Vikan


Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 27

Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 27
Ritstjórar Vikunnar í 50 ár Ég hef aldrei ljóstrað því upp... að þá skrifaði ég eina sögu undir fölsku erlendu „Breytinga* tillögur voru ekki vinsælar“ TEXTI: GUÐRÚN ALFRÐESDÓTTIR LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON Gísli J. Ástþórsson var sá fjórði í röðinni sem ritstjóri Vikunnar, en það var frá árinu 1953 til 1958. Hann mun hafa verið fyrsti íslendingurinn sem lauk námi í blaðamennsku. Gísli hefur fengist við rit- störf og jafnframt starfað á Morgunblaðinu í allmörg ár. „Eftir að ég kom heim úr blaða- mennskunámi í Bandaríkjunum vann ég á Mogganum í fimm ár. Síðan datt ég út úr blaðamennsku í ein þrjú ár eða þar til mér bauðst ritstjórastarf á Vikunni, sem ég tók auðvitað feginshendi. í þá daga hljóp mað- ur nefnilega ekki bara út á næsta horn og réð sig á eitthvert blað eða nýja útvarps- stöð. Ég var nýbúinn að eignast helming- inn í Vikunni, af tómri ævintýramennsku, þegar ég hætti þar fimm árum síðar. Þá hafði mér boðist ritstjórn Alþýðublaðsins, sem var talsvert mikið blað, og setti ég sem skilyrði fyrir starfinu að þeir Alþýðu- blaðsmenn útveguðu mér kaupanda að mínum hlut í Vikunni. Ég gat ómögulega farið að hafa áhyggjur af henni sem rit- stjóri Alþýðublaðsins. Það vildi svo vel til að strax fannst kaupandi, ungur maður sem ætlaði að verða íslenskur blaðakóng- ur, en það var Hilmar A. Kristjánsson. Hjá Alþýðublaðinu var ég líka í fimm ár, þessi fimm ára tímabil virtust orðin regla hjá mér á þessum árum. Hausinn Ijótur og leiðinlegur Þegar ég byrjaði á Vikunni var hún í eigu Steindórsprents, en síðar vildu þeir losa sig við hana og var það ástæðan fýrir því að ég keypti helming blaðsins. Þetta var hagkvæm útgáfa fýrir prentsmiðjuna að því leyti að gripið var í vinnslu blaðsins þegar lítið var að gera í öðru. Vikan var sextán síður og í föstum skorðum þannig að mitt starf var bara að sjá um að fylla út í hinn fyrirffam ákveðna ramma. Breyt- ingatillögur voru ekki vinsælar því svona hafði blaðið verið og þannig var þægileg- ast að vinna það. En þetta voru ljúfustu menn að vinna fyrir. Ritstjórn blaðsins var tvær manneskjur, ég var sem sé ritstjóri yfir Elínu Pálma- dóttur blaðamanni. Elín var afskaplega dugleg og góður blaðamaður, raunar vel á við tvo. Þetta gekk því alveg prýðilega hjá okkur en ekki var um neinar byltingar að ræða á Vikunni. Það var auðvitað heilmik- nahii. ill fiðringur í puttunum á manni og löngun til að koma ýmsum draumum í verk, en vegna þess hve stíft var haldið um taum- inn var annaðhvort að sætta sig við hlutina eða hætta. Einu fékk ég þó að breyta mjög fljótlega sem var einfalt og kostaði lítið, en það var haus Vikunnar. Ég man þegar ég var að ræða þessar breytingar við ónefnd- an prentsmiðjustjóra og er ég hafði útlist- að vandlega fýrir honum hvað mér fyndist hausinn ljótur og leiðinlegur, fræddi hann mig á því að hann hefði sjálfúr teiknað hann. Einnig var ég ósáttur við að hafa er- lendar myndir á forsíðunni svo ég fékk leyfi til að fá ljósmyndara annað slagið til að taka myndir úr íslensku umhverfi. Varðandi lesefhi blaðsins þá gátum við aukið svolítið innlent efhi án þess að raska forminu. Við reyndum líka að lífga upp á framhaldssögumar en þær voru eiginlega burðarás blaðsins. Ef þær náðu athygli les- enda í byrjun var salan tryggð næstu mán- uði. Einu sinni man ég eftir svo vel lukkuð- um vestra að slegist var um handritið í prentsmiðjunni og þá var maður aldeilis á grænni grein. Ég hef aldrei fyrr ljóstrað því upp að einhverntíma þegar við vomm í óskaplegu ffamhaldssöguhallæri þá skrif- aði ég eina sögu sjálfur, undir fölsku er- lendu nafni. Þetta var bara ágætis reyfari, ekkert verri en hver annar, og mikið gam- an að skrifa hann. En svo leynt fór ég með þetta að ég held hún Elín hafi ekki einu sinni vitað af þessu. Eðlilegt að skussum fjölgi Útgáfustarfsemin á þessum ámm var svona eins og gamall vani, alltaf sömu blöðin og sama vikukritið og ekkert stór- brotið að gerast. Eins og engum dytti neitt sérstakt í hug. En það er ekki alveg hægt að segja það sama um þessa hluti í dag. Að sumu leyti er ég mjög hrifinn af þróun út- gáfúmála síðustu árin, þótt smndum sé farið heldur geyst að mínu áliti. En ég er voða- lega ósáttur við árans dellurnar sem koma ffá sumum blaðamönnum. Það er kannski eðlilegt að skussunum fjölgi eftir því sem hjörðin stækkar, en þar með falla þeir líka auðveldlega í fjöldann. í fámenninu í gamla daga komust menn ekki upp með að skrifa illa bjagað mál marga daga í röð, það varð svo áberandi. Það er auðvitað jafn sjálfsagt að blaðamaður geti skrifað ís- lensku og að smiður geti haldið á hamri. Vikan varð að vana — rétt eins og Fálkinn Vikan hefur átt sín góðu tímabil á þess- um fimmtíu árum en það mest spennandi finnst mér vera upphafið. Vikublaðið Fálk- inn var orðinn eins og hver annar kækur þegar Vikan kom til sögunnar, en hún var dálítið í stíl við danska blaðið Hjemmet. Sigurður Benediktsson ritstjóri var alveg sérstaklega pennafær maður, skrifaði lát- laust og gott mál sem hæfði blaðinu vel. Síðan komu tímabil þar sem Vikan varð að vana rétt eins og Fálkinn, en tók svo góða spretti öðru hvoru með nýjum mönnum sem ætluðu sér stóra hluti. Svona til gam- ans má það fljóta hér með að ekki er ólík- legt að kveikjuna að stofnun Vikunnar megi rekja til ákveðins atburðar í líft Sig- urðar Benediktssonar. Þegar hann var ung- ur sveitapiltur vann hann þá hetjudáð að bjarga telpuhnokka úr lífsháska við hinar erfiðustú aðstæður. Danskt vikublað, sem verðlaunaði óbreytta borgara fyrir ýmis björgunarafrek, hafði spurnir af þessu og bauð pilti út til Kaupmannahafhar til að veita slíkum verðlaunum móttöku. Þannig kynntist Sigurður af eigin raun og á áhrifa- ríkan hátt vikublaði í svipaðri mynd og hann átti síðar eftir að stofna." 25. tbl. 1988 VIKAN 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.