Vikan


Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 6

Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 6
TEXTI OG LJÓSM, RAGNAR LÁR L / O M RÆNN AHUGI A_ Dergþóru- gotu og Vitastíg er rakarastofa. Viö hlið hennar er innrömmun og til- heyrir Bergþórugötu 23. Hand- an götunnar er Austurbæjar- skólinn og utan og ofan við hann er Iðnskólinn. Innrömm- unin heitir Harðarrammar og var áður fyrr til húsa í bakhúsi að Laugavegi 17. Sá sem ræður ríkjum í Harðarrömmum heitir Hjálmar Jóhannsson og er pípulagn- ingameistari að mennt. Þegar okkur ber að garði er Hjálmar að ramma inn mynd sem gerð er eftir verki spánska meistar- ans El Greco. Myndin er prent- uð á pappír sem límdur er á striga og þarf því að strekkja Hér eru að sjálfsögðu teknar mikilvægar ákvarðanir sem sumar varða þjóðarheill. Hver eru áhugamálin fyrir utan vinnuna? - Áhugamálin eru þau helst að drekkja möðkum, kom- ast á völlinn og að ferðast. efni félaga minn aö þessu sinni. Ekki batnaði það þegar ég skömmu seinna fékk svart- bak á öngulinn. Það er óskemmtilegasti dráttur sem ég hef fengið. Er vandasamt að veiða á stöng? - Ég fór á sínum tíma á INNRAMMARI, AUSTURBÆINGUR OG VALSARI SEM ÞYKIR VÆNT UM KR-INGA hana á blindramma áður en hún fer í ytri rammann, gylltan fínlegan ramma sem eigand- inn hefur valið. En hvaðan kemur Hjálmar? - Ég er getinn í Reykjavík en fæddur á Snæfellsnesi. Þriggja mánaða flutti ég „aftur“ til Reykjavíkur. Ég er því Reykvíkingur í húð og hár og þar að auki Austurbæingur. Auk þess að vera Austurbæ- ingur er ég Valsmaður. Af hverju Valsmaður? - Ég er Valsmaður vegna þess að bestu drengirnir eru í Val. Hins vegar þykir mér vænst um KR-inga fyrir utan Valsara. Af hverju KR-inga? - Það er svo gaman að vinna þá. Þeir sem stunda boltaíþrótt- ir, hvort heldur er sem þátttak- endur eða áhorfendur, kann- ast margir við Hjálmar. Hann lætur gjarna í sér heyra á vell- inum, ekki síst þegar Valur er að keppa, og er óhræddur við að láta álit sitt f Ijós. Reyndar þarf Hjálmar ekki að vera á vellinum til að láta í sér heyra. Þetta vita þeir sem hafa hitt hann í gegnum tíðina, hvort heldur er á förnum vegi eða á vinnustað. Þeir eru enda ófáir sem líta inn á verkstæðið til að spjalla og fá sér andlega upp- lyftingu í amstri hversdagsins. Hjálmar hefur ótal sögur á hraðbergi enda hefur hann víða komið við í gegnum árin og kynnst mörgum kynlegum kvisti á lífsgöngunni, sem ekki hefur alltaf legiö um sléttlendi. Skólagangan? - Ég var auðvitað í barna- skóla Austurbæjar, þessum sem er hérna handan götunn- ar. Síðan lá leiðin út á vinnu- markaðinn, meðal annars á sjóinn. Hvað um pípulagnirnar? - Ég fór ekki að læra þær fyrr en Iðnskólinn flutti hingað í Austurbæinn, eins og hver maður getur skilið. Ég vann síðan við pípulagnir í fjölda ára eða allt þar til heilsan bil- aði og bannaði slíka vinnu. Þá sneri ég mér að innrömmun. - Af listrænum áhuga, þaö gefur augaleið. Svarið við síðustu sþurning- unni gefur Hjálmar með sér- stökum áherslum og glettnis- glampa í auga. LIST-rænum áhuga. Skyldi hann tengja áhugann við ramma-list? Þú vinnur hérna einn. Er það ekki leiðinlegt? - Mér hefur aldrei leiðst nein vinna. Hingað koma líka ýmsir góðir menn - og konur. Hefurðu ferðast víða? - Ég hef ferðast vítt og breitt um landið en auk þess hef ég komið til Danmerkur, Svíþjóðar, Englands og Spánar. Þar vorum við hjónin um jólin síðustu. Mest finnst mér þó gaman að ferðast um eigið land og kynnast því. Þú talaðir um að drekkja möðkum? - Já, ég stunda silungs- veiði. Ég er ekki í þeim launa- flokki að geta stundað laxveið- ar. Þú hefur auðvitað sett í þann stóra? - Stærsti fiskur, sem ég hef veitt, var nú níu punda sjóbirt- ingur. Hann veiddi ég í Heiðar- vatni í Mýrdal. Stærsta bleikj- an, sem ég hef veitt, var sjö pund. Hún var ekki mikil á lengdina en hún var svo feit að hún var steinsofnuð þegar ég dró hana að landi. Veiðisaga? - Þær eru margar, veiði- sögurnar. Eitt sinn var ég ásamt félögum mínum að veiðum í Vatnsdalsá. Ég hafði vaðið nokkuð langt frá landi, en þarna var aðgrunnt. Félag- ar mínir stóðu uppi á landi og sáu hvar ég stikaði svo hratt sem kostur var að landi. Ég hafði sett í væna bleikju. Blessunin sú arna ákvað að snúa dæminu við og draga mig að landi og synti því á fullri ferð á land Uþp með mig í eftir- dragi. Ég varð því aðhláturs- kastnámskeið í Laugardals- höll. Slík námskeið eru nauð- synleg undirstaða og góð vetraræfing fyrir veiðitímann. Að lokum, Hjálmar. Hvereru dýrmætustu verk sem þú hefur rammað inn? - Það er nú svo afstætt hvað er dýrmætt og hvað ekki. Fyrir eigandann getur lítil fjöl- skyldumynd verið ómetanleg og dýrmætari en flest annað. En ætli ég nefni ekki mynd eftir norska meistarann Edvard Munch sem ég rammaði inn fyrir nokkrum árum. Ég þorði ekki annað en vinna hana samdægurs og vildi ekki hafa hana undir höndum lengur en nauðsyn bar til. Þá má nefna Kjarval en ég hef rammað inn nokkrar myndir eftir hann. Erfiðasta innrömmunin? - Ætli það sé ekki mynd sem var með mislöngum lang- hliðum. Önnur hliðin var 120 cm en hin var 100 cm. Af þeim ástæðum var ekkert horn rétt. Þetta var strembið verkefni. Skrýtnasta verkefnið? - Ég lenti eitt sinn I því að ramma inn púslu (raðmynd) sem var 150x110 cm að stærð. Ég varð að líma niður hverja einustu púslu og ramma síðan myndina inn undir gleri. Þetta var skrýtið verkefni og krafðist mikillar þolinmæði. Við kveðjum Hjálmar inn ramma og þökkum honum fyrir spjallið, já og teið. □ 6 VIKAN 12. TBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.