Vikan - 04.02.1988, Blaðsíða 6
íslendingar í
vopnasmygli
Cargolux flutningavélln
Boeing 747 ,Jumbo“ í
flugtaki. Líkur eru taldar á
að ef Breta hefði grunað að
Cargolux flytti vopn til
Argentínumanna myndu
þeir hafa endurskoðað allar
starfsheimiidir félagsins í
Hong Kong en Cargolux
liefur umsvifamikla
starfsemi þar. Breskur
embættismaður sagði við
Vikuna að ekki væri
útilokað að Bretar hefðu
reynt með einhverjum
hætti að koma í veg fyrir að
vélin næði áfangastað
hefðu þeir vitað um þessa
flutninga á sínum tima.
Texti:
Magnús
Guðmundsson
Leynilegir vopnaflutningar íslenskra
aðila höfðu bein áhrif á
blóðbaðið við Falklandseyjar!
Boeing 747 risaþotan frá
Cargolux flugfélaginu
lenti mjúklega á flugvellin-
um í Lima í Suður-Ame-
ríkuríkinu Perú og íslenski
flugstjórinn renndi vélinni
inn á sérstakt svæði þar
sem enginn óviðkomandi
átti að geta fylgst með
flugvélinni eða losun
hennar. Ahöfuin fékk
fyrirskipun um að halda
kyrru fyrir í vélinni og
hafa hægt um sig. Skammt
frá stóðu tvær belgmiklar
Hercules flutningavélar frá
argentínska flughemum í
viðbragðsstöðu.
Afferming Boeing vélarinnar
var greinilega vel undirbúin. 1
skyndi var viðkvæmur og dýr-
mætur farmur hennar fluttur
yfir í herflugvélarnar á um
klukkustund. Að því loknu
lögðu argentínsku Herculesvél-
arnar í loftið og héldu til síns
heima.
íslensku flugmennirnir vörp-
uðu öndinni léttar. Þeirra hlut-
verki var nú lokið og hættan á
að verða hugsanlega skotnir
niður var liðin hjá.
Síðar sama dag og næstu daga
gerði flugher Argentínu óvænt-
ar og heiftarlegar árásir á breska
sjóherinn með EXOCET flug-
skeytum og sprengjuárás með
SKYHAWK orrustuvélum, þar
sem fjöldi breskra hermanna lét
iífið og mikið af hergögnum
urðu eyðileggingunni að bráð.
Árásirnar virðast hafa komið
Bretum nokkuð í opna skjöldu
þar sem þeir töldu að Argen-
tínumenn væru orðnir uppi-
skroppa með eldsneytisgeyma
til langflugsárása.
Tímasetning: Undir lok Falk-
iandseyjastríðsins 25. maí, árið
1982.
Farmur Cargolux vélarinnar:
Vopnabúnaður og eldsneytis-
geymar til langflugs fyrir
SKYHAWK orrustuþotur.
Upphafsland farmsins: ísrael!
Farmbréf flugvélarinnar:
„General Cargo to Lima Peru“ —
Ýmsar (almennar) vörur til
Lima í Peru.
Tugir manna létu lifið
„Það er engum blöðum um
það að fletta að þessir flutningar
voru kolólöglegir. Við vorum
hreinlega á tauginni því við
töldum þá brot á alþjóðalögum,
yfir flugsheimildum og sam-
þykktum Eíhahagsbandalagsins
um að blanda sér ekki í stríðið,
en Luxemburg var líka aðili að
þeirri samþykkt," segir Páll Ein-
arsson flugmaður í samtali við
Vikuna. Páll var aðstoðarflug-
maður í hinu örlagaríka flugi
Boeing 747 vélarinnar þegar
áhöfhin fékk skipun um að
fljúga til ísrael.
Vikan hefúr fengið frásögn
6 VIKAN