Vikan - 23.06.1988, Side 51
ið af progestroni, meðhöndlaðar með B6
vítamíni (Pyridoxin). 3)
Læknir í Ástralíu, Gils að nafhi, varð
einna fyrstur til að nota þessa meðferð við
fyrirtíðaspennu og árangurinn var ótrú-
legur. í nýjustu rannsókninni reyndist
meira en helmingur sjúklinga sem með-
höndlaðir voru með þessu lyfl fá mikla bót
meina sinna, sérstaklega reynist það draga
úr höfuðverk, bjúg og almennri þreytu.
Einnig varð vart við minna þunglyndi og
önuglyndi. Mesta athygli vakti árangurinn
gagnvart höfuðverknum, en 62% þeirra
sem þátt tóku í rannsókninni losnuðu al-
gjörlega við hann. B6 vítamínið hefur
einnig virst létta þunglyndi sem oft tengist
inntöku getnaðarvarnapiflunnar.3)
Fækkun barneigna og
brjóstagjafar orsökin?
Sumir sérfræðingar telja að þar sem
konur í dag séu ekki lengur bundnar hinni
eilífu hringrás barnsburðar og brjóstagjaf-
ar þá hafi þær raunverulega tíðir oftar en
líkami þeirra ráði við.
Enn aðrir hafa stungið upp á að fyrir-
tíðaspennueinkennin séu þáttur í þróun
mannsins og ætlunin með þessu sé að
draga úr áhuga karlmannsins á samræði
og „eyðslu" á kyngetu sinni þegar þungun
gagnaðilans er ómöguleg.
Það er vel mögulegt að síendurteknar
tíðir séu í sjálfu sér ekki eðlilegar frá nátt-
úrunnar hendi, heldur geri líffræði kon-
unnar, með svipuðum hætti og annarra
spendýra, ráð fyrir því að hún verði barns-
hafandi um leið og hún verði kynþroska,
hafi barn á brjósti í 2 ár og verði þá barns-
hafandi á nýjan leik.3)
Sumir læknar telja orsök fýrirtíða-
spennu geta stafað af of mikilli vökvasöfn-
un á líkama konunnar og þunglyndi geti
stafað af of miklum vökva í kringum heil-
ann og önuglyndi er talið að dómi þessara
aðila orsakast af svörun taugafrumanna við
ójafnvægi milli natrium og kalium.3)
Meðhöndlun
Meðferð gengur oftast út á að reyna að
koma í veg fyrir vökvasöfnun og röskun á
hormónastarfsemi. í því skyni eru oft gefin
lyf, þ.e. þvagræsilyf, og konum er einnig
bent á að gæta sín í saltneyslu 7—10 daga
fyrir blæðingar. Við þessa meðhöndlun er
svo oft bætt lyfjameðferð, þ.e. róandi lyfj-
um og kvíðastillandi lyfjum. í erfiðustu til-
fellunum eru gefin hormónalyf, sérstak-
lega þau sem innihalda progesteron.
í flestum tilfellum er þó nægjanlegt að
ræða við og skýra út fyrir konunum hvað
liggur að baki vanlíðan þeirra. Leitað er
eftir að fá upplýsingar um persónuleika
sjúklingsins og tilfinningar og reynt að út-
skýra samband milli þeirra þátta og erfið-
leika þeirra.4)
Fyrirtíðaspennu er oftast hægt að með-
höndla þannig að árangur náist. Læknir
sem þekkir einkenni viðkomandi konu, og
getur séð á tíðakorti hennar hvenær ein-
kennanna verður vart, getur rannsakað
nákvæmlega hvað það er sem veldur
vandamálinu, hvaða skortur eða efnafræði-
legu ástæður geta legið að baki vandamál-
inu, þ.e.a.s. það fer þá eftir því hvar í tíða-
hringnum einkennanna verður vart.
Margir læknar kjósa að nota mildustu og
einföldustu meðferðina án nokkurrar sér-
stakrar rannsóknar, þ.e. vítamín B6 eins og
áður hefur verið vikið að. Lyfjameðferðin
ætti að hefjast 3 dögum áður en einkennin
hefjast sem er offast 10 dögum fyrir tíðir
og halda áfram þrem dögum eftir að tíðir
hefjast.3)
• Fyrirtíðaspennu
kvenna var fyrst gefinn
gaumur af afbrota-
frœðingum í Frakklandi
fyrir um 100 órum.
• ... helmingur ollro
slysa sem konur verða
fyrir ó heimilum sínum, í
vinnu eða ó götunni
eiga sér stað vikuna
fyrir blœðingar.
• Talið er að helmingur
sjólfsmorðstilrauna
kvenna orsakist af
fyrirtíðaspennu, misferli
ýmis konar, misþyrm-
ingar á börnum og
líkamsárásir á eigin-
menn.
• Sumir sérfrœðingar
telja að þar sem konur
í dag séu ekki lengur
bundnar hinni eilífu
hringrás barnsburðar
og brjóstagjafar þá
hafi þcer raunverulega
tíðir oftar en líkami
þeirra ráði við.
Sjálfshjálp
Áður en kona reynir að takast á við fyrir-
tíðaspennueinkennin er nauðsynlegt fýrir
hana að kanna það hvort sjúkdómsgrein-
ingin sé rétt. Ef tíðakort er haldið hjálpar
það til við að skýra einkennin og leiða við-
komandi fýrir sjónir hvenær tíðir hefjast
og hjálpa jafnffamt til við skilgreiningu
orsakanna. Það er einnig nauðsynlegt að
útskýra fyrir fjölskyldu viðkomandi orsök
geðillskunnar og önuglyndisins og annarra
einkenna sem hafa áhrif á þá sem eru í
nánasta umhverfi viðkomandi.
Sumar feðutegundir innihalda B6 víta-
mínið og eru þess vegna mikilvægar, eins
og t.d. lifur, mjólk, egg, korntegundir, heil-
hveiti og hrísgrjón. Það getur verið vel
þess virði að draga úr neyslu vökva og
matar sem inniheldur mikinn vökva. Til að
koma í veg fýrir vökvasöfhun er nauðsyn-
legt að borða eins lítið salt og mögulegt
er.
Það er nauðsynlegt vegna ákveðinna
sjúkdómseinkenna, t.d. lækkaðs blóðsyk-
urs, að borða oftar en venjulega en jafn-
framt minna magn í einu. Það dregur bæði
úr höfuðverk og önuglyndi. Margar konur
eiga það hins vegar til, sakir lækkaðs blóð-
sykurs, að borða oftar og meira en ella og
þyngjast þess vegna fyrir tíðir.
Konur þyngjast einnig vegna þess að lík-
aminn safhar á sig meiri vökva.
Ekki er ráðlegt að borða mat með miklu
sykurinnihaldi þar sem hann eykur blóð-
sykurinn hratt um tíma en leiðir til hraðari
Iækkunar blóðsykursins. Betra er að borða
feðutegundir sem eru lengur að meltast
eins og t.d. heilhveiti.
Að losa sig við reiði- eða spennutilfinn-
ingar þarf ekki að vera gert á kostnað ann-
arra. Mörgum konum finnst líkamsæfingar
hjálpa þeim til að losna við eða að draga úr
spennu og minnka áhrif magakrampa. Hiti
er einnig góður við sviða og sársauka þvi
hann slakar á spenntum vöðvum, t.d. getur
verið gott ráð að fara í heitt bað áður en
hvílst er. Nudd er hægt að nota til þess að
minnka streitu.
Sumum finnst að einhver sérstök verk,
t.d. brauðbakstur eða tiltekt, slaki á spenn-
unni og enn aðrar slaka á spennunni með
því að gráta.
Sumum konum léttir mikið við að ræða
um einkenni fyrirtíðaspennunnar við aðra
og komast að því að þær eru langt frá því
að vera einar um þessi einkenni. Þeim
finnst gott að vita og fræðast um að það er
ástæða fyrir fyrirtíðaspennunni og að þær
geta sjálfar gert eitt og annað til þess að
draga úr henni.
Að þekkja og staðfesta einkenni fyrir-
tíðaspennu er mikilvægasti þátturinn.
Kona sem þjáist af henni getur þá hjálpað
sjálfri sér að einhverju leyti, einnig rætt
málið við lækni og jafnvel fengið læknis-
hjálp og meðalagjöf sem getur létt á sjúk-
dómnum.
Þegar gengið hefur verið úr skugga um
að kona sé haldin fyrirtíðaspennu er oft
nægileg hjálp fyrir hana að ræða þetta
vandamál við fjölskylduna og finna sjálf út
leiðir til þess að létta á einkennunum, t.d.
forðast streitu og streituvalda á tímanum
fyrir tíðir og borða vel.
Ailt sem hún gerir sjálf getur hjálpað
henni verulega til þess að losna við
áhyggjurnar og amstrið sem fýrirtíða-
spennan veldur henni annars mánaðar-
lega.
HELSTU HEIMILDIR
1) Hjordis Guöbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur, grein (
tlmaritinu HJÚKRUN 3.-4./85,61.árgangur, bls. 15-17.
2) Guðrún Marleinsdóttir dósent og Herdís Sveinsdóttir
lektor, viðtal í Fréttatimaritinu ÞJÓÐLlF, 1. tbl. 4. árg.,
janúar 1988, bls. 19-21.
3) Hunter, Catherine, SRN, hjúkrunarkona á Railton Road
Clinic, London, grein í NURSING TIMES, janúar 1985,
bls. 40-43.
4) Brody, Sam, OBSTETRIK OCH GYNEKOLOGI, Alm-
qvist Boch Wiksell Förlab AB, Stokholm, 1970, bls. 586-
587.
VIKAN 49