Vikan - 18.02.1988, Qupperneq 4
Herra ísland krýndur
TEXTI OG MYNDIR: ADOLF ERLINGSSON
Það varð handagangur í
öskjunni í JMJ þegar fata þurfti
sjö glæsimenni á svipstundu.
Hkki dugði minna en að
afgreiða þrjá í einu.
magninu sló út þá var biðinni
bjargað með glensi og gríni eins
og henni er einni lagið.
„Erfitt að koma fram á
sundskýlu“
— sagði Herra ísland
eftir keppnina
Fyrstur til að bera heiðurs-
titilinn Herra ísland er Arnór
Díegó, átján ára Reykvíkingur
og nemi við fjölbrautaskólann í
Breiðholti. Arnór er sonur
Hjálmars Díegó Arnórssonar,
flugumferðarstjóra og Önnu
Kristjánsdóttur húsmóður.
Arnór er þaulvanur sviðs-
ffamkomu þar sem hann er einn
af fremstu dönsurum landsins
og dansar eitt stærsta hlutverkið
í sýningunni Allt vitlaust í
Broadway. Þar að auki hefur
hann unnið við fyrirsætustörf og
lék í mynd Hrafns Gunnlaugs-
sonar, í skugga hrafnsins.
Vikan náði tali af Arnóri strax
eftir að úrslitin lágu fyrir og
hann var fyrst spurður að því
hvort það hafi verið erfitt að
taka þátt í keppninni.
„Það var stórt skref að ákveða
að taka þátt í keppninni. Það eru
alltaf vissir fordómar sem mað-
ur þarf að berjast gegn, en þetta
var líka mjög gaman. í keppn-
inni sjálfri fannst mér mjög erf-
itt að koma fram á sundskýlu en
restin var ekkert mál. Ég er það
vanur því að koma fram að það
hafði engin áhrif á mig.“
— Áttir þú von á því að sigra?
„Nei, ég átti alls ekki von á
því. Ég var frekar með í þessu til
að hafa gaman af en ég er mjög
stoltur yfir að hafa verið kosinn
Herra Island og vona að mér
takist að bera titilinn með
sóma.“
- Hvernig líður svo sigurveg-
aranum?
„Alveg stórkostlega. Reyndar
er þetta alveg ólýsanleg tilflnn-
ing og það er varla að maður sé
búinn að átta sig á þessu.“
— Hvað finnst þér svo um
Amór Díegó, átján ára
Reykvíkingur var kosinn
Herra ísland með pompi og
prakt síðasta laugardags-
kvöld í skemmtistaðnum
Zebra á Akureyri. Loftið var
þrungið spennu þegar dóm-
nefindin kom inn á gólfið eft-
ir að hafa lokið störfum.
Fyrst birti Gígja Birgisdóttir,
ungfrú ísland árið 1986,
niðurstöðumar úr kosningu
á milli keppenda um vin-
sælasta kappann. Þegar hún
kunngerði úrslitin í þeirri
kosningu bmtust út mikil
fagnaðarlæti enda sigurveg-
arinn heimamaður Hall-
grímur Óskarsson.
Eftir að Hallgrímur hafði tek-
ið við verðlaununum sem
fylgdu nafnbótinni vinsælasti
keppandinn var stóra stundin
runnin upp. Anna Margrét Jóns-
dóttir, formaður dómnefndar og
ungfrú ísland gekk yfir til
Bryndísar Schram sem var kynn-
ir og í sameiningu opinberuðu
þær nafn sigurvegarans. Við
glymjandi lófatak gestanna sem
troðfýlltu Zebra, krýndi Anna
Þó að herra ísland hafi þótt
óþægilegt að koma fram á
sundskýlu er ekki annað hægt
að segja en að hann taki sig vel
út. . .
Margrét svo Arnór silfurslegn-
um pípuhattinum sem fylgir
nafnbótinni Herra ísland.
Keppnin var með sama sniði
og fegurðarsamkeppnir kvenna
sem haldnar hafa verið hér
árum saman. Keppendurnir sem
voru sjö talsins komu fýrst frarn
í sundskýlu og síðan í sam-
kvæmisklæðnaði frá herrafata-
versluninni JMJ á Akureyri. Þeir
voru hver öðrum glæsilegri og
að sögn Bryndísar hefði hún
ekki viljað vera í sporum dóm-
nefndarmanna þar sem erfitt
væri að gera upp á milli þeirra.
Hver og einn hefði sinn sérstaka
sjarma og erfltt að sjá einn öðr-
um fremri. Á milli var svo boðið
upp á hárgreiðslu- og tískusýn-
ingu til að stytta gestum biðina.
Ráðherrafrúin Bryndís
Schram sá til þess að aldrei var
dauður punktur í dagskránni og
kynnti allt sem fyrir augun bar
með tilþrifum og grínaðist jafnt
við keppendur sem áhorfendur.
Þegar hún kynnti ísfirðinginn
Stefán Pétursson lét hún þess
getið að hann væri eini pabbinn
í hópnum. Hún bætti því svo við
að slíkt gengi ekki fyrir sig í feg-
urðarsamkeppni kvenna, en þar
væri náttúrlega líku til að jafna
því að karlmennirnir leggja svo
lítið til við framleiðsluna. Ekki
stóð hún sig síður þegar raf-
■nsa ri
...
'•*«»>. -iÆ-