Vikan - 04.02.1988, Blaðsíða 38
Nýtt ntrfn fyrir austan
Alkunna er að venjulegir
meistaraflokksmenn austur
í Sovétríkjunum eru oft á tið-
um erflðari viðfangs en
þekktir vestrænir alþjóðlegir
meistarar. Tækifæri þessara
manna til að tefla á alþjóð-
legum mótum eru svo fá að
einungis þeim allra sterk-
ustu gefst kostur á að spreyta
sig.
Þegar ungum og áður óþekkt-
um skákmönnum tekst að skjóta
margreyndum meisturum aitur
fyrir sig á þéttum mótum þar
fýrir austan er því áreiðanlegt
að mikið efhi er á ferð. Igor
Smirin heitir einn slíkur ó-
harðnaður unglingur. Hann
gerði sér lítið fyrir og sigraði í
undankeppni úrvalsdeildar sov-
éska meistaramótsins í Sverd-
lovsk fyrir skömmu.
Smirin þessi er frá Vitebsk í
Litháen en lítt annað er vitað
um þennan snjalla skákmann.
Meðmælin eru þau að hann varð
fyrir ofan þekkta stórmeistara
eins og Tseshkovsky, Psakhis,
Tukmakov, Balashov, Timo-
shenkó og Kupreitsik. Smirin
hlaut 11 vinninga af 17 mögu-
legum á mótinu í Sverdlovsk.
Ungir skákmenn, Khalifman og
Kharitionov, komu næstir með
10'/2 vinning.
Spennandi verður að fylgjast
með ffamgangi Smirins í úrslit-
um meistaramótsins sem fram
fara í ágúst. Mótið í ár verður
trúlega firnasterkt. Sjálfúr
heimsmeistarinn Garrí Kaspar-
ov hefúr þegar tilkynnt þátttöku
sína.
En hvernig teflir þessi Smirin?
Afþeim skákum hans sem ég hef
séð frá mótinu í Sverdlovsk má
draga þá ályktun að hann hafi
sérlega næmt auga fyrir taktísk-
um möguleikum - fléttum og
flækjum. Taflmennska hans er
þó ekki byggð á sandi eins og
stundum vill verða hjá slíkum
skákmönnum. Sjáið t.d. lokin á
skák hans við Dokhojan. Smirin
hefúr svart og á leik í þessari
Stöðu:
Hvítur bauð jafntefli um leið
og hann lék síðasta leik sinn.
Sennilega hefur hann haft í huga
framhald eins og 19. - Hae8 20.
Dd3 og eftir að svartur skiptif
upp á f3 fær staðan jafnteflisleg1
yfirbragð. Smirin hafnaði góðu
boði og lagði strax í sókn:
19. - b5!
Hugmyndin er sú að eftir 20.
cxb5 c4 og síðan 21. — Dc5 og
22. — d3 verða svörtu peðin
hættuleg. Hvítur leikur best 20.
b3 en í fljótu bragði virðist leið-
in sem hann velur ekki slæm.
20. Dc2 bxc4 21. Dxc4 Bc8!
Þessi skemmtilegi leikur set-
ur hvítan í mikinn vanda. Svart-
ur hótar 22. — Ba6 og vinna
skiptamun eða skríða fram með
peð sín annars.
22. Hfcl d3!
Enginn ffiður! Hvítur kemst
skyndilega ekki hjá liðstapi. Eftir
23. Habl Ba6! 24. Dxc5 Dxc5
25. Hxc5 Hxf3 26. Bxf3 Bd4+
verður svartur manni yfir.
23. Bxd3 Bxb2 24. Habl Bxcl
25. Hxcl Bf5
Og með skiptamun yfir vann
svartur auðveldlega. „Biskupaf
svarts þutu um borðið eins og
hvirfilbylur," segir í þýsku blaði
um þessa skák.
Tæp þrjú grönd sem unnusl
Reykjavíkurmótið í sveita-
keppni er nú í fúllum gangi og
taka 22 sveitir þátt í henni. Af
22 sveitum komast 17 í undan-
rásir fyrir íslandsmót en fjórar
efetu spila til úrslita um Reykja-
víkurmeistaratitilinn í lok janú-
ar. Keppnin er langt komin þeg-
ar þetta er skrifað og aðeins
tvær sveitir eru það vel staddar
að þær eru líklegar í úrslitin.
Það eru sveitir Verðbréfamark-
aðs Iðnaðarbankans og Pólaris.
Svo eru einar 8 sveitir sem eiga
(sak Örn
Sigurðsson
BRIDGE
raunhæfan möguleika á næstu
tveimur sætum.
Eftirfarandi spil kom upp hjá
tveimur sveitum sem báðar eru
í baráttunni um efstu sætin en
er þó ekki dæmi um vandaða
spilamennsku. Suður var í aðal-
hlutverki í spilinu, sagnir gengu
nokkuð eðlilega fyrir sig en allt
spilið var þannig:
G1062
K964
G83
86
7
G1072
KD104
K1032
N
V A
S
K9854
83
Á976
75
ÁD3
ÁD5
52
ÁDG94
N A s V
1 L 1S dobl
pass 1 G pass 2 L
pass 2 T pass 2 G
pass 3G allirpass
Til skýringar á sögnum voru
austur—vestur á hættu og spil-
uðu „presicionkerfi" þar sem 1
lauf lýsir sterkum spilum og 1
grand 1S>—20 Milton punktum.
Tvö lauf spurðu um hálit. Suður
sat lengi yfir útspilinu en spilaði
svo loks út hjartaáttu. Makker
hans kallaði með tvistinum og
sagnhafi átti slaginn á ás. Hann
spilaði næst spaðadrottningu
sem suður dúkkaði eftir langa
umhugsun. Þá spilaði sagnhafi
litlum tígli á gosa sem norður
drap á drottningu, en suður
merkti jafita tölu í litnum. Norð-
ur spilaði næst hjartagosa sem
austur átti á drottningu. Þá kom
spaðaás og meiri spaði sem
norður henti laufaþristi og
-tvisti í. Suður inni á spaðakóng
vissi að makker var búinn að
frávísa laufi því þristurinn kom a
undan. Þeir kalla með lágu spm
í litum. Því átti ekkert annað ao
koma til greina en tígull en suð-
ur spilaði eigi að síður spaða og
gaf samninginn. Nákvæmari le,ð
hjá sagnhafa hefði verið að spi,a
strax spaðaás eftir spaða-
drottningu og meiri spaða. Þa ef
erfiðara fyrir suður að finna tig-
ul til baka vegna takmarkaðra
upplýsinga.
38 VIKAN