Vikan


Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 39

Vikan - 10.11.1988, Blaðsíða 39
eins og áður sagði, hann í framhaldsnám í verkfræði en hún í fjölmiðlafræðina í Uni- versity of Utah í Salt Lake City. „Ég var í hagnýtu fjölmiðlanámi, við lærðum öll vinnubrögð og störfuðum meðal annars á fjölmiðlum í borginni. Ég vann um tíma á Deseret News, einu aðaldagblaði borgar- innar og var einnig aðeins í að aðstoða einn af þekktari útvarpsmönnum fylkisins á útvarpsstöð sem útvarpaði aðeins tal- málsþáttum. Samfélagið í Utah er svolítið sérstakt, þarna eru mormónar allsráðandi og það setur sinn svip á mannlífið. Þeir eru indælt fólk og gott að eiga samskipti við þá, en þeir eru svolítið ofstækisfullir. Landslagið er eitt það stórbrotnasta sem ég hef séð í Bandaríkjunum annars vegar eyðimörk og hinsvegar Klettafjöllin. Þarna eru líka ein bestu skíðasvæðin í Bandaríkjunum, enda voru margir skíðaáhugamenn frá Evrópu í háskólanum, til dæmis þó nokkuð marg- ir Norðmenn og því var skólinn með al- þjóðlegu yflrbragði og mjög ffábrugðinn mannlífinu í kring.“ Meðal verkefna hennar í skólanum var viðtal við einhvern þekktan mann, sem vinna átti fyrir tímarit. Hún valdi höfðingja Ute-ættflokksins, en þeir búa í fjöllunum á mörkum Utah og Colorado. „Ég keyrði þangað í febrúar í vitlausu veðri, þetta var eins og að koma til annars lands. Hjá indí- ánunum ríkir mikil fátækt, en höfðinginn var með ýmsar áætlanir í gangi til úrbóta. Hann hafði meðal annars komið á fót með- ferð fýrir áfengissjúklinga og búið var að reisa hótel sem var mjög sérstakt í útliti, risastórt múrsteinshús í laginu eins og indíánatjöld. Höfðinginn var stórmerkileg- ur maður, hann hafði menntað sig og vann að því að endurbæta samfélagið og koma fólki sínu í samband við umheiminn. Skíði og hundar — Áttu þér einhver áhugamál utan við starfið? „Við Helgi erum forfallnir skíðamenn, hann er reyndar gamall keppnismaður. Við tökum Grím með okkur, hann hefur mjög gaman af því að hlaupa um í snjónum. Það má eiginlega segja að hann sé áhugamál, alla vega tekur hann mikinn tíma. Ég er með hundadellu og hef alltaf átt hund. Grímur er með fínni ættartölu en nokkur annar í fjölskyldunni og nú er hann í hlýðniskóla að læra góða hunda- siði.“ Grímur sýnir mér fúslega það sem hann hefur lært; að setjast, leggjast og heilsa. Hann hefur Iátið lítið fýrir sér fara meðan á viðtalinu hefur staðið, sofið mest allan tímann og rétt vaknað til að leika sér að plastdýrunum sínum. — Hvernig manneskja er Kristín Helga? „Ég er frek og alls ekki feimin. Ég er ffekar sveiflukennd, stundum er ég ofsa- lega kát og stundum hundful. Það er ekk- ert þarna á milli. Ég hef mjög gaman af að gera hlutina með engum fýrirvara, læt stjórnast af hugdettum. Maðurinn minn er aftur á móti miklu jarðbundnari og skipu- lagðari en ég. Ég fékk til dæmis þá hug- dettu að fara til Hawaii í vorffíinu okkar eitt árið, við fórum með bakpoka á ódýr- asta fargjaldi. Við bjuggum á Maui, sem er mjög falleg lítil eyja og lítið um ferða- menn, í kommúnu hjá brimbrettaáhuga- mönnum. Þetta var mjög afslappað líf og ég hefði vel getað hugsað mér að vera þarna í nokkra mánuði, slappað af á ströndinni og gengið undir pálmatrján- um... en kannski á ég eftir að fara aftur þangað, hver veit..." □ 25. tbl. 1988 VIKAN 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.