Vikan


Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 61

Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 61
til aö heimurinn veröi lífvænlegri munu taka nokkuð langan tíma eða eitt til tvö hundruö ár. Á þessu tímabili má búast við miklum tilfinningalegum sveiflum, með kröfu um breytingar. Þroskuðu sálirnar eru fullar hugsjóna en hugsjónirnar virka ekki alltaf í framkvæmd og því er hætta á að um allan heim verði mikið breytt um stefnur og „isma“ næstu tvær aldir. Þroskaðar sálir leita eftir sanngirni og þó þjóðirnar eigi eftir að rífast sín á milli eiga þau rifrildi ekki eftir að leiða til meiri háttar stríðsreksturs. Aftur á móti má búast við að á næstu tveimur árum komi til árekst- urs á milli mjög tilfinningalegra og rök- rænna hugmynda. Við erum sem sagt að ganga í gegnum tilfinningalegt lærdómstímabil til loka 1991. Á því tímabili getur skapgerð okkar einkennst af tilfinningalegum sveiflum og því að við erum annaöhvort mjög glöð eða frekar döpur. Á þessu tímabili eiga eftir að koma uþp vandamál um allan heim, sem teljast tilfinningalegs eðlis. Fjármagnskerfið, eins og við þekkjum það, á eftir að hrynja og í kjölfar þess má búast við faraldri sjálfsmorða hjá fólki sem heldur aö hamingjan felist í peningum. Má reikna með að það verði aðallega sálir á smábarna- og unga skeiðinu sem taka svo dramatískt á málunum. Viö sem lifum á jörðinni virðumst telja að eina leiðin til að öðlast þroska sé í gegnum sifelldar þjáningar en Michael bendir á að við eig- um að breyta þeim hugsunarhætti, vera glöð og njóta lífsins. JÖRÐINNI BJARGAÐ Michael segir að erfitt sé að segja fyrir um framtíðina af hundrað prósent ná- kvæmni þar sem við höfum alltaf viljann og valið til að breyta. Við höfum farið illa með jörðina, en þó höfum við möguleika á að bjarga henni á næstu nokkur hundruð árum ef við snúum blaðinu við og vernd- um hana. Eins og stendur eru jafnar líkur á að það takist. Verkefnið er erfitt en ef jarðarbúar taka höndum saman og sýna skilning og samkennd verður þaö mun auðveldara. VITSMUNALEGA TÍMABILIÐ Árið 1992 förum við inn (tímabil vits- munanna. Á því tímabili Sþrettur uþp þörf til að oþinbera sannleikann og má búast við að flett verði ofan af ýmsum leyndar- málum, stjórnmálalegum, milliríkjalegum og hernaðarlegum, til að fullnægja þess- ari þörf. Margir einstaklingar, sem hafa verið miklir hugsjónamenn, eiga eftir að verða fyrir vonbrigðum á þessu tímabili, þegar þeir komast að raun um siðleysi leiðtoga sinna. Þetta ár verða mikil efnahagsleg vandamál um allan heim en að hluta til verður hægt að stýra framhjá persónuleg- um áhrifum þeirra meö því að verða óháð stærri kerfum sem munu falla á þessu tímabili. NIÐURBROT HEILBRIGÐISKERFISINS Samkvæmt uþþlýsingum frá Michael má reikna með að heilbrigðiskerfi Banda- ríkjanna og jafnvel fleiri landa hrynji árið 1992. Innan þessa kerfis hefur því miður veriö skortur á heilindum og ráðvendni. Því verður það að ganga í gegnum mikla endurskoðun og nýtt kerfi að byggjast upp sem býður upp á samræmingu fleiri lækningaþátta, svo sem almennra lækn- inga, náttúrulækninga, nálastungumeð- ferðar o.fl. þannig að sjúklingurinn hafi meiri valmöguleika um hvaða meöferð hann vill ganga undir. Það er undir okkur sjálfum komið að ákveða og byggja upp það kerfi sem viö viljum. MIKLAR FRAMFARIR Þetta verður einnig tímabil lista og leik- húsa, svo og mikilla framfara í tölvum og tölvubúnaði. Skemmtanaiðnaðurinn á eft- ir að bjóða upp á meiri valmöguleika með því að blanda tæknikunnáttu við listina. Einnig á eftir að koma fram nýtt form af tónlist, byggt upp á samspili mismunandi hljóðfæra frá hinum ýmsu löndum heims. Mörgum þótti nóg um stúdentaóeirðir og mótmæli gegn Víetnamstríðinu á sjöunda og áttunda áratugnum en þau mót- mæli eiga eftir að virðast barnaleikur hjá þeim mótmælum sem við megum búast við á næsta áratug. Þaö á eftir að verða mikið um þjóðfélagsleg uppþot og breyt- ingar en á slíkum tímum er oft mikið að gerast á listasviðinu. ( Bandaríkjunum á eftir að gæta mikils óróleika og kröfu um breytingar. Margir minnihlutahópar eiga eftir að þrýsta fram sínum málefnum og krefjast virðingar fyrir einstaklingnum en kaþítalisminn og kommúnisminn virðast hafa gleymt José Stevens féll á umræddu námskeiði tvisvar í hálftrans og höfðu þá einstaklingar úr hópnum leyfi til að spyrja Michael spurninga. Eftirfarandi spurning var ein af þeim sem fram komu: Sp.: Heldur Michael að álver verði byggt við Eyjafjörð? Sv. Michael: Þetta er nokkuð athyglisverð spurning. Ég held að þið verðið að gera ykkur grein fyrir því að á meðan þið viijið nota hnífapör, potta og fleira, sem framleitt er úráli, verðurað framleiða það einhvers staðar. Við skulum gera okkur grein fyrir því að móðir Jörð hefur getu til að takast á við ákveðið magn mengunar og hreinsa sig af því og þá er ef til vill betra að álver sé reist við Eyjafjörð, þar sem gætt verður fyllstu mengunarvarna, heldur en til dæmis í Lýbíu þar sem engar reglur um mengunarvarnir eru til. honum. Því er nauðsyn á nýju kerfi sem er mitt á milli þessara tveggja. FRAMTÍÐARMENNINGIN Yfir heiminn á eftir að flæða mikið af sams konar menningu. Sú menning felst meðal annars í því að sömu verslanir má finna um allan heim (keöjur), sams konar veitingastaði (t.d. McDonalds) og fleira sem verður alþjóðlegt. Á sama tíma mun verða vakning í að vernda menningu hvers svæðis fyrir sig. Enska mun vinna á sem alheimstungumál og sífellt bæta við sig nýjum orðum en að auki mun tungu- mál hvers svæðis fyrir sig verða verndað. Verndun á menningu og tungu þýðir pen- inga ( formi ferðamannaþjónustu því ferðamenn fara á milli til að skoða menn- ingu hvers svæðis. FRAMTÍÐARMYND STJÓRNMÁLANNA Samkvæmt kenningum Michaels mun í stjórnmálum heimsins gæta mikils þrýst- ings til að fella niður öll landamæri (sbr. EB '92 og Austur- og Vestur-Þýskaland í dag). Um sífellt meiri sameiningu landa verður að ræða. Öll tengsl og samskipti munu aukast til muna og alheimsstjórn gæti verið í sjónmáli innan 60-100 ára vegna þrýstings frá fólki um allan heim. Dagar hefðbundins hernaðar fara að verða taldir. Að vísu munu herirnir verða til um tíma og til að halda andlitinu eiga þeir eftir að lenda í smástríðum. En um leið og þörf þjóða fyrir að ná yfirráðum yfir öðrum þjóðum minnkar minu þeir hverfa. JARÐSKJÁLFTAR OG ELDGOS Umhverfið mun ganga í gegnum miklar breytingar til ársins 2010, þó ekki á þann hátt sem Cayce spáði. Það mun verða mikið um jarðskjálfta og eldgos, veður- farsbreytingar og breytingar á sjávarlög- Hlutverk: Prestur á unga sálarskeiðinu, með undirgefni sem markmið, með ástríður sem aðferð, með viðhorf hugsjónamannsins, með óþolinmæði sem aðalhindrun, vinnur í gegnum tilfinningastöðina og með líkamsgerð tengda Satúrnusi. 12. TBL. 1990 VIKAN 61 Myndirnar eru allar ur bókinni: Michael: The Basic Teachings.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.