Vikan - 10.11.1988, Page 20
EFTIR RAGNAR LÁRHH
Gengið hans
Þorsteins
Raupað og rissad í tilefni
palladóma Jóns Baldvins
að vakti að vonum gífurlega athygli hér á dögunum þegar háæru-
■ verðugur utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, settist í
W dórnarasætið og gaf meðráðherrum sínum, núverandi og fyrrver-
andi, einkunnir. Palladómar eru ekki óþekkt fyrirbrigði hér á landi og
eru jafnan vinsælt lesefni. Á sínum tíma birtust frægir palladómar í Vikunni
og voru þeir um þekkta landa, einkum stjórnmálamenn.
En það mun vera einsdæmi að starfandi ráðherra gefi samráðherrum sín-
um svo afgerandi einkunnir sem Jón Baldvin gerði í viðtali við Alþýðublaðið
þann 13. október síðastliðinn. Að sjálfsögðu hafði Jón Baldvin erindi sem
erfiði, enda dylst engum að sá var tilgangurinn. Blaðinu var dreift í stóru
upplagi um landið þvert og endilangt. Já, sviðsljósið er heillandi, eins og
sannast á öllum þeim látúnsbörkum sem tröllríða þjóðinni um þessar
mundir. Látúnsbarkinn Jón Baldvin gaf raupara kærkomið tækifæri til að
bregða pennanum, í þeim tilgangi að festa nokkrar skissur á blað, og fylgja
þær línum þessum. Það hefur jafnan verið þakklátt verk og vanþakklátt í
senn, að teikna skopmyndir af samferðamönnum. Vandi teiknarans er sá að
skjóta ekki yfir markið og er það von raupara að enginn fyrtist við þær teikn-
ingar sem línunum fylgja. Textinn undir teikningunum er að sjálfsögðu
byggður á fyrrnefndum palladómum Jóns Baldvins.
Jóns Baldvins vinsælasti maður þjóðarinnar.
En Jón segir að Steingrímur hafi snemma
verið ósáttur við þessa ríkisstjórn og einkum
tvennt komið til. í fyrsta lagi hafi honum
fundist að drengurinn við borðsendann sæti
í sínum stól og í öðru lagi hafi honum fundist
árangursleysi stjórnarinnar mikið. Jón
Baldvin segir það ekki út í hött að kalla hefði
mátt Steingrím leiðtoga stjórnarandstöðunn-
ar, þar sem hann hefði af pólitískri þefvísi
vitað hvað almenningur vildi heyra.
Jón Baldvin kveður Matthías hafa haft lítið
að gera sem samgönguráðherra þar sem
Vegagerð ríkisins sjái að mestu um þá
sjoppu. Hafi Matthías því haft lítið að gera
og lagst í ferðalög. En Jóni líkar vel við Matt-
hías og segir hann viðfelldinn mann, léttan í
lund og góðan félaga. Kveður hann Matt-
hías vera langlífan mann í pólitík að hætti
Mykyans og Kosygins.
20 VIKAN 25.TBL. 1988
Friðrik Sophusson hafði ekki mikið aö gera
í iðnaðarráðuneytinu að sögn Jóns
Baldvins, enda sé það lítilfjörlegt ráðuneyti.
Ekki minnist Jón þess að Friðrik hafi flutt mál
sem orð væri á gerandi. En sem málsvari
Sjálfstæðisflokksins sé Friðrik harðskeyttur.
Jón segir að Friðrik hafi viljað báknið burt í
æsku, en hann hafi löngu gefist upp fyrir
tregðulögmáli kerfisins.
Johanna er sá ráðherra sem Jóni Baldvini
kemur fyrst í hug þegar hann lítur til baka til
fyrri stjórnar. Hann getur þess að hún hafi
setið honum á vinstri hönd, sem þýðir að
sjálfsögðu að hann hefur setið henni á hægri
hönd. Jón segir að Jóhanna sé afkastamesti
kvenpólitíkus á Alþingi með öllum kostum
og kenjum kvenskepnunnar. Stefnuföst og
þrjósk, en afskiptalítil um önnur mál en „sín
eigin“. Meira en karlmannsígildi.