Vikan - 23.06.1988, Qupperneq 39
jákvætt eða neikvætt. Ef þú ert hamingju-
söm þá eru miklar líkur á því að eiginmað-
urinn og börnin séu það einnig.
Flestir karlmenn fylgjast með tjáningar-
formum líkamans og misskilningur getur
komið upp án þess að nokkuð sé sagt;
höfðinu snúið á vissan hátt, augnsvipur-
inn, munnsvipurinn. Alit þetta getur gefið
til kynna hvað þú ert um það bil að fara að
segja. Hvers vegna hættir fólk að tjá sig?
Hversu oft hefur eiginmaðurinn ekki
stungið upp á einhverju sem honum hefur
fúndist skemmtilegt og þú svarað: „Jú, jú,
en ... Þetta getur verið einföld tillaga eins
og: „Fáum okkur bíltúr eftir matinn" og þú
svarað: „Já, en...“ Og hvers vegna er
hann núna kominn úr jafnvægi? Vegna
þess að þú sagðir „nei“ jafnvel þó þú hafir
samþykkt tillöguna. Þú drekktir tillögunni.
Þú veist eflaust ekki hversu oft hann
hefúr gert þetta og það getur vel verið að
hann hafi hætt að nenna að tala við þig fyr-
ir mörgum árum út af þessu. Þannig að í
næsta skipti sem hann stingur upp á ein-
hverju, segðu þá: Já. Gerum það.“ Eða:
„Það hljómar vel.“
Skila gjöfinni sem hann
var lengi að velja
Um leið og verslanir opna eftir jólin þá
fyllast þær af konum sem eru að skila
gjöfúnum frá eiginmönnunum; gjöfúm
sem þeir eyddu mörgum klukkustundum í
að velja. Eða þær hafa sagt við þá eitthvað
á þessa leið: „Hvað borgaðirðu eiginlega
fyrir þetta? Ég hefði getað fengið þetta
miklu ódýrar. Þetta er alltof dýrt. Ég þurfti
ekkert á þessu að halda." Hvað ertu að
segja? Það minnsta sem þú hefðir getað
gert er að sýna að þér þyki vænt um um-
hyggjusemina.
Taktu utan um
manninn þinn
Værirðu kærastan hans, í staðinn fyrir
eiginkonan þá myndirðu ekki hafa orð á
því að þú værir ekki gjafarinnar virði og þú
myndir njóta hennar og sýna að þú mætir
hana. Rifjaðu upp tímana þegar ástin var
ung og þið voruð alltaf í fanginu á hvort
öðru. Hvernig væri að taka þetta upp
aftur? Áður en þú veist af er þetta orðinn
nauðsynlegur þáttur í daglega lífinu. Þegar
þið gangið ffamhjá hvort öðru, taktu þá
utan um manninn þinn, kysstu hann eða í
það minnsta gefðu honum hlýlegt klapp.
Haldist í hendur í bíó eða þegar þið farið í
göngu saman. Hugsaðu um það að því
minni tilfinningar sem þú sýnir því minna
verður um þær með tímanum. Farðu því
vel með það sem þú hefur, haldið ástinni
við með því að vera náin og snertast oft.
Rómantík er ákvörðun. Að eiga róman-
tískt ástarsamband og gera rómantíska
hluti. Borðiði kvöldverð saman við kerta-
ljós og notið sparidiskana, kristalglösin,
gott vín með matnum og góða tónlist
undir; bara þið tvö. Farðu í heitt og nota-
fegt freyðibað og fáðu þér kokkteil á með-
an þú lætur umstang dagsins líða úr þér.
Farið saman í morgungöngu til að tala
saman um það sem þarf að gera, á meðan
aðrir eru enn sofandi. Fáið ykkur morgun-
verð saman í rúminu. Útbúðu og berðu
ffam kvöldmatinn íklædd engu öðru en
gegnsærri plastsvuntu ... notaðu ímynd-
unaraflið!
Sóðaleg og löt...
hann elskar hana samt
Besta leiðin til að vera ekki í leiðinlegu
sambandi er að vera ekki leiðinleg sjálf.
Karlmenn vilja vera með konum sem eru
léttar í skapi og til í ýmislegt. Við getum
tekið vinkonu mína, Pálínu, sem dæmi.
Hún er sóðaleg, óskipulögð, eldar aldrei
máltíð, kaupir bara það sem tilbúið er í
dósum eða frosið, eða þá að hún lætur
senda tilbúinn mat heim, samt elskar eig-
inmaðurinn hana útaf líflnu og kemur fram
við hana eins og drottningu. Hann kallar
hana krúttið sitt, ástina sína og elsku. Hann
setur þykkt teppi yfir símann þegar hann
fer í vinnuna á morgnana svo hún geti sof-
ið lengur. Um helgar þvær hann þvottinn
og fer að versla.
Svo er það nágrannakonan mín hún
Sara. Hún fer á fætur klukkan 6 á morgn-
ana til að útbúa morgunmatinn fýrir eigin-
manninn; beikon, egg og steiktar kartöflur.
Hún saumar á hann skyrturnar því honum
líka ekki þær sem fást í búðunum. Hún
bakar allt brauð og hefur kvöldmatinn til-
búinn þegar eiginmaðurinn kemur heim.
Heimili hennar er svo hreint að það mætti
borða af gólfinu. Samt er vitað til þess að
eiginmaður hennar hafl haldið ffamhjá.
HVERS VEGNA? Vegna þess að eitthvað
vantar í hjónabandið og Sara er fremur
köld, neikvæð og leiðinleg kona. Enginn
maður hefúr elskað konu eingöngu vegna
þess að hún heldur heimilinu tandur-
hreinu og bakar fyrir hann brauð. Við höf-
um öll heyrt máltækið: „Leiðin að hjarta
mannsins liggur í gegnum magann". Þetta
er svosem gott og gilt, en karlmaður vill
meira út úr líflnu en mat.
Spennandi óvæntar
uppákomur
Ég held að Pálína hafi fúndið stuttu leið-
ina. Hún lætur manninum sínum líða eins
og maimi sem er elskaður og einhver
þarfnast. Hún sýnir einnig vinnu hans mik-
inn áhuga. Hringir í hann í vinnuna til að
heyra hvernig allt gengur, eða bara til að
segja honum að hún hafi verið að hugsa til
hans. Hún hælir honum einnig oft; fýrir
það hversu vel hann lítur út og hversu vel
honum hafi tekist upp í vinnunni. Hól gerir
mikið. Karlmenn fá alltof sjaldan að heyra
hól, svo hvernig væri að þú hældir mannin-
um þínum.
Það er gaman að vera með og umgangast
Pálínu. Hún bíður ekki effir því að maður-
inn hennar fari með hana eitthvert. Hún
skipuleggur það sem þau taka sér fýrir
hendur, um helgar, á kvöldin og í fríinu.
Hann veit sjaldnast við hverju hann á að
búast. Einu sinni fór hún með hann í nestis-
ferð upp í sveit, ekki klædd öðru en regn-
kápu. Hann hafði dreymt um að fara með
skemmtiferðaskipi til Hawaii á fertugs-
afimælinu og hún kom honum á óvart með
tveim farseðlum í þannig ferð.
Lífið er stutt, gerðu strax það sem þig
hefúr dreymt um að gera. Við eigum að-
eins daginn í dag, gærdagurinn er liðinn og
við vitum ekkert hvað verður með morg-
undaginn.D
Hvað
segir
þú?
Já, hvað segir þú, lesandi góður? Ert
þú í hjónabandi sem ógnað hefur
verið með framhjáhaldi þínu eða
maka þíns? Eða hefur þú kannski
aðeins rétt leitt huggann að því að
halda framhjá maka þínum en ekki
látið verða af því - ennþá að
minnsta kosti? Ert þú sammála þeim
viðhorfum sem koma fram í pistli
Svölu Björgvinsdóttur hér í opnunni?
Hvað er líklegast til að valda fram-
hjáhaldi?
Vikan vill heyra þínar skoðanir.
Sendu blaðinu línu fyrir 15. júlí
næstkomandi og láttu skoðanir þín-
ar í Ijós. Hvort sem þú lætur þér
nægja eina eða tvær setningar til að
lýsa þeim eða tvö til þrjú blöð. Láttu
umfram allt frá þér heyra. Orð þín
gætu orðið öðrum til umhugsunar og
haft gott í för með sér.
Utanáskriftin er:
VIKAN
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
Pósthólf 5344
VIKAN 37