Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 4
RLIT
smávegis kvabb fyrir hreppinn, en
var kjaftaður i kaf af vini sínum sem
var mikið niðri fyrir vegna hvaiveiði-
málsins...
43 Sjálfir sinir verstu óvinir. Þaö
hljómar óneitanlega undarlega, en
svona er það nú oft samt. Hér er átt
við þá sem halda því viðstöðulaust
fram að þeir séu ómögulegir og eru
stöðugt að gera lítið úr sér. Ert þú
einn þeirra?
47 Nám erlendis freistar margra. I
síðasta tölublaði Vikunnar sögðu
fjórar stúlkur frá námi sínu í ólikustu
fögum í mismunandi löndum. Leik-
listarnámi í Englandi, námi í kvik-
myndagerð í Frakklandi, tónlistar-
námi í Vín og námi í bókasafnsfræð-
um í Danmörku. Nú er það myndlist-
arnám í Bandaríkjunum, innanhúss-
arkitektúr á Italíu og listförðun í
Frakklandi. Og I næstu blöðum held-
ur Vikan áfram þessari námskynn-
ingu enn frekar.
50 Matur. Meistarakokkarnir í mat-
reiðsluklúbbnum Framanda halda
áfram að gefa okkur uppskriftir að
Ijúffengum réttum. Að þessu sinni
eru á kortinu grænmetisréttur og
bláber með skyrsósu. Auk þess birt-
um við svo uppskriftir Vigdísar Stef-
ánsdóttur að ódýrum kjöt- og fisk-
bollum.
52 Alein heima. Hvað þarf barna-
pían að vita áður en hún er skilin ein
eftir með börnin?
54 Isaac Bashevis Singer er einn
af þekktustu skáldum heims. Vikan
endurbirtir eina af bestu smásögum
hans, Eld-Hönnu.
57 Myndasögur.
60 Sparipeysa. Uppskrift að peysu
í stærð 36.
62 Krossgátan.
63 Unglingarnir spyrja: Vandamál
samfara samförum, söngvarinn í
Herramönnum og misskilin stúlka,
sem vill ekki heyra að hún „sé á ein-
hverju skeiöi".
64 Auðugasta amma veraldar.
Hún áað því ertalið er rétt rúma420
milljarða króna.
66 Stjörnuspá og létt krossgáta.
Eitt a vantaði
Eitt a getur haft sitt að segja.
Þannig var það í síðasta tölu-
blaði Vikunnar þegar prent-
villupúkinn fjarlægði þann
bókstaf aftan af nafni eins af
börnum þeirra hjóna Matt-
híasar Á. Mathiesen og Sig-
rúnar Þorgilsdóttur Mathie-
sen. Þannig hlaut Halldóra
dóttir þeirra nafnið Halldór
þegar barnanna var getið.
Biður blaðið velvirðingar á
þessum leiðu mistökum.
a i ;
EFNISYF
VIKAN 10. NÓV. 1988
25. TBL. 50. ÁRG.
VERÐ KR. 198
VIKAN kostar kr. 149 eintakið í
áskrift. Áskriftargjaldið er innheimt
sex sinnum á ári, fjögur blöð í senn.
Athygli skal vakin á því að greiða
má áskriftina með EURO eða VISA
og er það raunar æskilegasti
greiðslumátinn. Aðrir fá senda
gíróseðla. VIKAN kemur um sinn út
aðra hverja viku. Tekið er á móti
áskriftarbeiðnum í sima 83122.
Útgefandi:
Sam-útgáfan
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
Sími 83122
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Auglýsingastjóri:
Ingvar Sveinsson
Ritstjórar og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Bryndís Kristjánsdóttir
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Árni Sigurðsson
Ásgeir Tómasson
Þórey Einarsdóttir
Ragnar Lár
Bryndís Kristjánsdóttir
Torsten Lauresen
Guðrún Alfreðsdóttir
Þorsteinn Eggertsson
Svala Jónsdóttir
Hróbjartur Lúðvíksson
Þórdís Bachmann
Þórdís Elfa Ágústsdóttir
Vigdís Stefánsdóttir
Þorkell Garðarsson
Bjarki I. Hilmarsson
Isaac Bashevis Singer
Pála Klein
Gísli Ólafsson
Guðjón Baldvinsson
Þórarinn Jón Magnússon
Ljósmyndir í þessu tölublaði:
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Magnús Hjörleifsson
Páll Kjartansson
Þórarinn Jón Magnússon
Þórdís Elfa Ágústsdóttir
Carsten Schale
Útlitsteiking:
Þórarinn Jón Magnússon
Finnbogi Kjartansson
Setning og umbrot:
Sam-setning
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
Forsíðumyndina tók
Magnús Hjörleifsson
af Hendrikku Waage.
Hár og snyrting: Bára Kemp
og Ólöf Ingólfsdóttir.
7 Ólöf Einarsdóttir, eiginkona Arnórs Guðjohnsen, stjörnunnar í belgískri
knattspyrnu, segir frá því í viðtali við Vikuna hvernig þeim hefur líkað lifið i
Belgíu.
12 Dómsmál heitir nýr efnisflokkur
í Vikunni og hóf hann göngu sína í
síðasta tölublaði. Ærumeiðingar eru
teknar til umræðu í pistlinum að
þessu sinni.
14 Rokkskór og bítlahár heitir hin
prýðilegasta söngskemmtun, sem
nú er verið að sýna á Hótel Islandi.
Vikan brá sér á skemmtunina og
ræddi við eina af skærustu stjörn-
una.
18 Hjónin Unnur Arnórsdóttir og
Bárður ísleifsson giftu sig stuttu áður
en fyrsta tölublað Vikunnar fór í
prentun fyrir hálfri öld. Brúðkaups-
myndin af þeim birtist í fyrsta tölu-
blaðinu og ræddi Vikan svo við þau
aldarfjórðungi síðar til að forvitnast
um hjónaband þeirra sem var jafn
gamalt Vikunni. Fyrir fáeinum dög-
um bankaði Vikan enn á ný upp á
hjá hjónunum .. .
20 Gengið hans Þorsteins er við-
fangsefni Ragnars Lár að þessu
sinni i tilefni af palladómum Jóns
Baldvins.
22 Alla Pugatjova er vinsælasta
rokksöngkona Rússa. Blaðamaður
Vikunnar heimsótti stjörnuna á
heimili hennar við Gorkigötu í
Moskvu.
27 Ritstjórar i 50 ár: í þessu blaði
er rætt við þrjá þeirra sem stýrðu
Vikunni frá 1953 til 1979.
30 llmur hvítra blóma. Sagt frá
hönnuðinum Enrico Coveri, sem á
heiðurinn að Paillettes, ilmvatninu
sem Vikan er að gefa 280 lesendum
í tilefni afmælis blaðsins.
32 Árið 1988. Þegar Vikan fagnaði
25 ára afmæli sínu 1963 birtist í
blaðinu viðtal við þrjá vel menntaða
menn um hugmyndir þær er þeir
gerðu sér um það hvernig lífið yrði
hér á Islandi árið 1988. I þessari
Viku er það helsta úr viðtalinu rifjað
upp og jafnframt rætt við einn
„spámannanna" þriggja, Jóhannes
Nordal Seðlabankastjóra..
37 Misskilningur. Margir af hvers-
dagslegustu hlutum sem við þekkj-
um eru byggðir á misskilningi. Eins
og t.d. undirskálarnar með tebollun-
um...
38 í loftinu. Það er Kristín Helga
Gunnarsdóttir sem gefur lífinu lit í
stuttum fréttapistlum sem hún flytur
hlustendum Bylgjunnar. Vikan kynn-
ir þessa 25 ára gömlu stúlku.
40 Hróbjartur Lúðvíksson átti er-
indi inn á Hótel Borg um daginn. Ætl-
aði að hitta Stefán Valgeirsson með
4 VIKAN 25. TBL. 1988