Vikan


Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 19

Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 19
húsverðinu þegar við byrjuðum að byggja. Lánafyrirgreiðslan hjá bönkum eða hinu opinbera var ekki mikil á þessum árum — það var hægt að fá lánuð í hæsta lagi 10% af íbúðarverðinu — en við áttum góða kunningja. Á stríðsárunum hafði sumum saínast nokkurt fé og það var hægt að slá menn hér og þar um smáupphæðir sem síðar voru greiddar til baka þegar betur stóð á. Það er einnig líklegt að verðbólgan sem þarna var tekin að magnast hafi hjálp- að eitthvað til þótt manni væri það ekki ljóst fyrirfram." Bárður segist hafa verið heppinn að hafa alltaf haft trausta og góða atvinnu. Unnur bendir á að hinar heimavinnandi húsmæð- ur í þá daga hafi iíka lagt sitt af mörkum því þær voru allt í senn; saumakonur, vinnukonur og hvað eina. Eðlilegt að hjón láti í Ijósi ólíkar skoðanir Unnur kveðst hafa verið heimavinnandi að mestu leyti ffam að því að yngri sonur- inn var um tíu ára en sá eldri kominn í menntaskóla, en hafi þá farið aftur út að vinna. „Þetta var mikil reynsla, jafnvel fyrir stóra stráka komna í menntaskóla sem henda inn töskunni og kalla mamma og enginn svarar! En ég hefði ekki viljað missa af þessum tíma heima. Þá fékk ég margt að heyra og hjálpaði þeim oft að ráða ffam úr vandamálunum," segir Unnur. „Við hljótum vitanlega að hafa vissar áhyggjur af því hvað konur geta lítið verið heima við nú, en lífsmátinn í dag hann býður ekki upp á það að konur séu heima. Ég skil því sjónarmið útivinnandi kvenna, að það er lítill tími til samvista við börnin. Það var ómetanlegt fyrir börnin okkar að geta haff móður sína hejma á meðan þau voru lítil, en það var ekki okkur að þakka. Tíðarandinn gerði það að verkum að þannig var þetta hjá flestum.“ Vikan hefúr jafnan verið dugleg við að fjalla um margs konar vandamál við sam- búð og hjónaband. Þar sem þau Unnur og Bárður hafa afrekað það á tímum sívaxandi sambúðarvanda og hjónaskilnaða að búa saman í hálfa öld er ekki úr vegi að spyrja hvort þau eigi einhver ráð til handa ung- um hjónum. „Það verður fyrst og ffemst að ríkja gagnkvæmt traust og skilningur á milli þeirra. Það er eðlilegt að fólk láti stundum í ljósi ólíkar skoðanir og að það hvíni og þjóti í öllu. Þá er nú best að ekkert barefli sé innan seilingar," segir Unnur og hlær. „Nei, nei,“ heldur hún áffam, „í alvöru talað, ég held að umburðarlyndi og skiln- ingur sé afskaplega mikilvægur, og að hlaupa ekki undan minnstu misklíð.“ Bárð- ur er þessu alveg sammála, en bætir við að karlmenn eigi alltaf að vera sáttir við það að eiga fallegustu konuna í bænum! Þau hjónin eru hjartanlega sammála um að sambúðin hafl gengið eins og best verður á kosið. Vitanlega hafi off komið upp skipt- ar skoðanir og það væri reyndar fúrðulegt ef svo hefði ekki verið, „en maður verður að geta ráðið fram úr því,“ segir Unnur með áherslu. Unnur og Bárður voru heimsótt í tilefni af 25 ára afmæli Vikunnar og var þessi mynd tekin við það tækifæri. „Ef til vill giftist fólk í dag of ungt. Það er svo óskaplega margt sem ffeistar og fólk svo margt eftir ógert þegar það giftir sig. Fólk gerir óheyrilegar kröfúr til lífsins og lífsgæðakapphlaupið kostar mikið. Þetta strit fyrir þaki yfir höfúðið er hreinlega ómanneskjulegt. Það væri til bóta ef fólk ætti þess til dæmis kost að leigja gegn sanngjömu verði í stað þess að þurfa að ganga að sjálfú sér hálf dauðu við að eign- ast húsnæði, sér í lagi ef kröfúmar sem fylgja því em óhóflegar.“ Hafa aldrei átt bíl! Unnur og Bárður hafa ferðast töluvert bæði utanlands og innan og eignast fjölda góðra vina. Það kemur ffam í viðtalinu fyr- ir 25 ámm að þau hafi aldrei átt bíl, ogþau hafa ekki eignast hann síðan. Þau hafa ávallt farið fótgangandi eða í almenningsvögn- um allra sinna ferða, jafnvel þótt Unnur hafi þurft að sækja vinnu til Garðabæjar, Hafn- arfjarðar og Keflavíkur. í seinni tíð segist hún þó láta það eftir sér að kaupa sér leigubíl þegar svo beri undir. Dagsstundin hjá þessum heiðurshjónum leið fljótt. Blaðamanni var boðið upp á kafli og við spjölluðum um heima og geima. Unnur sýndi blaðamanni meðal annars myndir úr brúðkaupi yngri sonar þeirra, sem hafði gift sig í Svíþjoð fyrir nokkmm ámm. Brúðurin var klædd kunnuglegum kjól, enda kom á daginn að þama var kom- inn brúðarkjóll Unnar. Kjóllinn er úr silki- satíni og blúnduefni, saumaður af Ástu Þórðardóttur saumakonu í Reykjavík. Unnur segist sjálf hafa ákveðið útlit kjólsins, en Ásta saumaði af stakri vand- Fyrstu brúðhjón Vikunnar Myndin af Unni og Bárði sem birtist í 1. tbl. Vikunnar 17. nóvember 1938. virkni. Á ermunum em til dæmis 15 hand- gerðar lykkjur fýrir hnappa og í það minnsta helmingi fleiri á bakinu. Það kem- ur einnig upp úr dúmum að brúðguminn er klæddur sömu kjólfötunum og faðir hans var í á sínum tíma. Viðtalinu 1963 lauk á því að blaðamaður- inn setti ffam vangaveltur um ffamtíðina þess efnis að einhvem tíma birti blaðið brúðarmynd af sonum þeirra Unnar og Bárðar og kæmi síðan 25 ámm síðar og tæki viðtal við þau hjón. Ef til vill rætist sú spá ekki, en Vikan hefúr á sínu hálfrar aldar æviskeiði alltaf verið í takt við það líf sem lesendur hennar hafa lifað. 1 v’
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.