Vikan


Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 49

Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 49
ENDURNYJUN SÁLAR OG LÍKAMA Hjónin Sigrún Ó. Oisen og Þórir Barðdal hafa tekið á leigu skólann á Reykhóium í Austur-Barðastrandar- sýslu í sumar og bjóða þar upp á 6-8 daga dvöl til hressingar og endurnýjunar fyrir sál og líkama. „Dagskráin er fjölbreytt," sagði Þórir í viðtalið við Vik- una. „Má þar nefna svokallaö Þau hafa tekið á leigu skólann á Reykhólum í Austur-Barða- strandarsýslu í sumar og bjóða þar 6-8 daga hressing- ardvöl. makróbíótískt fæði sem bygg- ist á því að koma manninum í samband við náttúruna og þau næringarefni hennar sem henta honum hverju sinni. Matreiðslumeistararnir, sem verða á staðnum, eru menntaðir í Englandi og hafa sérhæft sig f þessari matar- gerðarlist. Verður boðið upp á sýnikennslu í makróbíótískri matseld til þess að fólk geti til- einkað sér hana og haldið áfram á þessu fæði að ein- hverju leyti eftir dvölina á Reykhólum." Fleira verður um að vera á Reykhólum. Dvalargestir munu fá þjálfun til líkama og sálar því að bæði verður boðið upp á leikfimi og gönguferðir svo og bátsferðir um Breiða- fjörð þegar viðrar fyrir slíkt. Síðan verða jógaæfingar og svonefndar Do-in æfingar á hverjum morgni, hugrækt á kvöldin og fleira þess háttar. Þeim sem innrita sig í dvöl á Reykhólum í sumar gefst því kostur á að endurhæfa sig og læra að sækja þrótt og lífsorku í þær lindir sem búa í mannin- um sjálfum. Sigrún og Þórir eru sam- mála um að Reykhólar séu yndislegur staður, umvafinn blíðri orku og iðandi af lífi og kosmiskum kröftum. Svo mikið er víst að enginn sem þar hef- ur komið efast um fegurð stað- arins að þv( leyti sem auga venjulegs manns fær greint. Útsýn yfir hinar óteljandi, ólýs- anlegu Breiðafjarðareyjar með Snæfellsjökul í baksýn er nokkuð sem enginn gleymir. Enda er auk alls annars boðið upp á kennslu í meðferð vatnslita. Þeir sem hafa áhuga á slíku geta tekið með sér blokk og liti og reynt að festa dýrðina á blað. „Það besta er samt flestum ósýnilegt," segja þau Sigrún og Þórir og eru dul- arfull á svipinn. Og því geta þeir kynnst sem innrita sig til dvalará Reykhólum í sumar. ILMUR í ANDA ART NOUVEAU Margir ættu aö kannast við ilminn Maxim's de Paris Eau de Toilette. Sá ilmur kom á markaðinn árið 1985 og nú, fimm árum síðar, er einnig hægt að fá Eau de Parfum frá Maxim’s. Þessi vandaði ilmur, sem er blanda af blóma-, trjá- og ávaxtailmi, hefur verið valinn með jafnmikilli nákvæmni og litir í málverki eftir Frantin- Latour. Flaskan er í anda Art Nouv- eau stefnunnar. Hún er úr svörtu gleri, með hreinum, kvenlegum útlínum, afar glæsileg og nokkurs konar tákn um velgengni. Með öðr- um orðum mjög í anda Maxims. Art Nouveau stefnan, einnig þekkt sem nouille stíllinn, náði hámarki um síðustu aldamót með plakötum Muchas og list- munum Emile Gallés ásamt öðrum. Nú er þetta enn á ný mjög eftirsóknarverður stíll. Hið nýja Maxim’s Eau de Parfum hefur sama eldheita ilminn og Maxim's Eau de Toil- ette, aðeins með mismunandi áherslum. JÓNA RÚNA KVARAN Frh. af bls. 37 þín og af þörf fyrir viðurkenn- ingu sem gleymdist að veita þér í uppvextinum vegna heimiliserfiðleikanna. Mér finnst mjög auðvelt að veita þér uppörvun af því að það er augljóst á bréfinu þínu að þú ert óvenjulega vel af Guði gerð og ótrúlega óspillt og hrekklaus, þrátt fyrir erfiðan bakgrunn. Eins virðist þú vera glaðlynd og sennilega spaug- söm þegar því er að skipta. Við vitum að lífið er dásamlegt og til þess gert að við njótum þess líka og þess vegna er ágætt að leggja rækt við flest það sem getur aukið hamingju okkar og annarra. Ég legg til að þú íhugir þessi sjónarmið mín gaumgæfilega. Ef það kemur í Ijós að þau henta þér ekki lætur þú þau einfaldlega fjúka. Kannski á ég eftir að fá spádóm frá þér seinna, hver veit? Eða eins og veraldarvani ræstitæknirinn sagði eitt sinn eftir að hafa unnið verk vina sinna líka: Elskurnar mínar! Mig munar ekkert um að bæta verkum annarra ofan á mín því ég er stór og sterkur og fátt virðist buga mig, þrátt fyrir allt. Guð styrki þig og leiðbeini áfram í átt til sjálfrar þín á sem jákvæðastan hátt, kæra Snót. Með vinsemd, Jóna Rúna Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn og kennitölu, ásamt dul- nefni. Svörin byggjast á inn- sæi Jónu Rúnu og rithandar- lestri og því miður er alls ekki hægt að fá þau í einkabréfi. Utanáskriftin er: VIKAN Jóna Rúna Kvaran Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík 12. TBL. 1990 VIKAN 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.