Vikan - 23.06.1988, Síða 54
uane naia dooisi mutverK i morgum KviKmynaum, enaa tannn emn tærasti latbragósleikari Bandaríkjanna. En honum þykir meira varió i
að vinna innan um fólk og af því er víst ábyggilega nóg í Sea World þar sem hann skemmtir - og þiggur háar launagreiðslur fyrir...
„Ein 200 kílóa kona vildi
taka mig heim sem leikfang
- sagði lótbragðsleikarinn bandaríski Dane Denver f spjalli við Vikuna
MYNDIR OG TEXTI:
GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
Ef ég skrepp úr vinnunni í banka elta
öryggisverðir mig á röndum og tvisv-
ar hef ég valdið árekstri — óbeint, þeg-
ar fólk trúði ekki sínum eigin augum;
sá trúð undir stýri! Ég hef einu sinni
verið handtekinn í banka fyrir ránstil-
raun, gervið kom mér í koll. Þess
vegna held ég mig mest innandyra í
vinnutímanum, sleppi skreppitúrun-
um . ..“ sagði Dane Denver látbragðs-
leikari. Daglega skemmtir hann þús-
undum gesta í skemmtigarðinum Sea
World í Florida, þangað sem margir
íslendingar koma árlega. í Sea World
eru af alls konar skemmtiatriðum;
háhymingar, sæljón og margskonar
flskar leika listir sínar eða bara synda
um í búmm. Dane skemmtir gestum
hins vegar með kostulegum klækjum
52 VIKAN
og tilburðum áður en hin ýmsu sýn-
ingaratriði hefjast.
Dane hafa boðist hlutverk í mörgum
kvikmyndum. Hann þykir einn faerasti lát-
bragðsleikari Bandaríkjanna en honum
þykir meira í það varið að vera innan um
fólk, enda eru tekjur hans ekki skornar við
nögl. Gestir í Sea World skipta milljónum
á hverju ári og það er það sem Dane þykir
mest um vert.
„Mér fmnst gaman að geta látið fólk
gleyma daglegu amstri og það er ekkert
eins ánægjulegt og að geta laðað fram bros
á vörum barna og fullorðinna á sömu
stund,“ sagði Dane þegar blaðamaður Vik-
unnar spjallaði við hann. Stuttu áður hafði
hann farið hamförum meðal áliorfenda-
hóps í garði sæljónanna. Skemmtun Dane
er fólgin í því að elta áliorfendur sem eru
að koma sér fyrir og líkja eftir hreyflngum
þeirra á ýktan hátt, þannig að þeir sem
Frh. í næstu opnu.