Vikan - 07.09.1989, Page 39
HEIL5A
vegna margvíslegra sjúkdóma sem hrjáðu
hana. Þessi kona er enginn sérvitringur
heldur hljóðlát menntakona. Hún viður-
kenndi að sér hefði fundist afar erfitt að
hefja þvagdrykkjuna en hún hefði komist
yfir byrjunarörðugleikana með því að
blanda þvaginu saman við eplasafa. Nú
drekkur hún það hreint vegna þess að eins
og Pauls og Armstrong halda fram verður
þvagið tært og bragðlítið. Hún kom með
glas af þvagi sínu og það var eins og fölasta
hvítvín og lyktarlaust með öllu.
Fyrir nokkrum árum gerðist Sarah Miles
leikkona mikill aðdáandi þvagdrykkju.
Sagt er að hún blandi því saman við epla-
safa og að hún hafi orðið sem ný mann-
eskja við þessa meðferð. Sarah Miles vill
ekki lengur ræða þvagdrykkju sína vegna
þess hve hæðst var að henni.
Líklega er hæðst að Pauls daglega, en
hann kærir sig kollóttan. Hann skoraði
einu sinni á kunnan þvagfæralækni að þeir
skyldu láta efnagreina þvag sitt og athuga
hvor þeirra væri með hreinna þvag.
Læknirinn afþakkaði boðið. Arthur Pauls
segir venjulega lækna afhuga þvaglækning-
um af stjórnmálalegum og efnahagslegum
ástæðum. Þvag er, þegar á allt er litið, ó-
keypis og í nægilegu framboði.
Hann mælir með því að byrjað sé að
drekka aðeins 28 millílítra af fýrsta morg-
unþvaginu úr miðri bunu. Ef tilhugsunin
er of ógeðfelld mælir hann með því sem
húðmeðferð. Grunnefni margra dýrra
snyrtivara er þvagsýra, segir hann, en
þvagsýra er í þvaginu. f Bandaríkjunum er
einnig mikill markaður fýrir pillur sem
innihalda efni úr þvagi og sumir læknar,
sem eru hægt og varlega að gera sér grein
fýrir kostum þvagsins, sprauta því í fólk
fyrir offé. Þvag er líka stórgott við bruna-
sárum. Verkamenn í verksmiðjum, þar
sem ofhar eru.hafa alltaf vitað þetta. Ef ein-
hver brennir sig mígur annar á sárið.
Arthur Pauls hefiir sjúklinga í meðferð
sem þjást af mörgum mismunandi sjúk-
dómum, frá krabbameini að hjartveiki. Hjá
honum er kona sem þjáist af lungna-
þembu. Áður gat hún ekki staulast þvert
yfir herbergi. Nú dansar hún yfir það. Það
má vel vera að ekki sé langt í að lækn-
ingamáttur þvagsins verði viðurkenndur.
Vísindamenn hafa komist að því að
urokinase, sem finnst í þvagi, leysir upp
blóðtappa og hægt er að nota það til varn-
ar og meðferðar gegn hjartaáföllum.
Eina hindrunin við notkun þvags til
lækninga er fordómar.
TEXTI:
ÞORSTEINN ERLINGSSON
Hvers vegna færð þú
æðahnúta?
Æðahnútar kom nær eingöngu á
ganglimi og myndast vegna þess, að
bláæðamar starfa ekki sem skyldi. Til
þess að blóðið í þessum æðum geti
runnið upp á við, í átt til hjartans, er
heilt kerfi af lokum í þessum æðum.
Ef þessar lokur bila, safnast blóðið
fyrir t æðunum, sem víkka út og
myndast Iykkja eða lykkjur á æðarnar,
er nefnast æðahnútar.
Venjulegir einfaldir æðahnútar eru,
út af fyrir sig ekki hættulegir. Ókost-
urinn við þá er fyrst og fremst hversu
mikil óprýði er af þeim, einnig geta
þeir valdið óþægindum og sárum.
Árangursríkasta lækningin er að
fjarlægja þá með skurðaðgerð.
Getur verið skaðlegt
að salta matinn
mikið?
Venjulegt matarsalt NaCl inniheldur
natríum (Na) sem er nauðsynlegt fyr-
ir sýru-basajafiivægið. Klór (Cl) er
einnig mikilvægur vegna saltsýru-
framleiðslu magans.
Til eðlilegrar starfsemi sinnar þarf
likaminn ca. 3 g af salti á dag. í venju-
legu fæði getur saltmagnið orðið allt
að 20 g á dag.
Ef maður borðar of mikið salt getur
það valdið hækkuðum blóðþrýstingi,
ef fýrir er tilhneiging í þá átt. Einnig
geta komið fram truflanir á fitumelt-
ingimni og saltsýruframleiðslu
magans. Saltið bindur mikið magn af
vatni og eykur þyngd fólks verulega,
sem m.a. kemur ffam í auknu álagi á
liðina.
Hættulegir
fæðingarblettir
Fæðingarblettir eru samansafh af
húðfrumum með litareftium sem
neftiist melanín. Flestir eru þessir
blettir hættulausir með öllu. Þeir geta
verið í húðinni allt frá fæðingu eða
myndast smám saman með árunum.
Nýir fæðingarblettir koma oft fram
um meðgöngutímann hjá konum eða
eftir mjög kröftug sólböð. Oftast eru
þeir góðkynja, en stöku sinnum geta
þeir breyst í krabbamein. Þá verður
breyting í frumunum, þeir fara að
stækka og það kemur í þá kláði. Þessi
krabbameinstegund er illkynja og
þarf að nema blettina sem fyrst í
burtu, áður en það fer að breiðast út.
Ef dökkur fæðingarblettur fer að
stækka ætti fólk að leita læknis sem
fyrst.
18. TBL.1989 VIKAN 37