Vikan - 15.09.1988, Síða 36
Svissnesk kálfasmásteik
Kjötréttur
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími: 20 mín.
Eldun: 10 mín.
Höfundur: Snorri B. Snorrason
INNKAUP:
AÐFERD:
800 gr. káifafillet
100 gr. sveppir
1 laukur
2 dl. hvítvín
2 dl. rjómi
4 dl. grunnsósa
1 búnt steinselja
hveiti
4—6 stórar kartöflur
salt, pipar,
hvítlauksduft, olía
20 gr. smjör
HELSTU ÁHÖLD: 1 meðalstór panna,
hnífur, skurðarbretti, stc-ikarspaði, 1
lítil panna, skeið, vigt.
Ódýr □ Erfiður □ Heitur H
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
■ Kálfakjötið er skorið í ræmur (ca 2 cm langar), og velt upp úr hveiti
krydduðu með salti og pipar. Laukurinn saxaður smátt og sveppirnir skornir
í sneiðar.
■ Kjötið snögg brúnað á pönnu í olíunni, síðan tekið af og sett á disk.
■ Laukurinn og sveppirnir eru settir á pönnuna ásamt hvítvíninu og smátt
saxaðri steinseljunni og soðið vel niður í 2-3 mín. þá er rjóminn settur útí
og síðast grunnsósan.
■ Soðið í 1 mín. Kjötið ersett út í sósunaog suðan látin koma upp, bragð-
bætt með salti og pipar.
■ Kartöflurnar eru skrældar og rifnar gróft í rifjárni. Soðnar í léttsöltu vatni
í 1 mín. Þá settar á litla pönnu ásamt olú og smjöri. Kryddaðar með hvít-
lauksdufti salti og pipar. Brúnað vel á hvorri hlið (á að líta út eins og klatti).
Karrýbætt fiskisúpa
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími: 10 mín.
Eldun: 45 mín.
Höfundur: Jóhann Sveinsson
Súpa
INNKAUP:
Soð:
Smálúðubein, vel hreinsuð
400 g vel hreinsað grænmeti svo sem
sellerý, laukur, blaðlaukur, steinselja
8 heil hvít piparkorn, salt
1 dl edik
2 I vatn
sítrónusafi úr 1 sítrónu
smjörbolla:
50 gr smjör
75 gr hveiti
Súpa:
2 dl rjómi
2 dl hvítvín
1 saxaður rauðlaukur
1 —2 msk karry (kínverskt
frá Heilsuhúsinu)
6 dl fisksoð
50 gr fiskur á mann, t.d. smálúða.
rækjur, muslingar, hörpuskelfiskur,
humar og fl.
4 msk þeyttur rjómi
kavíar og dill i skraut.
AÐFERÐ:
■ Soð: Ca. 50 g smjör er brætt í potti, grænmetið sett útí og síðan fiskur-
inn, velt um í 5 mín., þá er kryddað með salti, pipar og ediki. Vatni og
sítrónusafa bætt út í og soðið mjög varlega í 20 mín. Hellt í gegnum sigti
og soðið áfram í 10 mín. Þá er þaö jafnveð með smjörbollu og soðið í 10
mín. í viðbót.
■ Súpa: Laukur, skelfiskur og fiskur er svitað* og kryddað með karrý.
Karrýið er látið taka lit. 2 cl brandy hellt yfir og borinn eldur að, slökkt síðan
í með rjómanum og hvítvíninu.
■ Soðið saman og fiskur veiddur uppúr. Soðið sett útí og bragðbætt með
karrý, brandy, hvítvíni, salti og pipar.
■ Fiskurinn settur útí og sett á súpudiska. Skreytt með þeyttum rjóma,
kavíar og dilli.
* Svitað = þegar grænmeti og fiskur er hitað í feiti án þess að láta það brúnast.