Vikan


Vikan - 07.09.1989, Qupperneq 16

Vikan - 07.09.1989, Qupperneq 16
FELAG5MAL Til fjölskyldudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur leita m.a. aðilar sem af einhverjum ástæðum geta ekki framfleytt sér samkvæmt 1. grein framfærslulaga VIÐTAL: SIGRÚN HARÐARDÓTTIR MYND: EGILL EGILSSON Aðeins þriðjungur fóiksins þiggur langtímagreiðslur frá , Félagsmálastofnun, en þar er að mestu leyti um að ræða börn sem eru vistuð af bamaverndarnefnd, langtímasjúklingar og gamalt fólk. Þriðjungur hópsins þiggur aðstoð stofnunarinnar í 2-5 ár, en þriðjung- ur í innan við eitt ár. Reykjavíkurborg leggur mest sveitarfélaga á landinu fé og þjónustu til aðstoðar þeim sem uppfylla skilyrðin sem sett eru í lögum. f ársskýrslu Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar frá 1987 kemur fram að skjólstæðingar nefna oftast ónógar tekjur sem aðalástæðu fyrir komu sinni. Skýrsla um mat starfs- manna sýnir sömu ástæður og skjól- stæðingar nefina í umsóknum sínum, en munurinn er hins vegar sá að áherslurnar breytast. Ónógar tekjur fá til dæmis minna vægi. Hins vegar fá þættir eins og vímuefnavandi, fjöl- skylduvandi og vandi vegna barna og unglinga miklu meira vægi. Veikindi, örorka og húsnæðisleysi fá einnig meira vægi, þótt munurinn sé minni á þessum þáttum milli mats umsækj- anda og starfsmanns. Af rúmlega 1000 nýjum málum sem komu upp árið 1987 voru 70% mál þar sem skjólstæðingur kom að eigin frumkvæði. Þegar skjólstæðingar koma ekki að eigin frumkvæði eru algengustu tilvísanirnar úr heilbrigð- isgeiranum eða 10%, ættingjar og vin- ir 6%, og dómskerfíð er 6 %. Síðan koma skólar, félagsmálastofinanir úti á landi og aðilar úr öldrunargeiranum. 25% þeirra sem leita til fjölskyldu- deildar eru öryrkjar, þar af eru rúm- lega 21% með 75% örorku en rúm- lega 4% með minni örorku en það. í kjölfarið fýlgja þeir sem eru skráðir sem verkamenn og sjúklingar, en hvor hópur um sig er u.þ.b. 21%. Síð- an eru u.þ.b. 10% skjólstæðinga skráð sem atvinnulaus. Rúmur helmingur þeirra sem sækja til fjölskyldudeildar Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar eru ein- hleypingar en ekki fjölskyldufólk eins og nafn deildarinnar gefúr til kynna. í reglugerð um aðstoð Félagsmála- stofnunar við aðila sem af einhverjum ástæðum geta ekki framfleytt sér stendur m.a. að kanna skuli til þraut- ar möguleika á annarri liðveislu en fjárhagsaðstoð og henni aðeins beitt í eðlilegum tengslum við önnur úr- ræði Félagsmálastofnunar, t.d. ráðgjöf og leiðbeiningar. Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð sem er til þess fallin að koma í veg fýrir að viðkomandi kom- ist í þá aðstöðu að geta ekki séð sér og sínum farborða og í öðru lagi að veita fjárhagsaðstoð sem lið í endurhæf- ingarmeðferð sem sérstaklega er til þess fallin að hjálpa viðkomandi til sjálfsbjargar. Markmið aðstoðar Fél- agsmálastofnunar er því hjálp til sjálfshjálpar. Ný lög um sjálfræðissviptingu tóku gildi 1. júlí 1984. í þeim er gert ráð fýrir að Félagsmálastofhun eða ætt- ingjar geti lagt fram beiðni um inn- lögn einstaklings gegn vilja á geð- deild í 14 daga án þess að komi til sjálfræðissviptingar. Tilgangur þessa ákvæðis er meðal annars sá að það þurfí þá ekki að koma til sjálfræðis- sviptingar vegna tímabundins ástands. Ef um beiðni um sjálfræðis- sviptingu er að ræða er leyfilegt að halda sjúklingi á geðdeild lengur en í 14 daga, eða þangað til dómur fellur um sjálfræðissviptinguna. Til þess að leggja inn einstakling gegn vilja hans þarf að koma til beiðni firá aðstand- anda eða félagsmálastofhun og lækn- isvottorð ekki eldra en tveggja ára gamalt. 16 VIKAN 18. TBL. 1989

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.