Vikan


Vikan - 07.09.1989, Síða 21

Vikan - 07.09.1989, Síða 21
FÉLAG5MÁL fólki. Hins vegar er tilfellið að markmið Félagsmálastofnunar takmarkast af mann- afla, tíma og fjárveitingum. Hjálp til sjálfshjálpar Hjálp til sjálfshjálpar er aðalmarkmið stofnunarinnar og við göngum t.d. inn í endurhæfingarprógrömm með öðrum stofnunum og kostum ýmis úrræði um- ffam lagalegar lágmarksskyldur sveitarfé- lagsins. Það má nefna töluverða uppbygg- ingu í sambýlum fyrir geðsjúka, það er að segja vernduðum íbúðum fyrir fólk sem er að útskrifast af geðsjúrkahúsi, og sambýli fyrir áfengissjúklinga. Síðan er í einstökum tilfellum fjármögnuð endurhæfing ein- staklinga. Aðstoð Félagsmálastofnunar er hugsuð sem leið út úr ógöngum en ekki til þess að festa fólk í hlutverki þiggjandans. Það getur verkað letjandi að fá fjárhags- aðstoð, þá virkar hún eins og róandi lyf frá lækni. En það má segja að við hvert tilfelli sem ekki tekst að hjálpa manneskju til sjálfsbjargar, og þá er átt við einstakling sem ekki telst með í flokki eðlilegra lang- tímaskjólstæðinga, þá hafi þetta ætlunar- verk okkar mistekist." Neitar Félagsmálastofnun fólki um aðstoð? „Félagsmálastofhun getur neitað fólki um aðstoð ef það er sýnt að það aðhefst ekkert til þess að ráða bót á sínum málum. Það er ekki eins erfitt að meta slíkt í hverju einstöku tilfelli eins og maður gæti ætlað. En það er ekki hægt að alhæfa. Það er skjólstæðingurinn sjálfur sem skilgrein- ir það með félagsráðgjafanum hverjir erfiðleikar hans eru, hvaða lausnir henta honum og hvaða leiða ber að leita til þess að ráða fram úr erflðleikum hans. Ef vandamálið er atvinnuleysi, þá er skoðað af hverju það stafar. Er það vegna almenns atvinnuleysis eða vegna persónulegs vandamáls, svo sem veikinda, eða mennt- unarskorts jafnhliða vangetu til þess að vinna erfiðisvinnu ófaglærðs verkamanns? Er einstaklingurinn einstætt foreldri, sem hefur ekki þrek til þess að vinna erfið- isvinnu og síðan ráða við 2-3 börn að lokn- um löngum vinnudegi? Ein lausn í slíku máli er t.d. sú að leita sér menntunar. Stundum er um áfengisvandamál að ræða. Hér á landi er mikið framboð af góðri meðferð fyrir fólk sem á í áfeng- isvanda. Auðvitað þýðir ekkert að vera að leysa önnur vandamál ef vikomandi er meira og minna í vímu. Það þýðir ekki að sækja um ljárhagsað- stoð hjá Félagsmálastofnun ef aðili er menntaður til einhverra sérstakra starfa en fær ekki vinnu við það starf. Ef það mat er lagt á mál umsækjanda að hann sé með það sem hægt væri að kalla flottræfilshátt, °g þiggi enga aðra vinnu á meðan hann ekki fær nákvæmlega það starf sem hann langar í, þá fær hann ekki fjárhagsaðstoð hér.“ Maður þarf þá að fá sér skúringa- starf á rneðan framkvæmdastjórastarf- ið ekki finnst? „Einmitt. Það er hið almenna viðhorf hjá fslendingum, ólíkt því sem er víða erlend- is. í Danmörku getur enginn neytt þig til þess að taka verkamannavinnu ef þú ert at- vinnulaus tannlæknir. Hér tekur þú þá at- vinnu sem býðst og bjargar þér, vinnur fýrir þér í hverju sem er ef þú getur ekki fengið starf í fagi þínu. Fólk getur ekki komið til okkar og sagt: „Ég á kröfu á fjár- hagsaðstoð nema þið skaffið mér vinnu.“ Við gerum kröfu til hvers skjólstæðings um að hann geri það sem hann getur til að ráða bót á sínum erfiðleikum. Hins vegar ef viðkomandi er ófaglærður verkamaður og það er atvinnuleysi í þeirri grein, þá er lítið sem viðkomandi getur gert til þess að breyta þeim ytri aðstæðum. Vinnumarkaður hafnar þeim Ytri ástæður eru til dæmis þær fyrir fólk sem er að hluta til öryrkjar, eða sjúklingar með skerta starfsgetu, að vinnumarkaður- inn hafnar þeim gjarnan. Þessi hópur stendur mjög höllum fæti núna í atvinnu- leysinu. Það eru margar konur í þessum hópi.“ Það minnir blaðamann á að í Englandi var í vetur talsverð umfjöllun um sjúk- dóminn M.E., sem hefur valdið skertri starfsgetu hjá fjölda fólks í 1—5 ár. Um er að ræða veiru sem sest að í meltingarkerf- inu og veldur máttleysi, þreytu og skorti á einbeitingu. Fjöldinn allur af fólki hefur misst vinnu vegna þessa sjúkdóms og átt í erfiðleikum með að fá sjúkrabætur vegna hans, einmitt vegna þess að sjúklingurinn missir ekki starfsgetuna að fullu. Umburðarlyndi gagnvart veikindum „Það er ýmislegt sem getur gert það að verkum að við réttar aðstæður sé allt í lagi með fólk, en það ræður ekki við hvaða vinnu sem er. Þá þarf það að vinna á stað þar sem ríkir umburðarlyndi gagnvart veikindum. En það er ekki mikið framboð á slíkum stöðum. Þá á fólk rétt á því að fá fjárhagsaðstoð í fjóra mánuði meðan gerð- ar eru ráðstafanir til þess að finna viðun- andi aðstæður. Einstæðir foreldrar, sem eru óvinnufer- ir vegna sjúkdóms eða örorku, skortir við- unandi barnagæslu eða bera háan hús- næðiskostnað, einnig einstæðir foreldrar sem hafa fyrir veikum eða fötluðum börn- um að sjá þannig að vinnugeta takmarkast af þeim sökum, hjón eða sambýlisfólk með börn þegar annað foreldrið er óvinnufært vegna sjúkdóms eða á stofnun, barn er fatl- að eða veikt, einnig ef húsaleiga er há, þá er um að ræða fjárhagsaðstoð í þrjá mán- uði. Önnur viðhorf erlendis En hingað kemur fólk sem hefur verið í útlöndum þar sem félagsþjónusta þykir miklu sjálfsagðari og réttur er e.t.v. skýrar skilgreindur. Það hefur einhverja tiltekna menntun og því þykir sjálfsagt að koma hingað og biðja um fjárhagsaðstoð meðan það fær ekki vinnu sem það hefur mennt- að sig til. Þessir aðilar eru ekki endilega hnípnir. Þeim finnst sjálfsagt að fá fjárhags- aðstoð. En slíkt viðhorf er ekki almennt hér. Meðal annars þess vegna kemur fólk hingað hnípnara heldur en hollt er fyrir það. Eðlilegur réttur Það hefur tvær hliðar. Fólk leggur mikið á sig og það þiggur hjálp frá þeim sem næstir því eru og það heldur í stoltið. En það hefur þá bakhlið að ef þær bjargir eru bannaðar þá fer fólk beygt af skömm til þess að sækja aðstoð sem við erum í mörg mörg ár búin að skilgreina sem eðlilegan rétt.“ Sjálfræðissvipting Félagsmálastofnun er einn af þeim aðilum sem geta Iagt fram beiðni um sjálfræðissviptingu. Hvað geturðu sagt mér af slíkum málum? „Slík mál eru afar sjaldgæf hjá okkur. Við erum mjög íhaldssöm á að leggja fram beiðnir um sjálfræðissviptingu. Það er al- gjör undantekning. En segjum að það sé barnaverndarmál í gangi og að það sé ljóst að vanræksla barna sé á ferðinni, vansæld barna hjá geðveiku eða geðveilu foreldri, og sterkar grunsemdir fagmanna um að geðveiki sé þarna að baki, þá hafa barna- verndaryfirvöld heimild til að taka barnið af heimilinu. En í mörgum tilvikum gæti verið rétt að reyna jafnframt að koma við meðferð, að koma viðkomandi til geð- læknis. Það getur verið betri leið fyrir við- komandi manneskju og börnin að reyna til þrautar, þótt undir nauðung sé, að leggja fram beiðni um sjálfræðissviptingu og fá a.m.k. innlögn og athugun á því hvort meðferð geti hjálpað. Ég vil árétta að slík mál eru mjög fá, það líða e.t.v. nokkur ár á milli þeirra. Enda vilja flestir fá hjálp þegar mál eru komin á alvarlegt stig. Áður en löggjöfinni var breytt gengu sjálfræðissviptingarmál oft þannig fyrir sig að heimildin var notuð til þess að koma einstaklingi undir læknishendur, en síðan gekk málið aldrei í gegn, það varð að svo- kallaðri „skúfíúsviptingu". En núverandi lög eru skýrari og tryggja betur réttar- öryggi, og þar á ég við að innlögn getur farið fram gegn vilja einstaklingsins í 14 daga, án þess að til sjálfræðissviptingar komi. Við berum ábyrgð á börnunum Það kemur ekki Félagsmálastofúun við þótt fólk hafi einhverjar sérkennilegar skoðanir. En það kemur barnaverndar- nefnd við ef þessar sérkennilegu skoðanir leiða til vanrækslu eða illrar meðferðar á börnunum. Okkar deild er að bera ábyrgð á börnunum." 18. TBL.1989 VIKAN 19

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.