Vikan - 10.11.1988, Qupperneq 54
I
Hvað þarf barnapían að vita
áður en hún er skilin ein eftir
með börnin?
■ Hvaö foreldrarnir heita fullu nafni.
| Nákvæmlega hvar þið verðið, símanúmer þar og
hvenær þið komið til baka.
B Heimilisfangið og símanúmer þar sem barnapían er að
passa.
B Símanúmer nágranna eða ættingja sem hringja má til
ef neyðarástand skapast.
| Listi yfir neyðarsímanúmer - lögreglan, læknavakt og
slökkviliðið.
| Farið með hana um húsið og sýnið henni hvernig
síminn virkar (margir kunna ekki að nota þráðlausan síma,
t.d.), hvernig hækka og lækka á hitann, nota eldavélina ef
hún sér um matinn og annað sem nauðsynlegt er að hún
kunni á.
■ Þurfi börnin að taka inn meöul þá þarf að segja
barnapíunni nákvæmlega til; hvenær, hversu mikið,
hvernig, o.s.frv.
■ Láta hana fá húslykla, ef þarf.
■ Fara yfir þær kröfur sem þið gerið til barnapíunnar, s.s.
að banna reykingar, notkun áfengis, langtíma notkun á
síma, háværa tónlist eða krakka í heimsókn.
■ Segja henni reglurnar á heimilinu sem börnin eiga að
fara eftir, s.s. varðandi aga, sjónvarpið og önnur heimilis-
tæki, hvort krakkarnir megi fá heimsókn og hvað þau mega
gera sér til skemmtunar.
■ Upplýsingar varðandi máltíðir; hvort krakkarnir megi fá
eitthvað eftir kvöldmat eða hvenær barnið eigi að fá pela.
| Sýnið henni hvar bleiur og annað er fyrir ungbarnið.
| Á hvaða tíma krakkarnir eiga að fara að sofa, hvernig
þau sofna best; með því að lesið sé fyrir þau, þau fari í bað,
fái að hafa Ijós í herberginu, o.s.frv.
| Segja barnapíunni ef einhver þarf að læra heima, eða
á að leysa einhver ákveðin verkefni af hendi, s.s. fara út
með hundinn.
■ Síðast, en ekki síst, þarf aö sjá til þess að barnapían
komist heilu og höldnu heim til sín að gæslu lokinni.