Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 53
NÁIVI ERLENDIS
Frh. af' bls. 47
er mjög strangt þannig að þó að námið
byggist á sjálfenámi og þá sjálfeaga er ætl-
ast til að nemendur skili inn vissum fjölda
af verkum á hverri önn. Þeir velja sér aðal-
fag í upphafi náms en stunda einnig nám í
aukafögum. Helga hafði málun sem aðalfag
en grafík sem aukafag. Fjöldi nemenda í BA
áfanga er gífurlega mikill og vinnuaðstaða
þá oft slæm en þegar komið er í Masters
nám eru fáir nemendur teknir inn og
vinnuaðstaða sérlega góð. Ástæðan fyrir
því að nemendur í bandarískum Iistahá-
skóla fara mjög oft út í Mastersnám í list-
um er að þannig öðlast þeir kennslurétt-
indi og einnig komast þeir mun ffekar að
með sýningar á listagalleríum og söfhum.
Mörg gallerí eru jafhvel hætt að sýna verk
þeirra listamanna sem ekki hafa lokið
Mastersgráðu. San Francisco Art Institue
rekur tvö gallerí innan skólans þar sem
nemendur geta sýnt yfir veturinn og þar
sem þeir halda samsýningu á vorin.
Helga telur San Francisco listaháskólann
vera góðan fýrir utan skúlptúrdeildina
sem hún mælir alls ekki með. Skólinn er
talinn meðal ffemstu einkaskóla Banda-
ríkjanna enda ber aðsókn að skólanum
þess merki, en hún er mjög mikil og út-
lendir nemar eru margir, koma t.d. frá
Japan, Kína Afríku, Evrópu og auðvitað
Bandaríkjunum. íslendingar voru 10—12 í
skólanum en þeim fækkar óðum þar sem
skólagjöld hafa hækkað mikið og Lánasjóð-
ur íslenskra námsmanna lánar aðeins
ákveðna upphæð á ári hverju til BA náms.
Það er einnig mjög dýrt að Iifa í San
Franciscoborg, húsaleiga er mjög há og
stúdentagarðar hafa aðeins nýlega verið
reistir við skólann. Allflestir íslenskir
nemendur vinna með náminu á svörtum
markaði til að skrimta út skólaárið. Engin
Iæknisaðstoð er veitt í skólanum og því er
nauðsynlegt að sjúkratryggja sig á íslandi.
Helga segir San Francisco hafa breyst
mikið á undanförnum árum úr því að vera
glaðvær og menningarleg borg í hálf dauf-
lega og tómlega borg. Ástæðan sem liggur
að baki þessum breytingum að áliti Helgu,
er sú að mjög margir íbúa hennar eru
samkynhneigðir og hafa þeir orðið illa
úti vegna eyðnisjúkdómsins. Helga sagði
að það væri sorglegt að sjá eyðnisjúklinga
sem væru að veslast upp út um alla borg.
Þeir sem áður sköpuðu fjörlegt mannlíf í
borginni hafa nú mikið til hrofið og ekkert
hefur komið í staðinn. Vegna þessa og fjár-
hagslegra vandræða fannst Helgu óbæri-
legt að dveljast í borginni s.I tvö ár og vildi
helst komast heim til íslands sem fýrst.
Helga valdi það að stunda Mastersnám í
sama skóla og hún tók BA próf ffá vegna
þess að hún bjó með syni sínum, núna 14
ára gömlum, Andrési Úlfi Dúasyni, og hún
vildi alls ekki þurfa að láta hann sífellt
breyta um og aðlagast nýju umhverfi.
Helga telur nemendur skólans vel undir-
búna undir ffamtíðina ef skólinn hefur
verið vel nýttur á námstímanum, en hins
vegar sé skóli eins og þessi vonlaus ef fólk
hefur engan sjálfsaga og lítinn áhuga.
SITT LÍTIÐ AFI!M*tfllJ
ÁSGEIR TÓMASSON TÓK SAMAN
má gleyma yfir sex hundruð Roy Rog-
ers veitingastöðum sem gamli kúrekinn
á víðsvegar um Bandaríkin.
Roy Rogers var nýlega gestur á út-
skriftarafmæli gamalla skólanema í
Cincinnati. Þar lét hann vel af sér og
sínum og kvaðst hlakka til þakkagjörð-
ardagins. Þá býst hann við að hitta
börnin sín sex, sautján barnabörn og
þrettán barnabarnabörn og snæða með
þeim nokkra kalkúna.
Ekki er ailt sem sýnist
Madonna og leikarinn höggfasti Sean
Penn? Ekki aldeilis. Hún heitir Denise
Vlasis og hefur góðar tekjur af því að
líkjast söngkonunni Madonnu sérlega
mikið. Maðurinn sem er með henni á
myndinni heitir Bob Allen og er ótrúlega
líkur Sean Penn eiginmanni Madonnu.
Hann réð Denise til að koma með sér í
partí stutta stund öllum viðstöddum til
mikillar undrunar. Fólk hugði ein fræg-
ustu hjón Bandaríkjanna þarna lifandi
komin.
Roy Rogers er enn hinn hressasti.
Trigger er hins vegar horfinn af sjón-
arsviðinu.
Roy Rogers hefur
nóg að starfa
Algeng spurning í barnablaðinu Æsk-
unni fyrir aldarfjórðungi eða svo var
hvort gamla kúrekahetjan Roy Rogers
væri látinn. Staðlað svar blaðsins var
að bæði Roy og Trigger væru við bestu
heilsu.
Nú hefur Trigger gamli brokkað inn á
veiðilendurnar miklu en Roy - öðru
nafni Leonard Fanklin Slye - er við
hestaheilsu. Ef svo má að orði komast.
Gamli maöurinn hefur í nógu að snúast
því hann rekur Roy Rogers/Dale Evans
safnið með miklum myndarskap sem og
Happy Trails hvíldarheimilið. Og ekki
Shadoe Stevens hóf störf við útvarp
ellefu ára gamall.
Kraftaverkamaður
bandríska
vinsældalistans
Margir muna áreiðanlega enn eftir
bandaríska vinsældalistanum sem
Kanaútvarpið sendi út á laugardagseft-
irmiðdögum árum saman.
Nú er listinn sendur út á sunnudög-
um. Gamli stjórnandinn, Casey Kasem,
hefur snúið sér að öðrum störfum og í
staðinn er kominn Shadoe nokkur
Stevens. Hann var valinn úr hópi um
1000 umsækjenda til að taka við stöðu
Kasems.
Shadoe Stevens er enginn ný-
græðingur í faginu. Það eru liðin þrjátíu
ár síðan hann fékk sinn fyrsta útvarps-
þátt, þá ellefu ára gamall. Áður en Stev-
ens varð þrítugur hafði hann unnið
sannkallað kraftaverk í Boston. Hann
sá þar um útvarpsþátt hjá einni stöðinni
þar í borg og náði 34 prósent hlustun á
þáttinn. Það met hefur enn ekki verið
slegið í Boston.
Shadoe Stevens lét ekki þar við sitja.
Útvarpsstöð í Los Angeles keypti hann
frá Boston og hún varð innan skamms
sú vinsælasta þar. Önnur stöð bauð
Stevens betri laun og hún fór á toppinn.
Þá kom sú þriðja í Los Angeles og bauð
best. Áður en langt um leið var hún orð-
in númer eitt.
Það er því sannkallaður kraftaverka-
maður Ijósvakans sem tók við af „dýr-
ustu rödd Bandaríkjanna" útvarps-
manninum Casey Kasem.
25. tbl. 1988 VIKAN 51