Vikan


Vikan - 10.11.1988, Qupperneq 5

Vikan - 10.11.1988, Qupperneq 5
VIKAN FAGNAR 50 ARA AFMÆLI Orsakaði björgunarafrek ungs sveitapilts útgáfii Vikunnar? Núverandi ritstjórar Vikunnar, Þórarinn Jón Magnússon og Bryndís Kristjánsdóttir, sitja á rökstólum ásamt framkvæmda- stjóra Sam-útgáfunnar, Sigurði Fossan Þorleifssyni. Skyldi það óbeint hafa orðið þess valdandi að Vikan hóf göngu sína að telpa komst í lífs- háska í byrjun aldar- innar og ungur dreng- ur var svo lánsamur að bjarga henni? í stuttu spjalli við einn af fyrr- verandi ritstjórum Vik- unnar er þessi getgáta sett fram. Gísli J. Ástþórsson, sem rit- stýrði Vikunni ffá árinu 1953 til 1958, segir í viðtali á bls. 27 að þegar stofhandi Vikunnar, Sigurður Benediktsson, var ungur piltur í sveit hafi hann drýgt þá dáð að bjarga telpu- hnokka úr lífsháska við hinar erflðustu aðstæður. Danskt vikublað, sem verðlaunaði óbreytta borgara fýrir ýmis björgunarafrek, hafi haft spurnir af þessu og boðið pilti til Kaupmannahafnar til að veita slíkum verðlaunum mót- töku. Þannig kynntist Sigurður af eigin raun og á áhrifaríkan hátt vikublaði í svipaðri mynd og hann átti síðar eftir að stofha. Það var fimmtudaginn 17. nóvember 1938 sem Sigurður Benediktsson gaf út fyrsta tölublað Vikunnar. Ritstýrði hann blaðinu en framkvæmda- stjórnin var í höndum Einars Kristjánssonar. Vikan var strax hið myndarlegasta blað. Prent- að á vandaðan pappír í tveim litum. Var 24 síður að stærð og í stóru broti. Lausasöluverðið var 40 aurar en í áskrift kostaði blaðið eina krónu og fimmtíu aura á mánuði. í dag býr Vikan við mikla samkeppni á tímaritamarkað- inum, en í forystugrein fýrsta tölublaðsins sem út kom fyrir hálfri öfd má lesa að við sömu samkeppni hafi verið að etja, en þar segir orðrétt: „Blaðið býr yfir gnægð glæstra drauma. Þrátt fýrir hinn þrönga markað og mikinn fjölda íslenskra blaða og tímarita hvarflar hvergi að því að efast um til- verurétt sinn og baráttuhæfhi fýrir eigin þróun og viðgangi á komandi tímum.“ Sigurður Benediktsson, stofnandi Vikunnar. Hann tók síðar til við listmunaupp- boð sem lengi munu í minn- um höfð. Um efni blaðsins í aðalatrið- um sagði að það væri ætlað tif fróðleiks og skemmtunar, gagns og gleði góðum lesend- um. „Megináhersla verður lögð á að flytja létt og læsilegt efni til hvíldarlesturs og dægradvalar, ásamt greinum og ritgerðum, sem hafa al- menna þýðingu í þjóðfélags- legu og menningarlegu tilliti." Þá kom fram að Vikan hafði þegar aflað sér góðra sam- banda og samvinnu við nokkur erlend vikublöð og tímarit — og þó alveg sérstaklega eitt slíkt erlent blað, vikublaðið Hjemmet í Kaupmannahöfn. Við ritstjórn Vikunnar næst á eftir Sigurði tók Jón H. Guðmundsson, en þegar hann Forsíða fyrsta tölublaðs Vik- unnar, sem út kom 17. nóv- ember 1938. féll skyndilega frá greip Erling- ur E. Halldórsson í fáeina mán- uði inn í. Erlingur er rithöf- undur og býr nú í Grímsey. í síðasta tölublaði birtust viðtöf við þá fimm ritstjóra er ritstýrðu Vikunni á síðustu fjórtán árum. í þessu tölublaði er svo rætt við þrjá þeirra sem stýrðu Vikunni áratugina tvo á undan. Sá fjórði, Jökull Jakobs- son, er látinn. Síðasta tölublað Vikunnar var að stórum hluta tileinkað afmæli blaðsins og svo er einn- ig með þetta tölublað. Þegar farið var að blaða í eldri ár- göngum Vikunnar rákumst við núverandi ritstjórar blaðsins á svo óskaplega margt sem gam- an væri að endurbirta. Svo margt að ógjörningur væri að láta það allt eftir sér. En eitt og annað munum við þó leyfa okkur að sýna ykkur lesendum í næstu tölublöðum. Það verð- ur enginn svikinn af þeim lestri og myndasýningum. Og þá er bara að vona að blaðalesendur verði jafn trygg- ir Vikunni næstu 50 árin eins og þau 50 ár sem nú eru að baki. Þórarinnjón Magnússon Bryndís Kristjánsdóttir Forsíður Halldórs eftirminnilegar Hlíf Geirsdóttir hafði sam- band við okkur á Vikunni. Af því Vikan á svona stór- afmæli þá langaði hana til að segja firá því að hún hefði keypt hvert einasta blað sem komið hefði út. Því miður ætti hún ekki allt safnið því hún hefði geymt blöðin uppi á háalofti þar sem raki hefði komist í þau, en líklega öll blöðin frá 1970 eða þar um bil. Hlíf sagðist afltaf setja Vik- una í samband við feðingu sonar síns, en hann hefði fæðst í september sama ár og Vikan kom út í fyrsta sinn. Hlíf var þá 22 ára. Hún sagðist alltaf hafa byrjað á því að fletta blaðinu, svona til að sjá hvað væri í því — en síðan hefði það verið krossgátan. Krossgátan í Vik- unni hefði verið sín einkaeign — aðrir heimilismenn hefðu rif- ist um krossgátur í öðrum blöðum. Hlíf sagði að sér hefði fundist frábært að sjá viðtal við manninn sem hefur gert kross- gáturnar öll árin! Hún hefði einhvern veginn aldrei hugsað um manninn þarna á bakvið. Hlíf sagðist náttúrulega ekki muna eftir einstaka efni í öll- um þeim Vikum sem hún hef- ur lesið, en sérstaklega sagðist hún muna eftir ffábærum for- síðum sem Halldór Pétursson hefði teiknað. „Vikan hefur alltaf verið okkar heimilis- blað,“ sagði hún að lokum. „Ég fékk mína krossgátu og krakk- arnir Binna og Pinna." □ 25. tbl. 1988 VIKAN 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.