Vikan


Vikan - 04.02.1988, Blaðsíða 33

Vikan - 04.02.1988, Blaðsíða 33
Heimamenn að Flúðum Hrunamannahreppi í Ámes- sýsiu hafa lagt mikla vinnu og fjármuni í að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn enda er hún orðin til fyrir- myndar. Gistiaðstaðan er sérstaklega skemmtileg en boðið er upp á mjög vistleg tveggja manna herbergi þar sem hvert herbergi hefur heitan pott fyrir sig við hús- vegginn. Önnur aðstaða er einnig til fyrirmyndar og má nefina að nýbúið er að endumýja búningsaðstöð- una við sundlaugina og er hún nú mjög vel útbúin með gufúbaði og ljósalampa. Þá er ónelnd önnur pjónusta sem nauðsynleg er fyrir ferða- menn meðal annars verslun, banki, viðgerðarverkstæði og tjaldstæði sem rekið er af Ferða- miðstöð Flúða sem einnig leigir út smáhýsi. Allt þetta leggst á eitt við að gera Flúðir að ákjós- anlegum ferðamannastað jafnt að vetri sem sumri til. Tilvalið fyrir ráðstefnur Flúðir eru ákaflega ákjósan- legur vettvangur fyrir ráðstefn- ur og námskeið ýmisskonar þar sem í boði eru salarkynni til samkomu- og fundarhalda í félagsheimilinu. Salirnir eru vel útbúnir og henta vel fyrir hópa af ýmsum stærðum. Á sumrin eru það einkum er- lendir ferðamenn sem gista Flúðir en þó hefúr verið mikið af íslendingum um helgar. Á veturna ber mest á hópum ým- isskonar sem koma til að losna við ys og þys borgarlífsins og margt af því fólki kemur ár eftir ár. Aldraðir borgarar í ýmsum bæjar- og sveitarfélögum halda uppi öflugu félagslífi fyrir fólk sem komið er af léttasta skeiði og er farið að minnka við sig vinnu en hefúr ennþá næga krafta til að stunda áhugamál sín. Með ólíkindum er hversu mikil gróska er í þessu félagslífl elstu kynslóðarinnar hér á landi, spilakvöld, gömludansaæfingar og ferðalög eru meðal þess sem Þessi frumlega músagildra er meðal annarra athyglisverða muna í minjasafninu í Gröf. Matarbiti var settur á spaða hjólsins og þegar mýsnar svo studdu sig á spaðann til að ná til matarins duttu þær niður í fötuna sem var hálffyllt af vatni. Eldri borgararnir í ferðinni virða fyrir sér aðstöðuna við sund- laugina, hún er orðin til fyrirmyndar eftir miklar endurbætur heimamanna. Búningsaðstaða er glæný og búin bæði gufubaði og Ijósalampa. þetta atorkusama fólk tekur sér fyrir hendur sér til gamans. Ferðir fyrir aldraða Nú býðst þessu fólki nýr val- kostur í sambandi við ferðalög innanlands yflr vetrartímann. Samstarf hefúr nefnilega tekist á milli ferðaskrifstofunnar Sögu og Skjólborgar hf., en það er fýrirtæki heimamanna að Flúð- um í Hrunamannahreppi Árnes- sýslu sem rekur aðstöðu fyrir ferðamenn á staðnum. Þessir tveir aðilar bjóða nú upp á sérstakar fimm daga ferðir fyrir eldri borgara þar sem farið er frá Reykjavík á sunnudagseft- irmiðdegi og snúið aftur á föstu- degi. Útbúin hefur verið dagskrá fyrir þátttakendur sem inniheld- ur meðal annars skoðunarferðir um nágrenni Flúða, þar á meðal heimsókn í Hruna, farið er að Gullfossi og Geysi og stórmerki- legt minjasafh Emils Ásgeirsson- ar bónda í Gröf skoðað en þrátt fyrir smæðina er það eitt athygl- isverðasta minjasafnið hérlendis í einkaeign. Á kvöldin er svo ætlunin að spila, h;i£a kvöldvöku og taka snúning við undirleik harmon- ikku. Auk þess er hægt að bregða sér í sund og stuttar gönguferðir um svæðið en mjög skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu og náttúrufegurðin mikil. f boði eru einnig sérstakar helgarferðir, en hámarksfjöldi í hóp sem hægt er að anna í einu eru 40 manns. Slíkar ferðir kosta 2.600 kr. fyrir manninn í tvíbýli yfir helgina og er þá morgun- matur innifalinn. Að auki er hægt að fá keyptar aðrar máltíð- ir dagsins ef óskað er. Fyrir skömmu var farið í kynningarferð að Flúðum með forystumenn í félögum eldri borgara og blaðamenn op þeim kynntar aðstæður. Ekki var ann- að að heyra en að fólki litist mjög vel á að eyða einhverjum tíma að Flúðum með félögum sínum þar sem saman fara gott verð og miklir möguleikar á dægradvöl Kannski segja þó orð þeirra sem gist hafa Flúðir mest en þessar lofgerðir má finna í gesta- bók Skjólborga: „Hér er nánast allt sem glatt getur þreytta og hrjáða sál tímaleysingja nútíðar. Notalegur aðbúnaður, umhverf- ið og kyrrðin. Hér er hægt öðr- um stöðum ffemur að fara á stefnumót við sjálfan sig.“ „Veð- ur eða árstíð skipta engu máli, hér er alltaf gott að vera.“ „Hér er gott að vera, fallegur fjalla- hringur, hóflegar gönguleiðir, mikil ræktun, sundlaug, félags- heimili o.fl. o.fl. Kveðjum með trega en hlökkum til að koma aftur að ári.“ —AE. Hér er Emil Ásgeirsson að segja sögu tóbakspontunnar sem hann heldur á, en hún er gerð úr álagasteini. Eins og sjá má á myndinni er heitur pottur fyrir utan hvert herbergi og þau eru einstak- lega skemmtilega búin að öllu leyti. Ferðaskrif- stofan Saga: Bo&iÍ upp á orlofsferðir al Flúftum 32 VIKAN VIKAN 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.