Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 31
Nýja ilmvatnið frá
Enrico Coveri hefur
Ijúfan blómailm -
hvítan ilm - því
uppistaðan er ilmur hvítra
blóma; jasmín frá Grasse,
búlgarskar rósir, ylang frá
Comores og íris frá Flórens.
Blómailmurinn er síðan
kryddaður með nellikum frá
Zanzibar, að viðbættum
ávaxtailmi. I ilmvatnið er bætt
efnum sem gera það að verk-
um að ilmurinn helst lengi á
hörundinu og því er spáð að
þær konur sem laðast að Enr-
ico Coveri ilmvatnið, muni
halda sig við það þaðan í frá.
En hver er hann þessi Enr-
ico Coveri?
Hingað til hefur hann verið
þekktur fyrir fatnaðinn sem
hann hefur hannað og ber
nafn hans. Hann lærði í lista-
skóla á Ítalíu - Accademia di
Bella Arti í Flórens, sem er
þekkt hönnunar- og listaborg.
Fyrsta verkefni hans að námi
loknu var að hanna búninga
og tjöld fyrir leiksýningu - og
leiðin þaðan í tískuhönnun
var ekki löng eða ströng. Nú
er fatnaður hans til um víða
veröld og þekktur fyrir sinn
sérstaka stíl og hversu vand-
aður hann er.
Árið 1982 færði fyrirtæki
hans út kvíarnar og var breytt
í samsteypu framleiðenda
sem framleiða fatnað hans
með aðalstöðvar í Mílanó.
aður. Pelsar, töskur, skór,
bindi og slaufur hafa einnig
verið á dagskrá hjá honum,
svo og sportfatnaður. Ilmvatn-
ið „Paillettes" varð síðan til
árið 1982 og á eftir fylgdi
„Pour Homme“ ilmur fyrir
karlmennina. Hæfileikum
Enrico Coveri virðast engin
takmörk sett og nýverið sneri
hann sér aftur að byrjuninni
og teiknaði búninga og tjöld
fyrir leiksýningu.
Flest tískublöð heims hafa
einhvern tíma fjallað um fatn-
að Enrico Coveri og spænska
blaðið Lecturas fékk Stefaníu
prinsessu af Mónakó til að
klæðast fötum hans og birti af
því myndir á fimm síðum. Hér
birtir Vikan nokkrar myndir
af Enrico Coveri fatnaði, en
ilmvatnið góða hljóta heppnir
í „afmælisgjöf".
Útibú var opnað í Frakklandi
1984, á þeim fræga stað Fau-
bourg St. Honoré, en verslan-
ir eru úti um allan heim. Hann
tekur þátt í Pret-á-Porter vor-
og haustsýningunum í París,
en frá þv( hann gerði þaö fyrst
árið 1978 hafa vinsældir fatn-
aðar hans farið vaxandi með
hverju árinu.
Coveri hannaði í upphafi
kvenfatnað, en fljót-
kom herrafatnaður og
barna- og unglingafatn-