Vikan


Vikan - 07.09.1989, Qupperneq 46

Vikan - 07.09.1989, Qupperneq 46
KENN5LA MYNDBANDIÐ 2. grein - myndatakan UMSJÓN: MARTEINN SIGURGEIRSSON Þegar byrjað er á myndatöku skal gera sér grein fyrir því í upphafi hverjir muni horfa á myndina. Mað- ur verður að haga sér öðruvísi þegar mynda á efni sem sýna á öðrum en fjöl- skyldunni. Þá verður myndin að tala fyrir sig sjálf, hafa ákveðinn efhisþráð og vera skipulega uppbyggð. Efni sem myndað er innan fjölskyldunnar skilja allir en það er eigi að síður vandasamt að gera atburðum í lífi fjölskyldunnar góð skil. Sömu grund- vallarreglur gilda við myndatökuna og hjá kvikmyndagerðarmanni sem myndar ein- hverja stórmyndina. Reynslan er besti skólinn. Það er ódýrt að gera mistök með myndbandið. Ef hver og einn temur sér einhverja sjálfsgagnrýni og fær aðra til þess að koma með athugasemdir geta flestir gert sínar eigin myndir sem eru full- boðlegar. Einnig er gott að kynna sér námsefni um myndatökur og fara á nám- skeið í þáttagerð. Handrit Ekki er nauðsynlegt að gera handrit þegar myndað er heima eða á ferðalögum. Þó getur verið gott að punkta niður þau atriði sem mynda skal og fá þá um leið yfirsýn yfir verkefnið sem getur sagt stutta sögu. Atburður sem hefur framvindu. Klippt í vél Flestir sem taka myndir á myndband sýna myndina að lokinni töku. Nokkrir safha efni sem þeir stytta síðar og raða saman upp á nýtt, klippa. Þetta verður að hafa í huga þegar myndað er. Með stöð- ugri þjálfun má ná töluverðum árangri með því að „klippa í vél“ eins og það er kallað. En þá er reynt að vanda sem best til myndatökunnar. Myndin byrjar á titli/ texta og síðan rennur hún áfram með breytilegum sjónarhornum og mynd- stærðum ásamt mislöngum myndskeiðum. Sögð er saga sem er tilbúin þegar tökum lýkur. Myndbygging Við myndatöku er sífellt verið að velja sjónarhorn úr umhverfmu sem römmuð eru inn í ferning sem hefur hlutföllin 3:4 (sjónvarpsskjár). Þessum brotum er raðað upp í eina heljarmikla myndaröð þar sem aðeins sést ein mynd í einu en verður að muna allar hinar og áhrif og tengingu Gott er að hafa stuðning þegar myndað er. Hér hvílir olnboginn á hné og tökuvél er í sömu hæð og myndefnið. þeirra innbyrðis. Þegar rammaður er inn hluti af umhverfmu er það dálítið af handahófi í fyrstu. Við nánari athugun er mikilvægt að hlutir innan rammans séu í jafnvægi og rétt staðsettir innbyrðis. Eftir- talin atriði hafa áhrif á jafnvægi í mynd- fletinum: Stærð hluta, litir, birta, hreyfing og hljóðgjafl. Þessi atriði teyma augað um myndflötinn. Þar sem augað er statt hverju sinni er gott að byrja næsta myndskeið með áhrifin á sama stað í myndfletinum (mjúkt klipp). Skjánum má skipta í fleti með hugsuð- um línum (sjá mynd). Mikilvægustu hlutar myndarinnar eiga að vera á línunum. Lín- urnar skerast i mikilvægustu punktunum, t.d. andlit þar sem augun eru á efri línunni. Þegar myndað er er gott að lofti aðeins fyrir ofan höfuðið og eins ef horft er til hliðar að loftrými sé fyrir framan andlitið. Myndatakan Þegar byrjendur mynda í fyrsta sinn eru myndavélin og tökumaður á mikilli hreyf- ingu við það að mynda og leita að mynd- efni. Breytilinsan er óspart notuð ffam og aftur. Árangurinn verður mynd sem óþægilegt er að horfa á, þar sem myndefn- ið er á sífelldri hreyflngu. Myndavélin á oftast að vera kyrr nema einhverju sé fýlgt eftir en fyrirmyndin má gjarnan hreyfa sig. Best er að nota góðan þrífót þar sem því verður við komið. Þannig fást kyrrar myndir. Ef verið er að mynda fólk er venj- Mikilvægustu hlutirnir í myndinni eiga að vera á línunum. Línurnar skerast í mikilvægustu flötum myndarinnar. an að hafa linsuna í augnhæð fyrirmyndar. Því miður mynda allt of margir börn þannig að myndvélinni er beint niður að þeim. Oft er ekki hægt að koma við þrífæti. Þá er hægt að nota einfótung sem er ekki eins fyrirferðarmikill, einkum á ferðalög- um, en gefur engu að síður stöðugri mynd en ef haldið er á vélinni. Þegar haldið er á vélinni er best að hafa hana á öxlinni ef hún er það stór eða nota axlarstatíf, því myndin titrar meira ef mað- ur heldur vélinni fýrir framan sig. Ef ekki er annarra kosta völ er best að hafa oln- bogana þétt upp að brjóstinu og skorða sig sem best af. Gott er að styðja sig við grind- verk eða bíl. Ef þarf að hreyfa vélina til hliðar erbest að vinda örlítið upp á líkam- ann og snúa honum svo til baka aftur hægt og rólega. 44 VIKAN 18. TBL 1989

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.