Vikan - 23.06.1988, Blaðsíða 48
Pétur Steinn skrifar:
POPP
Stórstjömur
A M argar stórstjörnur hafa
undanfarnar vikur og
mánuði verið á tónleikaferða-
lögum um Evrópu. Má þar
nefna m.a. Whitney Houston,
Michael Jackson, George
Michael og Bruce Springsteen.
George Michael er á sínu
fyrsta tónleikaferðalagi eftir að
Wham hættu og sagði hann
áður en hann lagði af stað að
þetta yrði kynþokkafyllsta tón-
leikaferð sem farin hefði verið.
Hann hefur nú ferðast um
Frakkland, Holland og víðar og
eitt er víst að hann er talinn
standa undir þessum yfirlýs-
ingum. Tónleikarnir byrja á
laginu „I Want Your Sex“ úr
kvikmyndinni Beverly Hills
Cop 2 (Eddy Murphy). Síðan
kemur hvert lagið á fetur öðru
og fer söngvarinn aðstoð við-
staddra þegar kemur að laginu
„Faith“. Hann segir það þægi-
lega tilfinningu að heyra mörg
þúsund taka undir og syngja
textann óaðfinnanlega, þó
ffamburðurinn sé stundum
ekki alveg upp á 10.
Hina venjulegu dagskrá end-
ar George Michael með laginu
„Careless Whisper", en eftir
uppklapp færist fyrst veruleg-
ur hiti í leikinn. Þá fer hann
um sviðið á magnþrunginn
hátt og er í stöðugri snertingu
við eina söngkonuna (Lynn
Marby) og á stundum velta
áhorfendur fyrir sér siðgæð-
inu. Allir virðast þó skemmta
sér hið besta og telja sig fá það
fyrir peningana sem við var
búist.
Michael Jackson hefúr verið
á ferðalagi um Evrópu og hef-
ur alls staðar verið uppselt og
stöðugt er verið að bæta við
XÍÝTT
Nokkrar nýjar hljóm-
sveitir hafa komist
inn á íslenska list-
ann að undanförnu
sem ekki hafa áður komist á
blað poppsögunnar. Má þar
nefna Fairground Attraction
og S-Express sem dæmi. En
gamalreyndir popparar á borð
við Prince og A-ha eru einnig
til staðar. Prince hefur sætt
gagnrýni fyrir að vera nakinn á
framhlið plötuumslagsins. Af
þessum sökum hafa siðprúðir
plötusalar í Bandaríkjunum
ekki tekið plötuna til sölu.
Deus með Sykurmolunum
féll af toppnum 4. júní og
Prefab Sprout náðu toppsæt-
inu með laginu The King of
Rock’n’roll. Altalað var að
þetta lag væri samið með Elvis
Presley í huga en svo var þó
ekki. Þetta gæti verið hvaða
rokkstjarna sem er eða jafhvel
blanda af mörgum.
Fairground
Attraction
Fairground Attraction er
ung hljómsveit sem hefur
notið mikilla vinsælda fyrir
lagið Perfect. Hún saman-
stendur af Roy Dodds, Eddie
Reader, Simon Edwards og
Mark E. Nevin, en sá síðast
nefhdi samdi lagið Perfect.
Þegar Nevin spilaði lagið
fyrir hljómsveitarmeðlimina í
46 VIKAN
fyrsta skipti fannst honum
þetta heldur hallærislegt lag,
en aðrir meðlimir sveitarinnar
voru honum þar ekki sammála.
Það varð úr að gefa lagið út og
komst það í efsta sæti breska
listans.
Söngkonan Eddie Reader
hefur getið sér gott orð fyrir
að syngja bakraddir hjá Alison
Moyet og Eurythmics. Þegar
hún var spurð á dögunum
hvernig lag Perfect væri svar-
aði hún að þetta væri „Boomba-
doomba-doom-slap-back-rock-
a-billy.“ Ekki minnist ég þess
að hafa séð þessa skilgreiningu
á tónlistarstefnu eða öðru, en
þetta er kannski ekki verri lýs-
ing á lagi en hver önnur. Ann-
ars er Eddie Reader ekki mikið
fyrir að sýnast, hún segist til
dæmis frekar fara í byggingar-
vöruverslun til að kaupa skrúf-
járn heldur en að fara í tísku-
vöruverslun að máta eða
kaupa föt.
Það verður gaman að fylgj-
ast með Fairground Attraction
á næstu misserum.
S-Express
S-Express er aðallega einn
maður, Mark Moore. Hann
hefur starfað sem plötusnúður
á virtum næturklúbbum í
London.
Hip-hop tískan er allsráð-
andi í danshúsum heimsins og
hafa nokkrir plötusnúðar tekið
þátt í tilbúningi laga sem tilval-
in eru til dansiðkunar. Frægust
þessara laga eru Pump up the
Volume og Bomp the Bass. S-
Söngkona Fairground Attraction segir lag hljómsveitarinnar vera
„Boomba-doomba-doom-slap-back-rock-a-billy“!!!
áferð
aukatónleikum. Báðar frjálsu
útvarpsstöðvarnar íslensku
hafa tekið frá miða á tónleika
með honum, en þó ekki á þá
sömu.
George Michael á sviði ásamt
Lynn Marby.
Express nota mikið „samplera"
eins og áðurnefhd lög og
kfydda síðan með stefum héð-
an og þaðan. Upphaflega var
lagið gefið út á smáskífu í næt-
urklúbbnum þar sem Mark
vann og líkaði fólki vel. Þegar
svo ákveðið var að gefa lagið
út á almennum markaði kom
babb í bátinn sem engan hafði
órað fyrir — lagið varð feiki-
vinsælt. Nú kom upp það
vandamál að nokkrir meðlim-
irnir gátu ekki skuldbundið sig
til að koma ffam og eyða öll-
um sínum tíma í kynningu og
hljómleikaferðalög því þeir
voru uppteknir við vinnu á
öðrum stöðum. Mark þurfti
því að hefjast handa við að
finna nýtt fólk. Hann, ásamt
Michelle, fúndu Chilo Farlo,
sem starfaði sem söngkona og
dansari á næturklúbbum, og
Lindu „Love“, sem hefúr starf-
að sem fýrirsæta.
Þau hyggja nú á gerð nýrrar
plötu en Mark segir að menn
þurfi ekki að vera tónlistar-
menn til að geta búið til lög af
þessu tagi. Þetta er tónlistar-
bylgja likt og pönkið var á sín-
um tíma. Menn þurfa þó að
hafa vissa grunnþekkingu og
hana hefúr Mark úr plötu-
snúðsstarfinu.
Þess má geta að einn ís-
lenskur plötusnúður (Big
Foot) hefúr unnið að lagi í
þessum anda ásamt nokkrum
öðrum.
Þá er ekkert annað eftir en
að kaupa sér gott segulband og
dusta rykið af gömlu plötun-
um.