Vikan - 23.06.1988, Page 22
íslenskar
listakonur
Ragna Ingimundardóttir út-
skrifaðist úr Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1981. Hún nam
því næst tvo vetur við keramikdeild
Gerrit Rittvield Akademi í Am-
sterdam í Hollandi. Ragna er með
sitt eigið verkstæði og kennir auk
þess við keramikdeild Myndlista-
og handíðaskólans. Hún vinnur
nær eingöngu stórar skálar og gólf-
vasa og fæst nær ekkert við smá-
hluti. En því skyldi hún hafa farið
að búa til skartgripi? „Ætli það hafi
ekki verið fyrir sjálfa mig, af því að
mig langaði sjálfa í þá,“ svarar hún.
Síðan kom í ljós að fleiri vildu
gjarnan eignast nælur eftir Rögnu.
Ragna býr til tvær gerðir af næl-
um og eyrnalokkum. Önnur er
þannig að hún sprautar steinleir á
flatar gifsplötur, en hinar eru
mótaðar í höndunum. Síðan skefur
hún og pússar yfir með sandpappír,
málar og brennir upp í 1280 stiga
hita.
22 VIKAN
Elísa Jónsdóttir, sem rekur
Gallerí List, er keramiklistakona,
menntuð í Cambridge í Englandi.
Hún hefur sjálf unnið margar nælur
sem eru á boðstólnum í verslun-
inni. Hún segir að nælurnar njóti
sívaxandi vinsælda. Margar konur
koma og kaupa sjálfum sér nælur.
Falleg næla í blússu, peysu eða
jakka getur sannarlega lífgað upp á
útlitið og gefið klæðnaði persónu-
legan og glæsilegan stíl. Nælurnar
eru tilvaldar til tækifærisgjafa, og
oft kemur fólk og kaupir nælur til
smágjafa til dæmis í staðin fyrir
blómvönd eða konfekt. Verðið fer
eftir ýmsu, bæði stærð og vinnu sem
liggur að baki, en er á bilinu 400 til
2000 krónur.
Elísa segir fyrst og fremst hug-
myndaflugið ráða ferðinni þegar
hún vinnur nælurnar. Hún mótar
leirinn með fingrunum, og notar
gjarnan eitthvert einfalt verkfæri
svo sem eins og skrúfur, nagla eða
hvaðeina til þess að fá fram mis-
munandi mynstur í sjálfan leirinn.
Síðan eru nælurnar brenndar, en
við það framkallast liturinn í öllum
sínum litbrigðum.
Margrét Jónsdóttir rekur kera-
mikverkstæði á Akureyri og vinnur
jöfnum höndum við gerð skraut-
gripa, nytjahluta og skúlptúra úr
leir. Margrét vakti athygli í vetur
fyrir menningarverðlaunagripi DV
sem hún gerði. Hún lærði við kera-
mikdeild Kunsthandværkskolen í
Kolding í Danmörku sem er svip-
aður skóli að uppbyggingu og
Myndlista og handíðaskóli Islands
að því undanskildu að nemendur
velja sér deildir strax í upphafi
náms.
Margrét mótar sínar nælur í
höndum, en brennir þær síðan með
all sérstæðri brennsluaðferð. Sú
nefnist raku-brennsla og er talin
upprunin í Kóreu. Hún er frá-
brugðin venjulegri brennslu að því
leiti að við seinni brennslu tekur
listamaðurinn hlutina rauðglóandi
út úr 1000 stiga heitum ofninum og
setur þá í tunnu með sagi við um 10
stiga hita og lætur þá vera þar í 5 til
10 mínútur. Við þessi hitabrigði
opnast sprungur í glerunginn og
sótið litar svartar æðar inn í gler-
unginn. Með þessari brennsluað-
ferð fást sömuleiðis litbrigði sem
ekki nást annars svo sem ýmsir
kopar og bronslitir.