Vikan - 23.06.1988, Blaðsíða 26
-
Að betrambœta útlitið
Hægt er að mála sig þannig að andlitið
hreinlega breytist (eða sýnist breytt).
Hér er sagt hvaða tækni hægt er að beita
við málninguna til að fela eða laga það
sem gæti verið betra.
SNYRTING lest okkar hafa einhver lýti, að
okkur finnst, sem við vildum
gjarnan vera án. En þegar lögð er
áhersla á það sem gott er þá ber
um leið minna á göllunum og það er hægt
að gera enn betur með því að leggja
áherslu á að fela eða laga annað sem okk-
ur líkar ekki (dökka bauga, freknur, lítil
augu, þunna efri vör).
Þegar verið er að reyna að breyta and-
litslaginu með dökkum lit þá getur það
virkað vel á mynd en sjaldnast í raun-
veruleikanum. Pó er hægt að leggja
áherslu á enni og kjálka til að láta andlits-
fallið sýnast öðruvísi en það er í rauninni.
Enni:
Toppur getur hulið mjög hátt enni. Liðað
hár sem fellur meðfram vöngunum dregur
úr breiðu andlitsfalli. Viljirðu ekki hafa
hárið í andlitinu þá er hægt að forma and-
litið með ljósbrúnum kinnalit. Breitt enni
virkar mjórra ef settur er brúnn litur til
hliðanna. Hátt enni má lækka með því að
setja dálítið af kinnalit meðfram hársrót-
inni. Öll skil verður að mýkja með bóm-
ullarhnoðra, þannig að aðeins votti fyrir
skugga sem dregur úr breiðu og háu enn-
inu.
Áhersla á augun:
Augun eru sá hluti andlitsins sem vekja
yflrleitt mesta athygli. Myndirnar hér á
síðunni af augum fyrir og eftir málningu
ættu að sýna og sanna að öll augu geta ver-
ið falleg og sýnst stærri og fallegar löguð
en þau eru ffá náttúrunnar hendi.
Breitt bil á milli augnanna og falin
augnlok: Það þykir fallegt að hafa gott bil
á milli augnanna, en stundum er bilið of
breitt. Setjið reyklitaðan skugga á augnlok-
in og látið hann koma langt inn í augn-
krókinn í áttina að nefinu. Pannig virðist
FYRIR
EFTIR
bilið minna. Á myndunum hér sést munur-
inn.
Stúlkan á myndinni á við annað algengt
vandamál að stríða en það er að húðin
26 VIKAN