Vikan - 23.06.1988, Síða 42
arbrautinni undanfarið þá hef-
ur hún alls ekki gefið sönginn
upp á bátinn. Hún hefúr nýlok-
ið við nýja LP plötu og mynd-
band vegna hennar. Hún virð-
ist þó hafa slakað eitthvað á
síðan hún fór að vera með hin-
um unga Rob Camiletti, sem
er fyrrverandi bakari frá New
York, og er 23 ára.
En lífið hefur ekki alltaf leik-
ið við þessa leikkonu sem er af
armenskum og indíánakyn-
stofni. Hún er fædd 20. maí
1946 í bænum E1 Centro í
Kaliforníu. Mamma hennar
gifti sig átta sinnum, þar af
þrisvar föður Cher, sem þó bjó
ekki hjá þeim nema í um eitt
ár. Hann var hinn mesti
kvennabósi, alkóhólisti og eit-
urlyfjaneytandi þar að auki.
Þegar Cher var 16 ára var hún
orðin þreytt og leið á flökku-
líferni fjölskyldu sinnar og á
náminu, þannig að hún ákvað
að fara að heiman og leita
frægðar og frama í Los Ange-
les. Á Sunset Strip hitti hún
Sonny Bono, manninn sem
breytti lífi hennar. Þau giftu sig
árið 1963 og ári síðar varð
dúettinn til sem átti eftir að
gera þau heimsfræg. Plötur
með þeim seldust í milljóna-
upplagi og vinsældir þeirra
jukust enn vegna sjónvarps-
þáttar þeirra. En í einkalífinu
var Cher ekki hamingjusöm og
árið 1972 var hjónabandinu
lokið.
Ekki löngu síðar giftist hún
Gregg Allman. Þau eignuðust
soninn Elijah Blue sem var
annað barn Cher því fyrir átti
hún dóttur, Chastity, sem hún
eignaðist með Sonny. Gregg
var eiturlyfjaneytandi sem
ekki gat hætt og því fór hjóna-
bandið út um þúfur. Cher hélt
áfram að leita og reyna að
finna sér stað í lífinu. Hún var
með sýningu í Las Vegas og þó
hún fengi um 15 milljónir
króna á viku í tekjur þá var
hún ekki ánægð eða hamingju-
söm: „Líf mitt hefur alltaf verið
annað hvort gott eða slæmt en
ég hef aldrei verið í jafnvægi,"
útskýrir Cher.
Eftir að hafa ákveðið að
skipta um lífsstíl þá seldi Cher
Beverly Hills húsið sitt í eg-
ypska stílnum og flutti til New
York, þar sem hún vonaðist til
að geta unnið fyrir sér sem
leikkona. í byrjun tók enginn
hana alvarlega og margar dyr
voru henni lokaðar. En dyr
ffamleiðandans Robert Altman
opnuðust af sjálfú sér þannig
að hún fékk fljótt hlutverk í
verkum sem voru sýnd utan
Broadway. Þar vann hún sér
inn tæpar 22.000 krónur á
40 VIKAN
viku, sem sýnir að peningar
voru henni ekki allt. Á einni
slíkri sýningu tók leikstjórinn
Mike Nicholas eftir henni og
hún fékk hlutverk sem lesbísk
vinkona Karenar Silkwood,
sem var kvikmynd þar sem
Meryl Streep lék aðalhlutverk-
ið. Síðan lék Cher undir stjórn
leikstjórans Peter Bogsdona-
vich í myndinni Mzsk sem
vann til verðlauna á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
Einkalíf hennar tók framför-
um jafnt á við frama hennar á
hvíta tjaldinu. Hún sást í fylgd
með ýmsum karlmönnum:
Framleiðandanum David Geff-
en, Josh Donnen, hinum unga
Val Kilmer, rokkstjörnunni úr
Kiss, Gene Simmons, og núna
er það Rob Camiletti. Þessi
margræða kona er þó í raun-
inni mjög viðkvæm, næstum
brothætt. Cher klæðist oftast
svörtu, sem er hennar uppá-
haldslitur, en kjólar hennar
bera í rauninni vott um sér-
visku og eru mjög áberandi,
eins og gegnsæi kjóllinn sem
hún var í við Óskarsverðlauna-
afhendinguna ber vitni. Af
þeim myndum sem hún hefur
Ieikið í þá er Cher ánægðust
með Moon Struck. í henni
leikur hún ekkju af ítölskum
ættum, sem er karakter sem
hún átti ekki erfittt með að til-
einka sér, eða eins og hún seg-
ir sjálf: „Ég hef haft tækifæri til
að kynnast náið ítölskum kon-
um sem halda fast í gamlar
hefðir. Fyrst, þegar ég var með
Sonny og nú með Rob, sem
kemur úr mjög ítalskri fjöl-
skyldu. Þegar ég ferðaðist í
Evrópu um Ítalíu og önnur
lönd þar sem latnesku málin
eru töluð þá skildi ég hvers
vegna fólk þaðan vill halda
saman og sitja og tala saman
eftir hádegismatinn eða á
kvöldin. Á heimili Robs gerum
við einmitt þetta. Þessu fólki
finnst það ekki skylda sín að
sitja og horfa á sjónvarpið og
ungir og gamlir eyða tímanum
saman — sem þekkist ekki hjá
flestum bandarískum fjölskyld-
um.“
Þrátt fyrir allt þá hefur vel-
gengnin ekki komið á óvart
þessari konu sem hugsar sig
ekki um tvisvar áður en hún
segir: „Hefði einhver sagt mér
fyrir um framtíðina, þá hefði
ég talið þetta allt mögulegt. Ef,
fyrir hundrað árum, einhver
hefði sagt að maður ætti eftir
að ganga á tunglinu þá hefðu
allir sagt að það væri fásinna.
Ég lít þannig á málin að í lífinu
sé allt mögulegt sem menn
óska sér — alla vega hefúr það
verið þannig hjá mér.“
Glampi 1 augum,
krullað hár,
dálítið þybbinn
og eins og
hundruð ann-
arra þeldökkra
ungra manna í
Bandaríkjunum.
Þannig var
Michael Jackson
árið 1979. . . en
ekki mjög lengi.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
Ójöfn og dökk húð.
Breitt bil milli augna.
Óákveðin lögun.
Breiðir nasavængir.
Drúpandi nefbroddur.
Bogalagað svæðið
milli nefs og efri varar.
Oddhvöss haka.
1981
Nýr áratugur og
nýtt útlit. Michael
er orðinn vinsæll
poppsöngvari.
Húðin er orðin
jöfn og einum
tón Ijósari.
Hakan hefur
fengið aðra
lögun og ýmis-
legt fleira hefur
breyst.