Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 45
KROSSGÁTUGERÐ: GUÐJÓN BALDVINSSON
efsta skólastig. Tilgangurinn
er aö kenna nemandanum aö
rata meðalveginn og búa hann
undir fastmótaö hlutverk í
þjóðfélagsvélinni. Fyrst ber að
kenna börnum aö standa og
ganga í röö, hemja hreyfikerfi
líkamans meö kyrrsetu í stól
langtímum saman og síðar
meir mata nemendur á sögu-
legum „staðreyndum" og
viöurkenndum kenningum
annarra. Ef skólastarfið er
skoðaö fordómalaust kemur í
Ijós aö börnum er kennt að
þegja sem mest, hlusta sem
best og leggja á minnið álitlegt
safn upplýsinga.
FJÖLMIÐLAR OG
STREITA BARNA
Mikilli fjölmiölanotkun fylgir
einnig ákveöiö álag. Hljómlist,
kvikmyndir, myndbönd, lestur
dagblaða og sjónvarpsgláp
eru áreiti sem góö þykja í
haefilegum skammti en skapa
spennu og farg ef fram úr hófi
keyrir.
Aðgengilegasti fjölmiðillinn
núna er án efa sjónvarpið
enda er þaö orðið mótandi að-
ili í uppvexti barna og hefur
mikil áhrif á líf margra fullorð-
inna. Það má segja að sjón-
varpið komi næst á eftir for-
eldrum og kennurum hvað
uppeldi barna varðar. Ef
marka má bandaríska
könnun, sem gerð var meðal
barna, tóku flest þeirra sjón-
varpið fram yfir móður sína
eða föður. Spurt var: Hvort
viltu missa sjónvarpið eða
mömmu þína? og Hvort viltu
missa sjónvarpið eða pabba
þinn?
Yfirgnæfandi meirihluti
barnanna valdi sjónvarpið (og
það sem í því er) enda vanari
samskiptum við það en for-
eldrið. Margir hafa af þessu
áhyggjur því mikið sjónvarps-
gláp hefur í för með sér skerta
tjáningargetu og málþroskinn
verður að sama skapi minni.
Ástæðan er ósköp einföld.
Barnið horfir langtímum sam-
an á sjónvarpsefni (vegna
vana) sem það skilur lítið sem
ekkert I.
Stríðsfréttir, óeirðir og of-
beldi, ásamt myndum frá
hörmungum fólks víða um
heim, eru barninu visst álag.
Tilfinningaleg samkennd
barna er meiri en fullorðinna
og þau hafa tilhneigingu til
þess að taka á sig ábyrgð á
þjáningum annarra. Of stór
skammtur gerir síðan þá kröfu
að barnið bæli með sér slíkar
tilfinningar og þá kemur í Ijós
það sem verra er; tilfinninga-
leysi, sljóleiki og siðferðislegt
sinnuleysi.
LEIÐIR TIL ÚRBÓTA
Hraðinn, tímaleysið, peninga-
leysið og þekkingarleysið
meðal almennings bitnar fyrst
og fremst á börnunum. Ef
raunveruleg breyting á að eiga
sér stað til að minnka álag og
streitu meðal barna og fullorð-
inna verður fólk að vakna til
meðvitundar um hlutskipti sitt
og þá þróun sem orðið hefur í
samfélaginu. Hugarfarsbreyt-
ing samfara róttækum efna-
hagslegum og þjóðfélagsleg-
um breytingum er nauðsyn.
Þangað til slík ummyndun hef-
ur átt sér stað verður að leggja
áherslu á eftirfarandi:
1. Leggja verður ríkari
áherslu á mikilvægi líkams-
snertingar og samveru fjöl-
skyldunnar á uppvaxtarár-
um barnsins. Hægt er að
nudda börn með barnaolíu,
nota helgar og 1-2 kvöld í
viku til tjáskipta við börn,
skipulagðra leikja, málunar
mynda eða upplestrar.
Tæknin í formi vídeóupp-
tökuvélar, sem geymir
samskipti, rökræður og
deilur á myndsegulbandi,
getur veriö skemmtilegt
sjónefni fyrir alla fjölskyld-
una og hjálpartæki við
endurmat á fyrri reynslu og
jafnvel uppspretta fyrir nýtt
hegðunarmynstur hjá ein-
hverjum fjölskyldumeð-
limnum.
2. Leggja verður ríkari
áherslu á mikilvægi leiksins
hjá börnum. Ærslafullur
eða sviðsettur leikur er
öflugasta leið barnsins til
þess að tjá innibyrgðar til-
finningar, skiljafyrri reynslu
og veita streitu jákvæða
útrás. Standa verður vörð
um rétt barnsins til þess að
vera barn. Standa verður
vörð um rétt einstaklingsins
til þess að geta alið upp
barn eða börn í nútíma-
samféiagi. Standa verður
vörð um gildi og mikilvægi
barnsins, heim þess, óskir,
ást og lífsvilja.
/ HfoMT- iít /DJ/3Ö PÍLfí TVUjfí PfíjAjfíÖ fífí Qltír t a)o* «$£EL Kj/lFuJp ////
w>á 1, ,W0/7% iMkMmn 1 Z llorKfí Eiá)$
'OFÚS
I [\- Káálfual \Iersluaj \/ il 3 >
/ \ L <5 \e\(x TÍTiLL. FoRkJ * V > \± SÓ'MU. S/oó2" FOK.Í
KO EA>- /Jf\ Faj UA/6- \JiBi p > j /
/ i '0 11
0E*5 t-i ELÐLÍ þuKLA/C - *
1 3 i 5~ (o i GdUMi M'd Á/f b >
LAUSNARORÐ 1-8 í SÍÐASTA BLAÐI: SUMARTÍÐ
12. TBL 1990 VIKAN 45