi Michael Jordan allt f öllu
og ef hann fær meiri hjálp frá fé-
lögum sínum eru þeir til alls lík-
legir. Jordan var frábær á síðasta
keppnistímabili og skoraði að
meðaltali 37,1 stig í leik sem er
met þegar bakvörður á í hlut.
Áhorfendur ættu semsé að
geta hlakkað til spennandi vetrar
með jöfnum leikjum og glæsileg-
um tilþrifum. Ef spádómar sér-
fræðinga rætast ættum við svo að
fá að sjá æsispennandi úrslita-
leiki á milli Lakers og Celtics að
vori. - AE
Isiah Thomas, sem
spilar með Petroit
Pistons, er talinn
einn besti bakvörður
dnitdarinnar
VIKAN 59