Vikan


Vikan - 10.11.1988, Side 56

Vikan - 10.11.1988, Side 56
SAGA EFTIR ISAAC BASHEVIS SINGER ELD-HANNA á, það er til fólk sem er djöflar í I mannsmynd. Guð hjálpi oss! Mæður I sjá oft ýmislegt þegar þær fæða, en ' þær segja ekki ffá því sem þær sjá. ld-Hanna, eins og hún var kölluð, var ekki mannleg vera heldur logandi eldur frá Víti. Ég veit að maður á ekki að tala illa um látið fólk og hún hefir kvalist nóg fyrir syndir sínar. Var það henni að kenna að það var alltaf stormur í sál hennar? Það var hægt að sjá það í augum hennar, sem voru eins og kolamolar. Það var hrollvekjandi að horfa í þau. Hún var dökk eins og tatari, með mjóleitt andlit, innfallnar kinnar, horuð, eiginlega aðeins skinn og bein. Einu sinni sá ég hana baða sig í ánni, rif- beinin stóðu út eins og gjarðir. Hvernig gat nokkur, sem var líkur Hönnu, safnað spiki? Hvað sem sagt var við hana, hversu sakleysislegt sem það var, var hún strax á verði. Hún gat farið að öskra, steyta hnef- ana og snúast í hring eins og brjáluð manneskja. Og andlitið varð náhvítt af bræði. Ef þú reyndir til að bera hönd fyrir höfúð þér, þá var eins og hún gæti gleypt þig með húð og hári. Hún átti það til að brjóta leirtauið. Á nokkurra vikna ffesti varð eiginmaður hennar, Tevia Chazkeles, að kaupa nýtt leirtau. Hún tortryggði alla. Henni fannst allur bærinn vera á hælum sér. Þegar hún fékk reiðiköstin var orðbragð hennar þannig að ekki einu sinni brjálað fólk hefði viðhaft slíkt. Blótsyrðin streymdu af vörum hennar, eins og ormétnar baunir. Hún þekkti öll formælingarorð hinnar helgu bókar. Hún sveifst þess ekki að kasta grjóti, ef svo bar undir. Einu sinni, um miðjan vetur, braut hún gluggapóst í húsi nágrannans. Nágranninn vissi aldrei hvers vegna hún gerði það. Hann átti fjögur börn, fjórar dætur; en þær fóru að heiman um leið og þær spruttu úr grasi. Ein varð þjónustustúlka í Lublin, önnur fór til Ameríku, sú fegursta, Melkeleh dó úr skarlatssótt og sú fjórða giftist gömlum manni. Það var allt betra en að búa hjá Hönnu. Tevia, maðurinn hennar, hlýtur að hafa verið dýrlingur. Enginn nema dýrlingur hefði haldið það út að búa með öðru eins skassi í tuttugu ár. Hann bjó til sáld. Og þá, jafhvel um hávetur, byrjaði vinnudagurinn áður en birta tók af degi. Hann varð sjálfur að leggja til kerti og laun hans voru smá. Þau voru fátæk, en þau voru ekki ein um það. Heilt vagnhlass af krít hefði ekki dug- að til að skrifa upp þær ásakanir sem hún lét dynja yfir hann í tíma og ótíma. Ég bjó í næsta húsi við þau í nokkur ár og einu sinni heyrði ég hana kalla á eftir honum, þegar hann fór til vinnu sinnar: — Komdu 54 VIKAN 25.TBL. 1988 - logar vítis sem brunnu innra með þessari píndu sál myndu brjótast út, fœra eyðileggingu yfir þorpið....

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.