Vikan


Vikan - 23.06.1988, Blaðsíða 62

Vikan - 23.06.1988, Blaðsíða 62
BRATT ERÖLLU LOKIÐ Það var ljós í mörgum gluggum í húsinu hinum megin við götuna. Þegar hann sneri höfðinu svolítið gat hann séð mann sem sat og las í blaði og í öðrum glugga sást blágrár ljómi ífá sjónvarpstæki. Aðeins um tuttugu og fimm metrum fyrir aftan hann var fjöldi manns. Ef aðeins einn þeirra vildi ganga út að glugganum og líta út... en ekkert andlit birtist í gluggunum. Mað- urinn fletti blaðinu sínu og hélt áfram að lesa. í vasa innan á jakkanum fann hann nokk- ur gömul bréf. Hann tók eitt þeirra og skoðaði við ljósið frá stofuglugganum. Það var einskisvert prentað mál. Hann stakk einu horni þess upp í sig og vöðlaði því fast saman. Síðan náði hann í litlu eld- spýtnahulstri úr pappa upp úr vasanum, en vegna þess að hann þorði ekki að sleppa báðum höndum samtímis beygði hann eina eldspýtuna án þess að rífa hana af, ýtti brennisteininum með þumalfingr- inum að stokknum og nuddaði hann þar fram og aftur. Allt í einu kviknaði eldur og brenndi hann á þumalfingurinn. Hann reyndi að hlífa eldinum með hendinni og bar hann upp að bréfinu, sem hann hélt á milli tannanna... Þegar það byrjaði að brenna slökkti hann á eldspýtunni milli fingra sér án þess að láta sér bregða þótt hann brenndi sig, og stakk stokknum í vasann. Síðasta bréfið var næstum út- brunnið, þegar hann sá að maðurinn í húsinu hinum megin hafði lagt ffá sér blaðið og gengið út að glugganum. Tom fannst hann stara beint á sig en svo gekk hann aftur inn í herbergið og byrjaði að lesa. Tom fann nokkra smápeninga í vasa sínum. Hann lét þá detta hvern eftir annan, en ef einhver varð var við þá hugs- aði hann auðsjáanlega ekkert út í hvaðan þeir komu. Handleggir hans voru farnir að skjálfa af því að ríghalda í listann. Nú vissi hann ekk- ert hvað hann átti að gera og var orðinn hræddur. Aftur fór hann að róta í vösum sínum og fann nú ekkert nema gula blaðið. Honum datt skyndilega í hug sú fáránlega hugsun að dauði hans á gangstéttinni mundi verða eilíf ráðgáta. Glugginn var lokaður. — Hvers vegna, hvernig og hvað- an hafði hann hrapað? Það mundi líða nokkur tími þar til líkið þekktist. — Af ein- hverjum ástæðum fannst honum sú hugs- un næstum óbærileg og gerði hann enn hræddari. Það eina sem mundi finnast í vösum hans væri þetta gula pappírsblað. - Það sem fannst í vösum hins látna — hugs- aði hann - var aðeins pappírsblað, sem hafði verið skrifað á með blýanti. — Óskiljanlegt! Hann gerði sér Ijóst að líklega beið hans ekkert nema dauðinn. Handleggir hans héldu áfram að skjálfa og fingur hans urðu æ máttlausari. Þeirri hugsun laust niður hjá honumað nú mundi hann ekki fá meira út úr lífinu en hann hefði þegar fengið. Engu var hægt að breyta og engu að bæta við. Hann óskaði þess að hann hefði ekki látið konuna sína fara eina út — eins og svo oft áður. Hann hugsaði um öll þau kvöld sem hann hafði verið að heiman önnum kafinn við vinnu og iðraðist þess sárlega. Hann hugsaði um allan tímann sem hann hafði unnið við að útvega tölurnar á þenn- an gula pappír, sem var orsök þess að hann var hér. f vösum hins látna var ekkert að finna — hugsaði hann — annað en líf sem hafði verið eytt til einskis. Nei, hann ætlaði ekki að halda sér hér þangað til fingurnir misstu takið og hann hrapaði niður. Það var aðeins eitt sem hann gat gert, hann hafði vitað það nokkra stund, en það var fýrst núna sem hann þorði að horfast í augu við það. Þar sem hann lá þarna á hnjánum með vinstri höndina á listanum gat hann teygt þá hægri eins langt aftur og frekast var mögu- legt og slegið síðan af öllu afli krepptum hnefanum í rúðuna. Ef hún brotnaði mundi hann sjálfsagt skera sig illa en ef aðeins handleggurinn kæmist inn væri honum borgið. Ef rúðan aftur á móti brotnaði ekki mundi afturkastið rykkja honum út af brúninni. Það var gefið mál. Hefur þú séð iraai í dag? 60 VIKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.