Vikan


Vikan - 03.12.1987, Síða 46

Vikan - 03.12.1987, Síða 46
Hvaða þáttur er það sem náö hefur afburðavinsældum þrátt fyrir að hann sé langt frá því að fylgja formúlunni? Hvaða þáttur sleppir öllum bílaeltingaleikj- um, hasar og glæsilegum hetjum en býður þess í stað upp á fremur hægan söguþráð, stofusamræður og rólegheit? Hann virðist jafnvel treysta á það að áhorfendurnir séu sæmilega skynsamlega hugs- andi verur sem hafi gaman af að reyna að geta sér til um lausnirnar á flóknum gátum. Morðgátum. Eftir langan feril í kvikmyndum og á sviði hefur Angela Lansbury fundið sjálfa sig í sjón- varpi í þáttunum Morðgáta sitt við að fá hlutverk, heldur var hún álitin skapgerðarleikkona auk þess sem hún hafði oft leikið mun eldri kvenmenn en hún var í raun. Þetta varð þess valdandi að þeg- ar hún kom aftur til starfa um fimmtugt mundu framleiðendur eftir henni í hlutverkum miðaldra kvenna og hún fékk hlutverk til- tölulega vandræðalaust. Angela vildi samt aldrei vinna við sjónvarp og hélt sig við kvik- myndirnar og leiksviðið sem er uppáhalds starfsvettvangur hennar. Eftir að hafa lesið hand- ritið að Morðsögu lét hún þó til- leiðast að koma fram fyrir þann stóra áhorfendahóp sem sjón- varpið nær til. Hún var líka mjög hrifin af því að geta veitt miðaldra konum uppreisn æru í sjónvarpi. „Þær eru sjaldnast sýndar sem lífsglaðar og gáfaðar. Þetta var tilvalið tækifæri til að breyta að- eins ímyndinni," sagði Angela um þegar hún var spurð hvers vegna hún hefði tekið hlutverkið að sér. Hún bætti við: „Fjárhagurinn spilar líka inn í málið. Ég fæ yfir eina milljón dollara á ári fyrir að leika í þáttunum og ég hélt að þetta yrði ekki voðalega erfitt. Það var ekki fyrr en ég var farin að leika í þáttunum sem ég komst að því að starfsdagurinn er stöðugt tólf tímar.“ Þessi mikla vinna hefur fengið Angelu til að ákveða að hún ætlar að hætta í þáttunum þegar hún hefur leikið í þeim þau fimm ár sem samningur hennar segir til um, enda ætti hún þá að hafa efni á því að lifa ró- legra lífi þar sem hún gæti leikið á sviði þegar hana langar til. Angela hefur mikinn áhuga á líknarmálum alls konar og reyn- ir að gefa sér tíma til að vera í vinnuhópum sem berjast gegn of- beldi á heimilum, barnaofbeldi og eiturlyfjaneyslu. Annað áhugamál hennar er garðrækt, en hún seg- ist því miður hafa alltof lítinn tíma fyrir þessi hugðarefni sín. Hún segist líka njóta þess svo mikið að leika að ólíklegt sé að hún eigi nokkurn tima margar tómsundir. „Þegar ég dey verða þeir að draga mig út af sviðinu," segir Angela. „Það þarf þó ekki að velta því fyrir sér hver hefur gert það, þar sem Morðgátan verður vonandi löngu búin og Jessica farin með henni.“ Fljótt á litið ættu þættir af þess- ari gerð ekki að eiga sér viðreisn- ar von í samkeppninni sem er ríkjandi á sjónvarpsmarkaðinum þar sem þættir virðast eiga allt sitt undir íburði og hraða. Hvers vegna er Morðgáta með Jessicu Fletcher þá svona geysilega vin- sæll myndaflokkur? Svörin við þessari spurningu hljóta að vera mörg, en að mestu leyti eru góðu handriti og aðal- leikkonunni þökkuð velgengni þáttanna. Leikkonan er gamla brýnið Angela Lansbury og hún hefur farið á kostum í hlutverki Jessicu og gert hana að einni vinsælustu persónunni á sjón- varpsskerminum. Angela á að baki langan og skrautlegan feril í leiklistinni sem hún hefur hlotið ýmsar viðurkenn- ingar fyrir. Meðal þeirra má nefna tvenn Tony verðlaun, ein Emmy verðlaun og tvær tilnefningar til Óskarsverðlauna fyrir leik ( auka- hlutverki. Þó hefur lífið verið langt frá því að vera sífelldur dans á rósum og fyrir tveimur áratugum var Angela í vafa um að hún myndi nokkurn tíma leika aftur. Þegar börn hennar voru bæði orðin illa farin af eiturlyfjaneyslu ákvað hún að leggja ferilinn á hill- una til að geta hjálpað þeim út úr ógöngunum. Þá var Angela þegar komin af léttasta skeiði og ekki talið mjög líklegt að hún mundi eiga auðvelt með að komast inn í iðnaðinn á ný. Þó var það henni til framdráttar að hún hafði aldrei treyst á útlit Lansbury, sem gert Morð- gátu að einum vinsælustu sjón- varpsþáttunum. Stingur í stúf en samt óhemju vinsæll 46 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.