Vikan


Vikan - 03.12.1987, Síða 27

Vikan - 03.12.1987, Síða 27
En kvöld eitt gerðist dálítið. í staðinn fyrir hina venjulegur spurningu á skjánum um lykilorð þá fylltist skjárinn af teiknaðri mynd. Mynd af mörg- um peningaseðlum. — Hver fjand ... sagði Gunnar undrandi. Undrunin breyttist í reiði þegar myndin hvarf og texti rúllaði upp á skjáinn: „Gott kvöld Gunnar Bergsson. Okkur þykir mikið til þess koma hversu duglegur og áræðinn þú hefúr verið. Á síðustu árum hef- ur mörgum sinnum verið reynt að „brjótast inn“ í tölvukerfl okkar. Þér einum hefur tekist þetta og þú hefúr nýtt þér tæki- færið á yfirvegaðan máta. En nú finnst okkur hér í Landsbankanum að þú hafir fengið að „skemmta" þér nógu lengi og að þú hafir þegið rífleg laun fyrir. Við leggjum því til að við hittumst og ræðum málið. Kannski getum við fúndið lausn sem báðir aðilar geta sætt sig við. Hvað að þér snýr þá leggj- um við til að þú látir þetta fara hljótt. Við höfum nægar sannan- ir í höndúnum. Mættu á morgun klukkan 12.00 í herbergi 544 í aðalúti- búinu í miðbænum." Bréfið var undirritað af aðal- tölvuforritara bankans og yfir- manni öryggismála. — Ertu veikur, spurði Bríet þegar hann kom inn í stofúna. Gunnar umlaði eitthvað um að sér væri illt í höfðinu. Hann fór beinustu leið í rúmið en svaf ekki dúr alla nóttina. Hann lá og bylti sér fram og til baka. Hann sá fyrir sér forsíður dagblað- anna. Óttinn greip hann heljar tökum. Herbergi 544 var ljóst og smekklegt. Þar tók Friðrik Andrésson aðaltölvuforritari bankans, maður um fertugt, vin- gjarnlega á móti honum. Yfir- maður öryggismála, Anton Björnsson, sem var líklega um sextugt virkaði aftur á móti þög- ull og drumbslegur. Friðrik hellti kafii í bolla. — Sem fagmaður er ég mjög hrifinn af hugmyndaríki þínu, tækni og hversu yfirvegaðar lausnir þú hefur fúndið, sagði hann. Friðrik sagði að hann hefi vit- að af Gunnari ffá því hann tengi sig fyrst inn á kerfið. — Tala þeirra „hákarla" sem reyna að komast inn er nokkuð há, en það er mikill munur á dugnaðinum. Áhugamennirnir fá bréf sent heim til sín þar sem þeim er tilkynnt að búið sé að uppgötva þá og að ef þetta endurtaki sig þá verði lögregl- unni afhent málið. Þeim áræðn- ari er tilkynnt þetta beint, sagði Friðrik og fékk sér vænan sopa af kaffi. — En þá sem eru reglulega duglegir viljum við gjarnan at- huga nánar... Gunnar Bergsson sat sem lamaður í stólnum. Anton, yfirmaður öryggis- mála, tók nú við. Hann notaði lögfræðileg orð og talaði um lagalegu hliðina. Hann nefndi þau refsiákvæði sem eiga við um fjárdrátt og nefhdi sem dæmi nýjustu dóma sem fallið höfðu í slíkum málum. Gunnar reyndi að segja eitthvað, en áður en það tókst tók Friðrik til máls aftur. - Það væri synd og skömm að láta jafn gáfaðan mann og þig nærast á vatni og brauði í mörg ár þegar svo mörg mál sem þarfhast lausnar liggja og bíða. Friðrik Andrésson brosti. Gunnar varð eitt spurningar- merki. — Þú hefúr sýnt mikla löngun til að komast inn í allt í „okkar" kerfi í eiginhagsmunaskyni. Hvernig væri að þú notaðir hæfileika þína til að komast inn í kerfi keppinauta okkar, fyrir okkur? Gunnar varð enn meira undarandi á svipinn, þó það væri varla hægt. — Þetta er einfalt mál. Þú kemst inn á kerfi keppinautanna og finnur okkur þar með leið til að komast að þeim upplýsing- um í tölvukerfinu sem „við“ höf- um áhuga á. Þú getur áfram fengið laun á sama hátt og nú nema með þeim breytingum að við viljum hafa eitthvað með þau að segja. Við borgum þér sömu laun og öðrum forritur- um, sem eru á milli 72—84.000 krónur á mánuði. Þá gerum við ráð fyrir að þú vinnir fúllan vinnudag og fáir fjögurra vikna sumarffí. Við munum að sjálf- sögðu neita því að við vinnum með þér verðir þú uppgötvað- ur. Hinir tveir sátu og horfðu á hann. Gunnar leit út eins og hann hefði fengið slag. Hann herti sig upp. — Ef ég segi nei? — Það má ræða um smáatriði en í aðalatriðum er málið frá- gengið frá okkar hlið. — Hinn valkosturinn er hér, sagði Anton og benti á umslag. Hér er nákvæm lýsing á því hvað þú hefur haft fyrir stafni. Eftir því sem lögfræðingur okk- ar segir þá er dómur fyrir brot eins og þitt á bilinu fimm til sjö ár. Valið er þitt! Gunnar andvarpaði þungt og lagði sígarettuna frá sér. Klukkan var orðin margt. Hann hafði unnið í heilan dag við það að reyna að finna alla stærstu viðskiptamenn Spari- sjóðsins með því að skoða hver staða þeirra væri 30. hvers mán- aðar. Þetta voru upplýsingar sem Landsbankinn ætlaði að nota í nýjustu auglýsingaherferð sinni, en hún hafði það að mark- miði að fá fleiri fyrirtæki í við- skipti hjá bankanum. Hann ætl- aði að halda áfram þar til Bríet kæmi heim úr vinnunni, en hún vann á kassanum á Esso bensín- stöðinni niðri á horni. Hún yrði líklega í seinna lagi því Mazdan var enn einu sinni á verkstæði. Gunnar dró sígarettureykinn djúpt að sér og starði á táknin á skjánum. Hann hugsaði til sumarfrísins. Þetta árið ætluðu þau að vera hálfan mánuð hjá foreldrum Bríetar í Landeyjun- um. Gunnar Bergsson andvarp- aði þungt... VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.