Vikan - 10.11.1988, Page 34
VIKAN
FAGNAR
50ÁRA
AFMÆLI
Þannig lítur Örkin hans Nóa út, en
hún er falin einhvers staðar í Vik-
unni. Felustaðarins verður þú að láta
getið til að skafmiðinn geti fært þér
gjöf eða þátttöku í úrdrætti úr „pott-
inum“.
34 VIKAN 25. TBL. 1988
^^ðru sinni fylgir skafmiði Vik-
unni og fylgja einnig næstu
tveim tölublöðum. Tilefnið er að
sjálfsögðu hálfrar aldar afmæli
Vikunnar, en útgefandur ákváðu
að hafa endaskipti á hlutunum.
Nú er það sem sé afmælisbarn-
ið sem færir velunnurum sínum,
lesendum blaðsins, gjafir. Með-
fylgjandi skafmiði gæti fært þér
einhverja þeirra eittþúsund
gjafa sem sagt er frá hér í opn-
unni. Samtals er verðmæti gjaf-
anna ein og hálf milljón króna.
Undir fletinum, sem skrapa þarf
af gjafakortinu, leynast bókstaf-
ir. Ef þú færð einhverja þeirra
stafaraða sem færa þér afmæl-
isgjöf getur þú umsvifalaust vitj-
að vinningsins á skrifstofu Vik-
unnar, sem er í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1 í Reykjavík. - En
fyrst verður þú að færa inn á
gjafakortið, í þar til gerðan reit,
svarið við því hvar Örkin hans
Nóa er falin í blaðinu.
VIKAN GEFUR
1000 LESENDUM
MÆUSGJAFIR
100.0
FERÐA
HJÁ Ú1
Þeir sem fá bókstaf-
ina A, V og C á
skrapmiðann geta
verið með í „pottin-
um“ þegar dregið
verður á Þorláks-
messu um ferð fyrir
tvo með Útsýn á
næsta ári. Afmælis-
gjöf að verðmæti
kr. 100.000.
Sá heppni getur
hugsað með mikilli
tilhlökkun til næsta
sumarleyfis, því eins
og alþjóð veit er úr
fjölda spennandi
ferða að velja og alls
staðar um vandaða
gististaöi að ræða og
besta mögulega
aðbúnað. Sá ferða-
maður er í traustum
höndum sem ferðast
með Útsýn.
EGILL, JAKOB OG RAGNHILDUR
- sem saman skipa STRAX - eru að
senda frá sér nýja plötu undir nafninu
„Eftir pólskiptin". Það er mikið úrvalslið
sem aðstoðar þau þrjú á plötunni og út-
koman vafalítið eigulegasta plata ársins.
Meðal vinninga eru 250 eintök af þessari
nýju plötu, sem kostar út úr búð 1.199 kr.
Samanlagt verðmæti hljómplötustaflans
er því kr. 299.750.
Því miður féll niður nafn Egils á skafmið-
anum og er Egill beðinn velvirðingar á
þeim mistökum.
Færi skrapmiðinn þér ekki ör-
bylgjuofn, ilmvatn, bók, hljóm-
plötu eða konfektkassa heldur
stafina A, V og C getur þú póst-
sent kortið til Vikunnar með
nafni og heimilisfangi ásamt
réttu svari við spurningunni um
felustað arkarinnar hans Nóa.
Kortið fer þá í „pottinn" sem
dregið verður úr á Þorláks-
messu. Sá heppni fær ferð fyrir
tvo að eigin vali með leiguflugi
Útsýnar á næsta ári og er vinn-
ingurinn að verðmæti 100 þús-
und krónur. Auk þess fær hann,
svona aukreitis í jólagjöf frá Vik-
unni, ilmvatn, bók, plötu og kon-
fektkassa.